Fréttamál

kosningar2016

Fréttir

Ákveðið að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur til­kynnt for­seta Íslands að á grund­velli sam­tala við for­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar ætli flokk­arnir þrír að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Sjálf­stæð­is­flokknum. Óform­legar við­ræður milli flokk­anna hafa staðið yfir frá því í síð­ustu viku. Formenn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, Benedikt Jóhann­es­son og Óttarr Proppé, hittu Bjarna á fundi síð­degis í...
Fréttir

Evr­ópu­málin það sem helst stendur í vegi fyrir stjórn­ar­myndun

Evr­ópu­málin eru helsti ásteyt­ing­ar­steinn­inn í við­ræðum Sjálf­stæð­is­flokks ann­ars vegar og Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hins vegar um myndun nýrrar rík­is­stjórnar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur mynd­ast umræðu­grund­völlur fyrir breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­málum sem allir aðilar geta sætt sig við að byggja form­legar umræður á en í Evr­ópu­málum virð­ist eng­inn til­bú­inn að gefa neitt eftir. Það er yfir­lýst stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins að...
Fréttir

Útséð með sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri-grænna

Svo getur farið að Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins skili inn stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu, ef sam­töl hans við for­menn ann­arra flokka skila ekki árangri fyrir helgi. Þetta sagði Bjarni í sam­tali við RÚV í dag. „Það er tölu­vert mikil gjá víða á milli manna en nú ætla ég að halda þessum sam­tölum áfram og sjá hvort það er grund­völlur til þess að hefja...
Fréttir

Bjarni: Málin verða að skýr­ast í þess­ari viku

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að það verði að skýr­ast í þess­ari viku hvort sam­töl hans við for­menn ann­arra flokka séu grund­völlur fyrir því að hefja stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. Þetta kemur fram í við­tali við hann á Vísi. „Það væri best að hafa bara þrjá flokka í þess­ari stöðu,“ sagði Bjarni við RÚV, þótt hann úti­lok­aði ekki að fjórði flokk­ur­inn kæmi að...
Fréttir

Krefjast þess að Sig­mundur Davíð verði ráð­herra

Það er krafa stuðn­ings­manna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar innan Fram­sókn­ar­flokks­ins að ef flokk­ur­inn ætli í rík­is­stjórn­ar­sam­starf þá verði eina leiðin til sátta við þá að gera Sigmund Davíð að ráð­herra. Þetta segir Sveinn Hjörtur Guð­finns­son, for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Reykja­víkur, við Morg­un­blaðið í dag. Hann segir enn fremur að eina mann­eskjan til að sætta and­stæðar fylk­ingar í flokknum sé Lilja Alfreðs­dóttir, nýkjör­inn vara­for­maður...
Fréttir

Segir engar hug­myndir um hann sem for­sæt­is­ráð­herra hafa verið viðr­aðar

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að það hafi ekki verið rætt á fundi hans og Óttarrs Proppé, for­manns Bjartrar fram­tíðar, með Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna, á mið­viku­dag að hann yrði for­sæt­is­ráð­herra. Því var haldið fram á for­síðu Frétta­blaðs­ins að sú hug­mynd hefði verið viðruð á fund­inum. Benedikt segir að fund­ur­inn hafi staðið í klukku­tíma og þar hafi verið farið...
Fréttir

Benedikt verði for­sæt­is­ráð­herra í breiðri stjórn

Formenn hins nýlega mynd­aða miðju­banda­lags frjáslyndu flokk­anna Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar fund­uðu með Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna, á mið­viku­dag og þá var viðruð sú hug­mynd að allir flokk­arnir þrír myndu mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki. For­sæt­is­ráð­herra í þeirri rík­is­stjórn yrði Benedikt Jóhann­es­son. Þessi fundur fór fram sama dag og Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var afhent stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð af for­seta Íslands. Frá...
Fréttir

Guðni vill ekki launa­hækkun og mun ekki þiggja hana

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, seg­ist ekki hafa beðið um launa­hækkun og hann þurfi ekki launa­hækkun. „Ég vænti þess að þingið vindi þá ofan af þess­ari ákvörðun og taki það í sínar hendur og ég myndi sætta mig full­kom­lega við þær lyktir,“ sagði Guðni Th. á blaða­manna­fundi sínum að loknum fundi með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar ræddi hann um...
Fréttir

Ræðir við alla for­menn flokka

„Mín fyrstu skref verða að eiga sam­töl við for­menn ann­arra flokka, og ég mun reyna að nýta tím­ann vel,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Bessa­stöðum að loknum fundi hans með for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­essyni. Hann sagði eðli­legt að það taki tíma að ná saman, sér­stak­lega þegar fyrir liggi að ekki sé hægt að mynda tveggja flokka stjórn. „Ég...
Fréttir

Bjarni fær stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fær stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta Íslands. Þetta til­kynnti for­set­inn, Guðni Th. Jóhann­es­son, á fundi með blaða­mönnum rétt í þessu. Með þessu er hann ekki að útnefna for­sæt­is­ráð­herra, sagði for­set­inn, heldur aðeins að hjálpa við að flokkar myndi rík­is­stjórn, og myndun rík­is­stjórnar sé alfarið stjórn­mála­flokka. Hann ákvað að þessi kostur væri væn­leg­astur til árang­urs og væn­leg­asta leiðin til...

Mest lesið undanfarið ár