Flokkur

Kjaftæði

Kjaftæði

Stígur Helgason

Innrás ósam­rým­an­legra sjón­ar­miða

Ókei, sleppum for­mál­anum, vöðum bara beint í þetta. Það er tvennt í stöð­unni: Annað hvort end­ur­speglar mál­flutn­ingur Snorra Magn­ús­sonar, for­manns Lands­sam­bands lög­reglu­manna, ágæt­lega við­horf starfs­systk­ina hans, svona almennt og yfir­leitt, eða hann er vondur tals­maður fyrir stétt­ina sem hann til­heyrir. Það er eig­in­lega ekk­ert þarna á milli. Það hefur marg­sýnt sig að Íslend­ingar treysta lög­regl­unni sinni vel — betur en...
Kjaftæði

Bryndís Eva Ásmundsdóttir

Verndum börnin

Í mér hefur lengi blundað ákveð­inn uggur, óljós grunur um að ekki sé allt með felldu. Í gegnum árin hef ég þó trúað sam­fé­lag­inu sem sann­færir mig um að þetta sé ég. Smám saman hefur svo sann­leik­ur­inn runnið upp fyrir mér. Meist­ara­leg­asta blekk­ing okkar tíma hrundi á end­anum fyrir augum mér, alls­bert sprikl­aði fyr­ir­bærið útsmogna. Í ein­vígi þess við eðli­lega...
Kjaftæði

Hrafn Jónsson

Ó Kanada

Justin Trudeau, verð­andi for­sæt­is­ráð­herra Kanada, er frá­bær­asti maður sem ég hef séð. Ég er búinn að eyða öllum deg­inum í að skoða myndir af honum; Justin að keppa í góð­gerð­ar­hnefa­leika­móti til styrktar krabba­meins­rann­sóknum, Justin að láta tattú­era á sér upp­hand­legg­inn, Justin að stunda jóga í almenn­ings­garði, Justin að taka þátt í gleði­göng­unni. Það er ekki til slæm mynd af mann­inum....
Kjaftæði

Stígur Helgason

Ellefu ár

Ímyndum okkur að ég ákvæði eitt­hvert föstu­dags­eft­ir­mið­degið að mér leidd­ist í vinn­unni. Ímyndum okkur að ég fengi þá flugu í höf­uðið að það væri eft­ir­sókn­ar­verð­ara að flytja fíkni­efni til lands­ins og mok­græða á þeim – hratt. Ímyndum okkur að ég hugs­aði sem svo að lík­lega væri ábata­sam­ast að ein­beita sér að því að koma upp almenni­legum mark­aði með heróín á...
Kjaftæði

Margrét Erla Maack

Allt og app­el­sín

Rúm­fatalager­inn hefur tekið af skarið mitt í hring­iðu sam­visku­frelsis til að ganga í maga­bol og stillt upp jóla­serví­ettum og almennu jóla­dóti. Baggalútar og Borg­ar­dætur eru löngu búin að selja upp á jólatón­leika og Sigga Bein­teins brosir blítt á stóru aug­lýs­inga­skilti við Hörpu til að plögga. Fólk hváir. MEGA JÓLIN EKKI BARA VERA Í DESEMBER? Jú, og þau eru í des­em­ber....
Kjaftæði

Lára Björg Björnsdóttir

Til í að hjálpa

„Sæl, ég og fjöl­skylda mín erum til­búin að bjóða fram afnot af bíl, her­bergi fyrir ein­stak­ling, föt á drengi frá eins árs og upp í 14 ára, eitt­hvað af hús­gögnum, sængur og félags­legan stuðn­ing. Já og síðan getur mamma mín kennt íslensku.” Svona hefði mitt inn­legg á „Kæra Eygló Harðar, Sýrland kallar” síð­una nokkurn veg­inn hljó­mað ef ég hefði ein­hvern...

Mest lesið undanfarið ár