Svæði

Ísland

Fréttir

Hugsi yfir styrkjum Reykja­víkurborgar til Fjölskyldu­hjálpar: „Það þarf að stöðva svona dólga“

„Að fólk sem gefur sig út fyrir að þjónusta fólk í neyð á vegum hjálpar­samtaka leyfi sér slíka haturs­orðræðu hræðir mig,“ segir Magnús Már Guðmundsson vara­borgar­fulltrúi og fulltrúi í mann­réttinda­ráði og velferðar­ráði borgarinnar. Stundin fjallaði um rasísk viðhorf stjórnar­manna Fjölskyldu­hjálpar Íslands í gær, en samtökin eru styrkt árlega af Reykja­víkurborg.
FréttirOrka Energy-málið

Illugi ákvað að Orka Energy yrði fulltrúi Íslands í samstarfi við Kína

Menntamála­ráðuneyti Illuga Gunnars­sonar afhendir gögn um Kínaferð ráðherrans í mars. Kína­ferðin hefur haft miklar afleiðingar fyrir Illuga í ljósi þátttöku fyrr­verandi vinnu­veitanda hans, Orku Energy, í ferðinni. Gögnin sýna meðal annars fram á að það var menntamála­ráðuneytið sem ákvað að Orka Energy yrði fulltrúi íslenskra stjórn­valda í samstarfinu við kínversk yfirvöld á sviði jarðvarma.
Fréttir

Rasísk viðhorf stjórnar­manna Fjölskyldu­hjálparinnar

Stjórnar­maður Fjölskyldu­hjálpar Íslands hefur áður hringt inn á Útvarp Sögu til þess að dreifa rógburði um skjól­stæð­inga þeirra. „Þetta hljóta að vera bara stríðs­glæpamenn,“ sagði Anna Valdís Jóns­dóttir í beinni útsendingu. Þá hefur hún, líkt og framkvæmda­stjórinn, dreift áróðri gegn múslimum. Sjálf hefur Ásgerður Jóna Flosa­dóttir framkvæmda­stjóri verið á lista flokka sem hafa verið gagn­rýndir fyrir kynþátta­fordóma.

Mest lesið undanfarið ár