Svæði

Ísland

Rannsókn

Grundar­tangi: Paradís þunga­iðnaðarins

Í starfs­leyfum Norðuráls kemur skýrt fram að fyrir­tækið sér sjálft um vöktun og rann­sóknir á umhverfis­áhrifum sínum, og leggur til hvernig sú vinna fer fram. Afleiðing þess, að hagsmuna­aðilar vakti sig sjálfir, virðist vera að stór hluti þeirra áhrifa sem álverið hefur á umhverfi sitt, koma aldrei fram í skýrslum þeirra. Norðurál sýnir svo einnig mikinn metnað í því að gera sem minnst úr þeim áhrifum, sem þó sjást. Ekki er að undra, þegar svo gríðar­legir hagsmunir felast í því að allt líti sem best út á pappírum. En rétt er þó, eins og þau benda sjálf á, að farið er eftir lögum í einu og öllu. En við hvern er þá að sakast? Liggur ábyrgðin hjá iðju­verunum sjálfum? Hjá Umhverfis- og Skipulags­stofnun? Er reglu­verkið ekki nógu stíft? Og hvers vegna fær náttúran aldrei að njóta vafans í stað iðnaðarins?

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár