Svæði

Ísland

FréttirOrka Energy-málið

Orka Energy komst í „stjórn­skipulega stöðu“ í Kína út af ákvörðun Illuga

Utan­ríkis­ráðuneytið rökstyður ákvörðun Illuga Gunnars­sonar um að skipa Orku Energy sem framkvæmdar­aðila íslenska ríkisins í Kína. Einungis ríkis­fyrirtæki með „stjórn­skipulega stöðu“ skipuð sem framkvæmdar­aðilar fyrir hönd ríkisins en á þessu var gerð breyting í tilfelli Orku Energy. Ráðuneytið getur ekki gefið eitt annað dæmi um tilfelli þar sem einka­fyrirtæki urðu framkvæmdar­aðilar erlendis.
Fréttir

Komu að einu ólöglegu einka­væðingunni og hafa aldrei skilað ársreikn­ingum

Einka­væðing Íslenskra aðal­verktaka var dæmd ólögleg í Hæstarétti Íslands árið 2008. Kaup­verðið á 40 prósentum í fyrir­tækinu var tveir milljarðar en á næstu tveimur árum þar á eftir voru 4,3 milljarðar teknir í arð úr fyrir­tækinu og ein af eignunum var seld á tæpa 12 milljarða. Starfs­maður Ríkis­skattstjóra segir að unnið sé að því að setja ný lög með strangari viðurlögum gegn því að skila ekki ársreikn­ingum.
Viðtal

Malín Brand, þú ert handtekin

Fjölmiðla­konan Malín Brand, 34 ára, hefur á örfáum mánuðum misst vinnuna, heimili sitt og mannorðið. Allt frá því að upp komst um fjár­kúg­un­armál systur hennar, Hlínar Einars­dóttur, á hendur forsætis­ráðherra og aðild Malínar hefur líf hennar farið algjör­lega á hvolf. Við þetta bættist að samstarfs­maður, sem sakaður er um nauðgun og greiddi miska­bætur, kærði systurnar fyrir að hafa beitt sig fjárkúgun. Það mál er til rann­sóknar líkt og fjár­kúgunin á hendur Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni. Malín er í dag atvinnu­laus og úthrópuð. Hún segir hér sögu sína.

42 mín. lestur

Úttekt

Gekk í sjóinn eftir frávísun frá geðdeild

Íslendingar eru heims­meistarar í geðlyfja­notkun en aukaverkanir vegna þeirra geta verið mjög alvarlegar. Stjórn­völdum hefur ítrekað verið bent á ósamræmið í niður­greiðslu á heilbrigðis­þjónustu hér á landi, án árangurs. Dæmi eru um að fólk sé á geðlyfjum í mörg ár án þess að fá rétta greiningu eða að hafa nokkurn tíma hitt sálfræðing eða geðlækni, þótt klínískar leið­beiningar kveði á um að sálfræði­meðferð eigi að vera fyrsta val. Meðaltími hjá sálfræðingi kostar á bilinu 8 til 15 þúsund krónur og hefur efnaminna fólk ekki aðgengi að þeirri þjónustu.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár