Svæði

Ísland

Viðtal

„Við ætlum ekki að leyfa honum að vinna“

Nína Rún Bergs­dóttir var fjórtán ára þegar Róbert Árni Hreiðarsson braut á henni. Ofbeldið hafði gríðarlegar afleiðingar í för með sér, en það var ekki fyrr en Nína reyndi að kveikja í sér inni á salerni á barna- og unglinga­geðdeild Land­spítalans að hún fékk aðstoð við hæfi. Hér segir Nína, ásamt foreldrum sínum og stjúpmóður, frá afleiðingum kynferðis­ofbeldisins, barátt­unni fyrir viðeigandi aðstoð og óréttlætinu sem þau upplifðu þegar gerandinn hlaut uppreist æru.

20 mín. lestur

Viðtal

„Mér fannst lítið gert úr minni upplifun“

Halla Ólöf Jóns­dóttir kærði Róbert Árna Hreiðarsson fyrir kynferðis­brot árið 2007, en þrátt fyrir að hafa verið dæmdur var honum ekki gerð refsing. Róbert Árni beitti blekkingum í gegnum „Ircið“ og samskipta­forritið MSN til þess að ávinna sér traust Höllu þegar hún var á tánings­aldri, fékk hana til þess að eiga í kynferðis­legum samskiptum við sig í gegnum netið og síma og braut síðan gegn henni á tjaldsvæði á Akureyri þegar hún var sautján ára gömul.

19 mín. lestur

Fréttir

Farlama faðir og ellefu ára dóttir send úr landi

Abrahim Maleki og ellefu ára gömul dóttir hans, Hanyie, verða send úr landi á næstu vikum en Útlendinga­stofnun hefur hafnað beiðni þeirra um efnislega meðferð á umsókn um hæli hér. Litla stúlkan hefur þurft að annast föður sinn síðustu ár en hann er bæklaður eftir bílslys. Feðginin, sem eru afganskir flótta­menn, lentu í miklum lífsháska á leið sinni yfir Miðjarðar­hafið og eru heppin að vera á lífi.

Mest lesið undanfarið ár