Svæði

Ísland

FréttirACD-ríkisstjórnin

Þrjár rang­færslur Þorsteins Víglunds­sonar í embætti ráðherra

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttis­mála­ráðherra, hefur í þrígang síðan í lok apríl verið staðinn að rang­færslum. Fyrst setti hann fram rangar tölur um útgjöld Land­spítalans í viðtali við Morgun­blaðið. Svo hélt Þorsteinn því ranglega fram í tölvu­pósti til þingmanna og framkvæmda­stjóra Staðla­ráðs að staðall ráðsins væri opinber eign. Nú síðast fór Þorsteinn með rangt mál um kjör lífeyrisþega. Í ekkert skipti hefur Þorsteinn leiðrétt sig eða beðist afsökunar á rangherminu.
Fréttir

Jón Steinar segir að þolendum Róberts myndi líða betur ef þeir fyrirgæfu brotin

Jón Steinar Gunnlaugsson segir að þolendum kynferðis­glæpa líði betur ef þeir fyrirgefa brotin í stað þess að „ganga sinn æviveg uppfullir af hatri“. Fólk eigi að skammast sín fyrir framgöngu sína gagnvart Róberti Downey og láta hann í friði. Svo virðist sem það sé jafnvel betra að tapa dómsmálum sem tengjast kynferðis­brotum vegna viðbragða almennings. Sjálfur hafi hann verið sakaður um annarlegar hvatir gagnvart unglings­stúlkum í umfjöllun um málið.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­rekin heilsu­gæsla tekur starfs­fólk frá þeirri opinberu

Loforð um að frekari einka­væðing í heilsu­gæslunni myndi skila íslenskum læknum heim hafa ekki staðist. Tvær nýjar einka­reknar stöðvar taka til starfa á höfuð­borgar­svæðinu í sumar og eru þær að mestu mannaðar fyrr­verandi starfs­fólki opinberra heilsu­gæslustöðva. Þá ákvað ríkis­stjórnin að leiða ekki í lög arðgreiðslu­bann af rekstri heilsu­gæslustöðva en gera það að samnings­skilmálum sem endur­skoðaðir verða eftir rúm fjögur ár.

Mest lesið undanfarið ár