Seðlabankinn greiðir upp lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Seðla­banki Íslands hefur ákveðið að greiða fyr­ir­fram eft­ir­stöðvar láns frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum (AGS). Um er að ræða end­ur­greiðslu að jafn­virði um 42 millj­arða króna, með gjald­daga 2015 og 2016. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands.

„Lausa­fjár­staða Seðla­bank­ans er rúm um þessar mundir, meðal ann­ars vegna við­skipta bank­ans á inn­lendum gjald­eyr­is­mark­aði. Því er svig­rúm til að minnka skamm­tíma­skuldir í erlendum gjald­eyri. Með fyr­ir­fram­greiðsl­unni lækka erlendar skuldir þjóð­ar­bús­ins og Seðla­bank­ans. Seðla­bank­inn var lán­taki þar sem hann er fjár­hags­legur aðili að AGS fyrir hönd íslenska rík­is­ins og er því ekki um að ræða bein áhrif á skuldir rík­is­sjóðs. Gjald­eyr­is­forði dregst saman vegna ofan­greindrar skulda­stýr­ingar,“ segir í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands.



Lánið frá AGS var tekið í tengslum við efna­hags­á­ætlun stjórn­valda hér á landi og AGS í kjöl­far banka­hruns­ins í októ­ber 2008. Heild­ar­fjár­hæð láns­ins, sem tekið var í áföngum í sam­ræmi við efna­hags­á­ætl­un­ina, nam um 250 millj­örðum króna (1.400 millj­ónum SDR) þegar áætl­un­inni lauk í ágúst 2011. Ísland tók einnig lán frá Norð­ur­lönd­unum, Færeyjum og Póllandi að fjár­hæð 304 millj­örðum króna (1.970 millj­ónir evra) í tengslum við efna­hags­á­ætl­un­ina en þau lán voru greidd fyr­ir­fram á árunum 2012 til 2015. „Með upp­greiðslu AGS-láns­ins lýkur jafn­framt eft­ir­fylgni Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins hér á landi í kjöl­far loka efna­hags­á­ætl­un­ar­innar (e. post program mon­itor­ing),“ segir í til­kynn­ing­unni.


Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri segir að upp­greiðsla láns­ins frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum fyrr en áætlað var sé til marks um „ágætan árangur af efna­hags­á­ætl­un­inni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár