Leggja til að RÚV fari af auglýsingamarkaði - Fjölmiðlaskýrslan komin út

Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hefur lokið störfum og afhenti skýrslu sína í dag.

Lilja Alfreðsdóttir og Björgvin Guðmundsson
Lilja Alfreðs­dóttir og Björgvin Guð­munds­son Mynd: Aðsend mynd

Nefnd um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hefur lokið störfum og afhenti skýrslu sína í dag. Í skýrsl­unni er ítar­leg umfjöllun um stöðu fjöl­miðla bæði hér á landi og erlendis og útskýrt að rekstr­ar­erf­ið­leika megi helst rekja til breyttra for­sendna til tekju­öfl­unar. Nefndin gerir til­lögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstr­ar­skil­yrði fjöl­miðla.

Þær snúa meðal ann­ars að stöðu Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði, skatta­legu umhverfi, textun og tal­setn­ingu og end­ur­greiðslu fram­leiðslu­kostn­aðar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá er einnig ítar­leg sam­an­tekt um opin­beran stuðn­ing við fjöl­miðla í helstu nágranna­ríkjum auk sér­á­lits tveggja nefnd­ar­manna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu sem gefin var út í dag.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra fagnar til­lögum og grein­ar­gerð nefnd­ar­innar og telur þær mjög gagn­legar við frek­ari und­ir­bún­ing aðgerða af hálfu stjórn­valda til að styrkja rekstr­ar­grund­völl frjálsra fjöl­miðla á Íslandi, segir í til­kynn­ing­unni. Jafn­framt segir að í skýrsl­unni sé dregið skýrt fram að áskor­anir í rekstri fjöl­miðla eru ekki ein­göngu bundnar við Ísland heldur eru einnig við­fangs­efni stjórn­valda í nágranna­ríkjum okkar.

„Nefndin lagði ekki sér­stakt mat á hvaða áhrif hver til­laga hefði á rekstur rík­is­sjóðs. Að mati ráð­herra er nauð­syn­legt að kostn­að­ar­mat liggi fyrir áður en ákvarð­anir eru teknar um til hvaða aðgerða skal grípa og útfærslur á þeim. Ljóst er hins vegar að hægt er að bregð­ast fljótt við til­lögu um lækkun virð­is­auka­skatts og mun ráð­herra óska eftir því að nú þegar verði athugað hvort hægt sé að sam­ræma álagn­ingu virð­is­auka­skatts á fjöl­miðla þannig að hann verði í öllum til­vikum í neðra þrepi.

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur ákveðið að setja strax af stað frek­ari stefnu­mótun innan ráðu­neyt­is­ins um stöðu fjöl­miðl­unar hér á landi. Þar verða áhrifin metin af fyr­ir­hug­uðum aðgerðum. Leitað verður eftir sam­vinnu og sam­starfi við hags­muna­að­ila, stjórn­mála­flokka og almenn­ing. Mark­miðið er að ná breiðri sátt um starf­semi fjöl­miðla og hugs­an­lega aðkomu rík­is­ins að lýð­ræðis- og menn­ing­ar­hlut­verki þeirra,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í nefnd­inni sátu Björgvin Guð­munds­son, for­maður, með­eig­andi KOM ráð­gjafar, Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, Hlynur Ingason, starfs­maður í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, Soffía Har­alds­dóttir, fyrrum fram­kvæmda­stjóri mbl.is, og Svan­björn Thorodd­sen, með­eig­andi KPMG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár