Pressa
Pressa #13

Pressa #13: Dauði Navalny, mál Assange og út­lend­inga­mál í Pressu

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, og Gunnar Smári Egilsson, sjónvarpsmaður á Samstöðinni og formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, taka þátt í umræðum í Pressu. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, ræðir stöðuna í máli Julian Assange.
· Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson

Dauði rússneska stjórnarandstæðingsins Alexei Navalny í rússnesku fangelsi, yfirvofandi framsal blaðamannsins Julian Assange til Bandaríkjanna og staða útlendingamála á Íslandi verða til umræðu í Pressu í dag, föstudaginn 23. febrúar.

Rætt verður við Kristinn Hrafnsson, ritstjóra Wikileaks, sem staddur er í Lundúnum þar sem von er á niðurstöðu varðandi framsal Assange á hverri stundu. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, og Gunnar Smári Egilsson, sjónvarpsmaður á Samstöðinni og formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, verða við umræðuborðið í þættinum. 

Navalny dó í haldi rússneskra stjórnvalda í Síberíu þann 16. febrúar síðastliðinn, þar sem hann afplánaði níu ára fangelsisdóm fyrir að skipuleggja og fjármagna starfsemi öfgasamtaka. Hann var einn mest áberandi stjórnarandstæðingur Rússlands og hafa þjóðarleiðtogar víða krafist þess að stjórnvöld upplýstu að fullu um þá atburðarrás sem leiddi til dauða Navalnys. Fjölskylda hans og samstarfsfólk hefur sagt Vladimir Pútín Rússlandsforseta bera ábyrgð á dauða hans. 

Í Lundúnum er von á niðurstöðu dómara í máli Julian Assange sem gerir nú lokatilraun fyrir dómstólum að koma í veg fyrir að hann verði framseldur til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér hátt í tvö hundruð ára fangelsisdóm fyrir birtingu upplýsinga um stríðs­glæpi bandarískra stjórnvalda. Upplýsingarnar komu fram í trúnaðargögnum bandaríska hersins sem lekið var til Wikileaks og svo birtar. Sannleiksgildi gagnanna er ótvírætt en Bandaríkjastjórn vill fangelsa Assange fyrir njósnir. 

Umræða um útlendingamál hefur verið mikil á Íslandi og hafa verið boðaðar breytingar á umgjörð málaflokks innflytjenda og hælisleitenda. Orð formanns Samfylkingarinnar vöktu svo athygli nýverið en hún sagði að opin landamæri og velferðarkerfi fari ekki saman. Fögnuðu í kjölfar þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokks, sem buðu hana „velkomna á vagninn“, en flokkurinn hafði áður sætt gagnrýni Samfylkingarfólks fyrir harkalega stefnu í málefnum útlendinga. 

Pressa er send út í beinu streymi í hádeginu alla föstudaga á vef Heimildarinnar. Hefst útsendingin klukkan 12.00.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjon Eiríksson skrifaði
    Ég myndi gjarnan viljað geta "kastað" þessu myndbandi í sjónvarpið mitt í gegnum chromecast. Getið þið hjá Heimildinni bætt úr þessu?
    0
    • KB
      Kristinn Björnsson skrifaði
      Þórhildur Sunna Ævarsdóttir átti stórleik í þessum þætti, sérstaklega með lokaorðum sínum.
      1
      Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
      Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
      Pressa

      Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

      Það sem ég á Bjarna Ben að þakka
      Sif

      Það sem ég á Bjarna Ben að þakka

      Hvenær hefðu fyrrum forsetar átt að nýta málskotsréttinn?
      Pressa

      Hvenær hefðu fyrr­um for­set­ar átt að nýta mál­skots­rétt­inn?

      Baldur segist persónulega vera á móti íslenskum her
      Pressa

      Bald­ur seg­ist per­sónu­lega vera á móti ís­lensk­um her