Komst að því hvað hann átti í Kaupþingi þegar hann las skýrslu Rannsóknarnefndar

Egill Ágústs­son, for­stjóri Íslensk Ameríska, segir að syst­ur­sonur konu hans, sem starf­aði hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg hafi haft sam­band við hann að beiðni Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, þá for­stjóra Kaup­þings, og Magnúsar Guð­munds­sonar, þá for­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, til að fá Egil til að kaupa hluta­bréf í Kaup­þingi í upp­hafi árs 2008. Hann hafi á þeim tíma ekki átt nein bréf í bank­anum. Eftir að Egill hafi sagst ekki hafa áhuga á að kaupa nein hluta­bréf sagði syst­ur­sonur konu hans, Einar Bjarni Sig­urðs­son sem var líka við­skipta­stjóri Egils, að hann gæti fengið hluta­bréfið ein­göngu með veði í bréf­unum sjálfum og að hann þyrfti ekki að leggja fram neinar trygg­ingar. Engin áhætta átti að vera fyrir Egil af þessum við­skiptum. Þetta kom fram í vitna­leiðslum yfir Agli í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings í morgun. Frá þessu er greint á Vísi.is.

Í kjöl­farið hafi félag Egils keypt hluti í Kaup­þingi fyrir alls 13,4 millj­arða króna fram að banka­hruni, allt fyrir lánsfé úr Kaup­þingi. Egill segir að þorri þeirra kaupa hafi átt sér stað án þess að haft væri sam­band við hann. Bréfin hafi ein­fald­lega verið keypt án hans vit­neskju.

Þegar sak­sókn­ari spurði Egil um hvenær hann hefði kom­ist að því að félag hans, sem hét Desulo Trading, hefði átt í þessum miklu við­skiptum með hluta­bréf í Kaup­þingi sagði Egill: „Þegar ég las Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis.”

Alls eru níu fyrrum starfs­menn Kaup­þings ákærðir í mál­inu. Þeirra á meðal eru Hreiðar Már, Magnús og Sigurður Ein­ars­son, fyrrum starf­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings. Ákærðu er gefið að sök að hafa ýmist komið í veg fyrir eða hægt á lækkun á verði hluta­bréfa í Kaup­þingi, frá hausti 2007 og fram að falli bank­ans haustið 2008, og aukið selj­an­leika þeirra með „kerf­is­bundnum“ og „stór­felldum“ kaupum, eins og segir í ákæru, í krafti fjár­hags­legs styrks bank­ans.

Fékk 13,4 milljarða króna að láni


Forsaga þessa anga máls­ins, sem var til umfjöll­unar í morgun, er sú að Kaupþing hafði sam­band við Egil árið 2008 og bað hann um að eiga eign­ar­laust félag sem kall­að­ist Desulo Trading og var skráð á Kýpur. Frá því í maí 2008 og fram að banka­hruni lán­aði Kaupþing þessu eign­ar­lausa félagi 13,4 millj­arða króna til að kaupa hluta­bréf í Kaup­þingi, mest megnis af Kaup­þingi. Síðasta lán­veit­ingin til þessa var fram­kvæmd 25. sept­em­ber 2008, sama dag og per­sónu­legar ábyrgðir starfs­manna Kaup­þings á lánum til hluta­bréfa­kaupa voru felldar niður,og örfáum dögum áður en bank­inn féll. Hún var upp á rúma fjóra millj­arða króna.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kemur auk þess fram að Desulo, sem átti þá minna en ekk­ert, þar sem hluta­bréfin í Kaup­þingi höfðu lækkað tölu­vert í verði, hafi gert fram­virkan kaup­samn­ing um hluta­bréf í finnska félag­inu Sampo í sept­em­ber 2008 upp á tæp­lega 30 millj­arða króna. Sampo var í eigu Exista, stærsta eig­anda Kaup­þings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár