51.538 skrifuðu undir á þjóðareign - afhenda forsetanum síðar í júlí

51.538 nöfn voru skrifuð á und­ir­skrifta­list­ann Þjóð­ar­eign.is, en söfnun und­ir­skrifta lauk á mið­nætti á fimmtu­dag. Und­ir­skrifta­söfn­unin er sú fimmta stærsta í sögu Íslands. Aðstand­endur söfn­un­ar­innar munu afhenda for­seta Íslands und­ir­skrifta­list­ann í þarnæstu viku.

Í áskor­un­inni sem fólk skrif­aði undir var skorað á Ólaf Ragnar Grímsson, for­seta Íslands, að vísa í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu mak­ríl­frum­varpi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sem náði á end­anum ekki fram að ganga, og hverjum þeim lögum sem þar sem fisk­veiði­auð­lindum er ráð­stafað til meira en eins árs á meðan ekki er skýrt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá.

Aðstand­endur und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar voru þau Agnar K. Þor­steins­son, Bolli Héð­ins­son, Guðrún Pét­urs­dóttir, Henný Hinz, Jón Sig­urðs­son, Jón Steins­son og Þorkell Helgason.

Í sam­tali við mbl.is segir Bolli að aðstand­endur séu gríð­ar­lega sáttir við þátt­tök­una, alveg hafi verið ófyr­ir­séð hversu margar und­ir­skriftir hafi safn­ast og fjöld­inn hafi komið skemmti­lega á óvart.

Aðstand­endur söfn­un­ar­innar eru þó við­búnir því að ein­hver nöfn falli út. Nú verði und­ir­skrift­irnar sam­keyrðar við þjóð­skrá og þau nöfn fjar­lægð sem ekki passa. Það sé búið að gera þetta jafn­óðum að ein­hverju leyti en nú verði loka­yf­ir­ferð og ekki mjög margar und­ir­skriftir ættu að falla burt. Að þessu loknu verður list­inn afhentur Ólafi Ragnari.

Fimmta stærsta undirskriftasöfnunin


Áður en ráð­ist var í þessa und­ir­skrifta­söfnun tók Kjarninn saman frétta­skýr­ingu um und­ir­skrifta­safn­anir á und­an­förnum árum. Á þeim lista kemst þjóð­ar­eign í fjórða sætið. Tæplega 54 þús­und manns skrif­uðu undir áskorun um að áfram­hald við­ræðna við ESB færu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í fyrra og árið 2010 skrif­uðu ríf­lega 56 þús­und manns undir lista gegn Icesave 2. Fjöl­menn­asta und­ir­skrifta­söfn­unin er hjartað í Vatns­mýri, sem ráð­ist var í árið 2013.

Ef litið er til lengri tíma kemur und­ir­skrifta­söfn­unin Varið land, sem ráð­ist var í árið 1974, inn í þriðja sætið, en tæp­lega 56 þús­und manns skrif­uðu undir hana. Þetta kemur fram í sam­an­tekt sagn­fræð­ings­ins Stefáns Páls­sonar frá því í maí. Samkvæmt þeim lista er þjóð­ar­eign í fimmta sæti yfir stærstu und­ir­skrifta­safn­an­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár