Skattrannsóknarstjóri beindi 96 málum í refsimeðferð árið 2018

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri lauk rann­sókn 97 mála á árinu 2018. Und­an­dregnir skatt­stofnar í þeim málum nema millj­örðum króna.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri lauk rann­sókn 97 mála á árinu 2018. Und­an­dregnir skatt­stofnar í þeim málum nema millj­örðum króna. Eru þá ótalin þau mál sem unnið var að en voru felld niður þegar rann­sókn þeirra leiddi í ljós að ekki væri til­efni til afskipta skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Auk þeirra þau til­vik sem að lok­inni frum­at­hugun reynd­ust ekki kalla á frek­ari aðgerðir.

Þetta kemur fram á vef skatt­rann­sókn­ar­stjóra ríks­ins í dag.

Þar segir jafn­framt að á árinu 2018 hafi skatt­rann­sókn­ar­stjóri beint 96 málum í refsi­með­ferð á grund­velli nið­ur­staðna rann­sókna sinna. Þar af hafi 60 málum verið vísað til með­ferðar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara en 27 málum vísað til sekt­ar­með­ferðar hjá yfir­skatta­nefnd. Í níu málum hafi verið geng­ist undir sekt hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Hefði rann­sókn þess­ara 96 mála ýmist lokið á árinu 2018 eða á árinu 2017.

Nú í byrjun mars 2019 er refsi­með­ferð ólokið í 104 málum sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur sent til refsi­með­ferðar. Þar af eru 98 mál í með­ferð hjá hér­aðs­sak­sókn­ara en 6 hjá yfir­skatta­nefnd, sam­kvæmt emb­ætt­inu.

Mikilvægt að mál fái hraða meðferð

Þá kemur fram hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra að mik­il­vægt sé að þau mál sem eru til með­ferðar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara fái hraða með­ferð í ljósi dóma hjá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu (MDE) um tvö­falda refsi­með­ferð.

Fjárhæð sekta vegna mála frá skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem voru dæmdar, úrskurð­aðar eða sam­þykktar á árinu 2018 nema sam­tals um 2,4 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár