Sami morgunmatur alla dagaSiggi er hraustur og þakkar hollu og góðu mataræði fyrir góða heilsu. Hann fær sér sama morgunmat á hverjum morgni, sem er hafragrautur með súru slátri, og alltaf tvær skeiðar af lýsi með. En á sunnudögum gerir hann vel við sig og fær sér skyr og kornflex í morgunmat.Mynd: Heiða Helgadóttir
Siggi er meðal síðustu sauðfjárbændanna í Árneshreppi á Ströndum. Hann er 81 árs og býr í húsinu þar sem hann ólst upp. Hann hefur alltaf búið þar, fyrir utan tvo vetur. Heiða Helgadóttir ljósmyndari fylgdist með sauðburði hjá Sigga.
Á bænum Litlu-Ávík á Ströndum er nú sauðburður í fullum gangi.
Bóndinn á bænum, Sigursteinn Sveinbjörnsson, eða Siggi eins og hann er alltaf kallaður, er 81 árs gamall og býr einn í húsinu sem hann ólst upp í, en hann tók við búinu af mömmu sinni og stjúpa. Siggi vann einu sinni í fiski í Sandgerði í tvo vetur, annars hefur hann alltaf búið á Litlu-Ávík.
„Mitt líf hefur snúist um sauðfé og rekavið, ég þekki lítið annað,“ segir hann.
Út um eldhúsgluggannNorðurfjörður á Ströndum blasir við og stórkostlegur fjallahringurinn í kring.
Mynd: Heiða Helgadóttir
Í þorpið þrisvar á áriSiggi fer sjaldan af bæ. Hann fer til Hólmavíkur um það bil þrisvar á ári til að sinna ýmsu eins og viðhaldi á bílnum og þvílíkt. En til Reykjavíkur fer hann eins sjaldan og hann …
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir