Al Thani dómurinn mikilvægur - „Almenningi í hag“

Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, segir dóm Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu svo­kall­aða vera mik­il­vægan fyrir trú­verð­ug­leika skráðs hluta­bréfa­mark­aðar hér á landi, sem verði að grund­vall­ast af trausti fjár­festa á leik­regl­unum sem við­skiptilífið þurfi að fara eftir. „Dómur Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu hefur mikla þýð­ingu fyrir hluta­bréfa­mark­að­inn. Trú­verð­ug­leiki hluta­bréfa­mark­aðar grund­vall­ast á trausti á þeirri umgjörð sem honum er búin. Í þessu sam­hengi skiptir nið­ur­staða Hæsta­réttar á lög­mæti til­tek­innar hátt­semi í við­skiptum miklu máli,“ segir Páll.

Í Al Thani mál­inu voru Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, fjár­festir og stærsti ein­stak­lings­eig­andi Kaup­þings fyrir fall bank­ans, dæmdir í fang­elsi fyrir mark­aðs­mis­notkun, og síðan voru allir nema Ólafur dæmdir fyrir umboðs­svik einnig. Sigurður fékk fjög­urra ára óskil­orðs­bundið fang­elsi, Hreiðar Már fimm og hálft ár, Magnús fjögur og hálft ár og Ólafur einnig fjögur og hálft ár.

[caption id="attachment_20797" align="alignleft" width="141"] Páll Harð­ar­son, for­stjóri Nasdaq Kaup­hallar Íslands, og doktor í hag­fræði frá Yale háskóla.[/caption]

Páll segir dóm Hæsta­réttar vera skýra leið­bein­ingu um hvernig hlut­irnir eigi að vera. „Hvar hann dregur lín­una í þessum efnum hlýtur að ráða miklu um mat fjár­festa á þeirri vernd sem þeir búa við. Nið­ur­stöður dóms­mála geta því ráðið úrslitum um hvort fjár­festar eru til­búnir til að setja traust sitt á almenn­ings­hluta­fé­lög og veita þeim fjár­magn sem er for­senda fyrir því að slík félög verði drif­kraftur í íslensku efna­hags­lífi. Í Al Thani mál­inu eru máls­at­vik afskap­lega skýr og nið­ur­staðan gefur til kynna að brotin hafi verið alvar­leg og beinst gegn almenn­ingi,“ segir Páll.

Hann segir enn fremur, að nið­ur­staða Hæsta­réttar sé afger­andi og almenn­ing í hag. „Hún er almenn­ings­hluta­fé­lag­inu í hag, hún er almenn­ingi í hag og hún er íslensku efna­hags­lífi í hag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár