Sæstrengurinn ræddur í þaula - Afstaða Breta „mun ekkert breytast“

„Eftir tvær vikur eru þing­kosn­ingar í Bret­landi, og eitt sem ég get lofað ykkur er að afstaða Breta til þessa verk­efnis mun ekk­ert breyt­ast, hvernig sem þær fara,“ sagði Charles Hendry, fyrr­ver­andi ráð­herra orku- og lofts­lags­mála Bret­landi, á opnum fundi um lagn­ingu raf­orku­sæ­strengs milli Bret­lands og Íslands, sem fram fór í morgun.

Kjarninn, í sam­starfi við Íslensk verð­bréf, stóð fyrir fund­inum en hann fór fram á Hótel Sögu í morgun.

Frum­mæl­endur voru Sigþór Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Íslenskra verð­bréfa, og fyrr­nefndur Charles Hendry. Þátt­tak­endur í pall­boði að loknum erindum þeirra voru Ragna Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar, og Gunnar Bald­vins­son, for­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða.

Sigþór fór í erindi sínu yfir sæstrengs­verk­efnið, sögu­legan bak­grunn þess, við­skipta­for­sendur og mögu­lega fjár­mögn­un­ar­að­ferð, en hann rann­sak­aði verk­efnið ítar­lega í loka­verk­efni sínu í fram­halds­námi við Háskóla Íslands.

Sigþór sagði, að virði orku­auð­linda þjóð­ar­innar hefði marg­fald­ast á skömmum tíma, og það væri brýnt hags­muna­mál fyrir þjóð­ina og almenn­ing að skoða lagn­ingu sæstrengs til Bret­lands gaum­gæfi­lega. Álita­málin væru fjöl­mörg, en það væri óum­deilt í dag að verk­efnið væri vel raun­hæft og allt benti til að það væri mjög arð­bært. Verðið sem hægt væri að fá fyrir hvert mega­vatt af raf­orku væri marg­falt hærra en feng­ist fyrir verðið til stór­iðj­unnar hér á landi í dag, og því ætti að skoða verk­efnið með opnum huga.

Charles Hendry, sem var orku­mála­ráð­herra Breta þegar vilja­yf­ir­lýs­ing var und­ir­rituð ásamt stjórn­völdum hér á landi fyrir þremur árum og starfar nú sem ráð­gjafi þar sem meðal ann­ars er horft til þess að leggja sæstreng milli Íslands og Bret­lands, sagði sæstreng milli Íslands og Bret­lands geta falið í sér í mikil tæki­færi, fyrir Ísland og Bretland. Margt benti til þess að sæstreng­ur­inn til Íslands væri fýsi­legri kostur en margir aðrir mögu­leikar í þessum efnum, sem Bretar væru nú með á teikni­borð­inu.

Þá fór hann enn fremur ítar­lega fyrir þær áskor­anir sem Bretar standa frammi fyrir í orku­málum, ekki síst til þess að geta náð mark­miðum um að auka vægi umhverf­is­vænna orku­gjafa og tryggja betur orku­ör­yggi lands­ins á næstu árum. Þær áskor­anir væru risa­vaxnar, í öllu sam­hengi, og áhugi Breta á teng­ingnum með sæstrengjum væri haf­inn yfir allt póli­tísk dæg­ur­þras, þar sem allir flokkar hefði sam­mælst um mik­il­vægi máls­ins.

Nánari umfjöllun um efni fund­ar­ins, og þær upp­lýs­ingar sem fram komu á honum, mun birt­ast á vef Kjarnans á næst­unni, og frek­ari fund­ar­höld um þetta mál­efni, þar sem fjallað verður um aðrar hliðar þessa umfangs­mikla verk­efn­is­ins en þær sem í dag voru til umfjöll­unar, eru fyr­ir­huguð.

[caption id="attachment_26372" align="alignnone" width="548"] Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri var fund­ar­stjóri. Mynd: Anton.[/caption]

[caption id="attachment_26370" align="alignnone" width="548"] Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, fylgd­ist með fund­inum. Mynd: Anton.[/caption]

[caption id="attachment_26363" align="alignnone" width="548"] Vel var mætt á fund­inn, sem var opinn öllum. Hann fór fram á Hótel Sögu. Mynd: Anton.[/caption]

[caption id="attachment_26378" align="alignnone" width="548"] Erindi Sigþórs Jóns­sonar og Charles Hendry, voru ítar­leg og fjöll­uðu um bak­grunn verk­efn­is­ins og við­skipta­legar for­sendur þess. Mynd: Anton.[/caption]

[caption id="attachment_26362" align="alignnone" width="548"] Ragna Árna­dóttir og Gunnar Bald­vins­son tóku þátt í pall­borðsum­ræðum, og lýstu bæði yfir áhuga sínum á verk­efn­inu. Mynd: Anton.[/caption]

[caption id="attachment_26389" align="alignnone" width="548"] Sigþór Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Íslenskra verð­bréfa, var þátt­tak­andi í pall­borðsum­ræðum, sem Þórunn Elísabet Boga­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarnans, stýrði. Mynd: Anton.[/caption]

[caption id="attachment_26371" align="alignnone" width="548"] Sigþór Jónsson, Charles Hendry og Ragna Árna­dóttir. Mynd: Anton.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár