Hauck & Auf­häuser-blekkingin opinberuð á miðvikudag

Rann­sókn­ar­nefnd er með gögn undir höndum sem sýna að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaupum á Bún­að­ar­bank­anum var blekk­ing. Kaupþing virð­ist hafa hannað gjörn­ing­inn með aðkomu aflands­fé­lags.

Skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis á aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser á kaupum á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum snemma árs 2003 er til­búin og verður gerð opin­ber á mið­viku­dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Í Frétta­blað­inu í morgun er greint frá bréfi sem rann­sókn­ar­nefndin hefur sent til ýmissa ein­stak­linga sem komu að kaup­unum. Á meðal þeirra eru Ólafur Ólafsson, sem leiddi S-hóp­inn, og Sigurður Ein­ars­son, sem varð starf­andi stjórn­ar­for­maður sam­ein­aðs banka Bún­að­ar­bank­ans og Kaup­þings. Í bréf­unum kemur fram að rann­sókn­ar­nefndin, sem sam­anstendur af hér­aðs­dóm­ar­anum Kjartani Björg­vins­syni, hafi gögn undir höndum sem sýni að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum hafi í reynd aðeins verið að nafn­inu til. Kaupin hafi verið fjár­mögnuð í gegnum aflands­fé­lagið Welling & Partners, með heim­il­is­festi á Bresku-Jóm­frú­areyj­unum, og gerðir voru samn­ingar um ann­ars vegar sölu­rétt og hins vegar veð- og trygg­ing­ar­ráð­staf­anir. Þá var Hauck & Auf­häuser tryggð skað­leysi af þátt­töku sinni í við­skipt­unum. Fyrir aðkomu sína fékk Hauck & Auf­häuser greidda þóknun.

Sam­an­dregið virð­ist nið­ur­staða nefnd­ar­innar, sem verður kynnt opin­ber­lega á mið­viku­dag, vera sú að kaup Hauck & Auf­häuser í Bún­að­ar­bank­anum hafi verið mála­mynda­gjörn­ingur sem hópur Íslend­inga stóð að. Um er að ræða ein­stak­linga sem tengd­ust kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum af íslenska rík­inu og starfs­menn Kaup­þings, sem virð­ast hafa hannað gjörn­ing­inn. Bún­að­ar­bank­anum og Kaup­þingi var rennt saman þremur mán­uðum eftir að kaup S-hóps­ins á ráð­andi hlut í Bún­að­ar­bank­anum voru frá­gengin. Tveimur árum eftir kaupin var Hauck & Auf­häuser búinn að selja sig alfarið út úr Bún­að­ar­bank­anum.

Frægasti leppur Íslandssögunnar

Sú skýr­ing sem gefin var um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum hefur lengi verið dregin í efa og því oft verið haldið fram í opin­berri um­ræðu að bank­inn hafi verið leppur fyrir ráð­andi aðila í S-hópn­um.

Þá hefur sú skoðun verið mjög ríkj­andi lengi að einka­væð­ing rík­is­bank­anna tveggja, Lands­banka Íslands og Bún­að­ar­bank­ans, hafi farið fram eftir meintri helm­inga­skipta­reglu þáver­andi stjórn­ar­flokka, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Samkvæmt þeirri kenn­ingu fengu Björg­ólfs­feðgar, sem þóttu Sjálf­stæð­is­flokknum þókn­an­legir, að kaupa Lands­bank­ann og Kjartan Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sat áfram í banka­ráði hans eftir einka­væð­ingu. S-hóp­ur­inn fékk að kaupa Bún­að­ar­bank­ann, en hann var leiddur af Ólafi Ólafs­syni kenndum við Samskip, sem hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm vegna Al Thani-máls­ins svo­kall­aða, og Finni Ing­ólfs­syni, þá for­stjóra VÍS en áður vara­for­manni og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Finnur var þá til­tölu­lega nýhættur sem seðla­banka­stjóri.

Í júní 2016 sendi Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, bréf til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd til að kom­ast til botns í aðkomu þýska einka­bank­ans Hauck &Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003. Þetta ætti að gera vegna þess að Tryggvi hefði nýjar upp­lýs­ingar sem byggðu á ábend­ingum um hver raun­veru­leg þátt­taka þýska bank­ans var. Kjarninn greindi frá því í kjöl­farið að þær upp­lýs­ingar hafi meðal ann­ars snúið að því að Kaupþing, sem var sam­ein­aður Bún­að­ar­bank­anum skömmu eftir að söl­una á bank­anum, hafi fjár­magnað Hauck & Auf­häuser.

Davíð vildi lögreglurannsókn

Finnur Ing­ólfs­son var sá fyrsti úr S-hópnum sem brást við frétt­unum. Í sam­tali við Frétta­blaðið neit­aði hann því að kann­ast við að Hauck & Auf­häuser hefði verið leppur og bar meðal ann­ars fyrir sig skoðun rík­is­end­ur­skoð­unar á ásök­unum þar um frá árinu 2006.

Yfir­stjórn þess einka­væð­ing­ar­ferlis sem átti sér stað á árunum í kringum síð­ustu alda­mót var í höndum rík­is­stjórnar Íslands og fjög­urra manna ráð­herra­nefndar á hennar vegum. Nefndin bar því ábyrgð á söl­unni.

Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisáðherra, vildi að lögreglurannsókn færi fram á kaupunum.
Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­isáð­herra, vildi að lög­reglu­rann­sókn færi fram á kaup­unum.

Í þeirri ráð­herra­nefnd áttu sæti Davíð Oddsson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Halldór Ásgríms­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, Geir H. Haarde, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra auk banka­mála­ráð­herra, sem kom úr röðum Fram­sókn­ar­flokks­ins. Fram til des­em­ber 1999 var sá áður­nefndur Finnur Ing­ólfs­son en eftir það Val­gerður Sverr­is­dóttir.

Bæði Davíð og Val­gerður hafa tjáðu sig um meinta leppun Hauck & Auf­häuser í vik­unni eftir að bréf Tryggva var sent. Val­gerður sagði að upp­lýs­ing­arnar sem fram væru að koma styrktu þann grun um að villt hafi verið um fyrir íslenskum stjórn­völdum á sínum tíma og mögu­lega hafi þýski bank­inn verið leppur fyrir inn­lenda fjár­festa. Davíð sagði við útvarps­þátt­inn Speg­il­inn að hann vilji að málið verði rann­sakað. Líklega hafi þarna pottur verið brot­inn og Davíð vildi ganga lengra en að skipa rann­sókn­ar­nefnd. Hann vildi lög­reglu­rann­sókn.

Hvítþvottarskýrslur Ríkisendurskoðunar

Raunar hefur áður farið fram skoðun á einka­væð­ingu bank­anna. Rík­is­end­ur­skoðun vann skýrslu árið 2003 þar sem nið­ur­staðan var sú að „íslensk stjórn­völd hafi í meg­in­at­riðum náð helstu mark­miðum sínum með einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja á árunum 1998-2003.“ Engar athuga­semdir voru gerðar við það hvernig staðið var að sölu á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins í skýrsl­unni.

Í mars 2006 vann Rík­is­end­ur­skoðun síðan átta blað­síðna sam­an­tekt í kjöl­far fundar Vil­hjálms Bjarna­sonar, núver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem hann lagði fram nýjar upp­lýs­ingar um söl­una á Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins. Vil­hjálmur hefur lengi verið þeirrar skoð­unar, og taldi sig hafa gögn til að sýna fram á, að aðkoma Hauck & Auf­häuser hafi aldrei verið raun­veru­legur eig­andi að hlut í Bún­að­ar­bank­anum.

Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar var sú að ekk­ert sem lagt hafi verið fram í mál­inu hafi stutt víð­tækar álykt­anir Vil­hjálms. „Þvert á móti þykja liggja óyggj­andi upp­lýs­ingar og gögn um hið gagn­stæða,“ segir í skýrslu hennar.

Því hefur Rík­is­end­ur­skoðun tví­vegis sent frá sér skýrslu eða sam­an­tekt þar sem stofn­unin vottar að ekk­ert athuga­vert hafi verið við söl­una á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins og að aðkoma Hauck & Auf­häuser hafi alls ekki verið tor­tyggi­leg.

Kaupþing sameinaðist Búnaðarbankanum þremur mánuðum eftir að S-hópurinn keypti hann.
Kaupþing sam­ein­að­ist Bún­að­ar­bank­anum þremur mán­uðum eftir að S-hóp­ur­inn keypti hann.

Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis fjall­aði einnig um einka­væð­ing­una í skýrslu sinni. Í skýrslu hennar sagði: „Það er ljóst að það væri umfangs­mikið verk ef fjalla ætti í heild um fram­kvæmd einka­væð­ingar eign­ar­hluta rík­is­ins í bönkum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum á árunum 1997 til og með 2003. Rann­sókn­ar­nefnd­inni er ætl­aður tak­mark­aður tími til að sinna þeim verk­efnum sem henni eru fengin[...]Eftir athugun á fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum og með til­liti til þess tíma sem nefndin hafði til að vinna að rann­sókn sinni ákvað hún að beina athugun sinni sér­stak­lega að ákveðnum atriðum sem snerta und­ir­bún­ing og töku ákvarð­ana um sölu á eign­ar­hlutum í Lands­banka Íslands hf. og Bún­að­ar­banka Íslands hf., einkum á síð­ari hluta árs 2002.[...] Nefndin ítrekar að hér er ekki um að ræða heild­ar­út­tekt á einka­væð­ingu bank­anna eða tengdum mál­efnum. Nefndin telur að þau atriði sem valin voru til nán­ari skoð­unar séu þess eðlis að ástæða sé til að stað­næm­ast við þau með til­liti til þess hvernig fór um rekstur hinna einka­væddu banka aðeins nokkrum árum eftir að eign­ar­haldi rík­is­ins lauk.“

Þar sem rann­sókn­ar­nefndin taldi sig ekki hafa svig­rúm til að gera tæm­andi rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna var lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga um slíka rann­sókn í sept­em­ber 2012. Hún var síðan sam­þykkt í nóv­em­ber sama ár. Af þeirri rann­sókn varð aldrei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

einkavæðing

Mest lesið undanfarið ár