Mótmæli Konurnar segja völd færð frá dóms­kerf­inu til emb­ætt­is­manna í nauðg­un­ar­málum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mótmæltu niðurfellingu nauðgunarmála

MeToo Reykjavík-ráðstefnan fór fram í Hörpu í vikunni. Mótmælendur við embætti héraðssaksóknara bentu á að tvö af hverjum þremur málum fari aldrei fyrir dóm.

Á árunum 2002 til 2015 voru 65 pró­sent nauðg­un­ar­mála á Íslandi felld niður af hálfu sak­sókn­ara og fóru aldrei fyrir dóm. Athygli var vakin á þess­ari stað­reynd á #MeTooReykjavík-ráð­stefn­unni sem fram fór í vik­unni. Fjöldi kvenna kom saman við emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara við Skúla­götu á mið­viku­dag til að mót­mæla nið­ur­fell­ingu nauðg­un­ar­mála.

Mót­mæl­endur benda á að ótalin mál hafi einnig verið lögð niður af hálfu lög­reglu. „Sú stað­reynd er ólíð­andi,“ segir í til­kynn­ingu. „Ákvörðun um hvort mál skuli felld niður er tekin af tveimur starfs­mönnum hér­aðs­sak­sókn­ara, sem er skylt að fella niður mál sem telj­ast „ólík­leg til sak­fellis“.

Segja mót­mæl­end­urnir dóms­vald hafa verið fært til emb­ætt­is­fólks með þessum hætti. „Okkur þykir óásætt­an­legt að tveimur af hverjum þremur brota­þolum sé neitað um tæki­færi til að láta á mál sitt reyna fyrir dóm­stól. Mann­rétt­inda­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna er á sama máli og hefur gagn­rýnt þessa fram­kvæmd harð­lega, auk þess sem Stígamót eru að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár