Enn beðið eftir upplýsingum um hver á Dekhill Advisors

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur enn ekki fengið upp­lýs­ingar frá Sviss um aflands­fé­lagið Dekhill Advisors, sem fékk millj­arða króna í fléttu sem ofin var í kringum sölu rík­is­ins á Bún­að­ar­bank­anum árið 2003. Enn er á huldu hver á Dekhill Advisors.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra bíður enn eftir upp­lýs­ingum frá sviss­neskum yfir­völdum um aflands­fé­lagið Dekhill Advisors Limited, skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í jan­úar 2003, sem birt var í fyrra, kom fram að aflands­fé­lagið Dekhill Advisors Limited, skráð á Tortóla, hafi hagn­ast um 46,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 2,9 millj­arða króna á þávirði, á fléttu sem ofin var í kringum kaupin á bank­anum. Á núvirði er upp­hæðin um 4,7 millj­arðar króna.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sýndu að ítar­leg gögn styðji að Hauck & Auf­häuser, Kaup­þing hf. á Íslandi, Kaupt­hing Bank Luxembourg og hópur manna sem vann fyrir og í þágu Ólafs Ólafs­sonar fjár­festis hafi not­að leyni­lega samn­inga til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald þess hlutar sem Hauck & Auf­häuser átti í Bún­að­ar­bank­anum í orði kveðnu.

Rann­sókn­ar­nefndin komst ekki að því hver væri eig­andi Dekhill Advisors með óyggj­andi hætti né hverjir hafi haft aðgang að þeim fjár­munum sem fóru til félags­ins í gegnum bak­samn­inga. Nefndin ályktaði hins vegar að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi verið eig­endur þess.

Dekhill er virkt félag

Kjarninn greindi frá því í maí 2017 að Dekhill Advisors væri virkt félag. Í des­em­ber 2009 gerði félagið hand­veðs­samn­ing við sviss­neska bank­ann Julius Bäer vegna fjár­mála­gjörn­ings sem það var að taka þátt í. Gögn sem Kjarninn hefur undir höndum sýna þetta. Þau gögn inni­héldu einnig skjal sem stað­festi að Dekhill Advisors var enn til og í virkni í lok sept­em­ber 2016.

Það er því skýrt að ein­hverjir hafa haft aðgang að og notað fjár­mun­ina sem greiddir voru inn í Dekhill Advisors í jan­úar 2006, á árunum eftir hrun. Og félagið var enn í starf­semi haustið 2016.

Mögulegt er að þeir fjár­munir sem runnu til Dekhill Advisors hafi átt að skatt­leggj­ast hér­lendis. Þess vegna er emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra að rann­saka mál­efni félags­ins.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra óskaði það eftir upp­lýs­ingum og gögnum frá sviss­neskum yfir­völdum í júní á síð­asta ári um Dekhill Advisors. Eftir þeim gögnum er enn beðið nú, tæpum níu mán­uðum síðar. Þær upp­lýs­ingar og gögn eru, að sögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra, nauð­syn­leg til að geta tekið ákvörðun um næstu skref.

Kerfið í Sviss virkar þannig að sá aðili sem beiðnin varðar, í þessu til­felli bank­inn Julius Bäer, getur mót­mælt henni. Þá tekur við ferli þar sem úr þeim ágrein­ingi er skorið. Í því ferli er beiðni skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem stendur. Í svari emb­ætt­is­ins segir að sviss­nesk yfir­völd hafi reglu­lega upp­lýst skatt­rann­sókn­ar­stjóra um stöðu mála en beðið sé nið­ur­stöðu.

Sagðir hafa blekkt stjórnvöld og almenning

Í mars 2017 var birt skýrsla rann­sókn­ar­nefndar um aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Í henni var opin­berað að stjórn­völd, fjöl­miðlar og almenn­ingur hafi verið blekkt til að halda að þýski bank­inn hafi raun­veru­lega verið að kaupa hlut í Bún­að­ar­bank­anum fyrir eigin reikn­ing. Svo var ekki.

Ólafur Ólafsson átti annað félagið sem hagnaðist á baksamningum sem gerðir voru vegna kaupanna á Búnaðarbankanum. Eigendur hins félagsins hafa aldrei verið opinberaðir. Mynd: söluferli.is
Ólafur Ólafsson átti annað félagið sem hagn­að­ist á bak­samn­ingum sem gerðir voru vegna kaupanna á Bún­að­ar­bank­anum. Eigendur hins félags­ins hafa aldrei verið opin­beraðir. Mynd: sölu­ferli.is

Með vísun í ítar­leg gögn sýndi rann­sókn­ar­nefndin fram á að íslenski bank­inn Kaupþing, sem sam­ein­að­ist Bún­að­ar­bank­anum skömmu eftir söl­una, hafi fjár­magnað kaup Hauck& Auf­häuser að hluta í bank­anum að fullu, að baki lágu bak­samn­ingar sem tryggðu Hauck & Auf­häuser fullt skað­leysi, þókn­ana­tekjur upp á eina milljón evra fyrir að leppa og sölu­rétt á hlutnum eftir að þýski lepp­bank­inn var búinn að halda á honum í tæp tvö ár.

Til við­bótar lá fyrir í flétt­unni, sem var kölluð „Puffin“ (sem þýðir lundi á íslensku), að hagn­aður sem gæti skap­ast hjá réttum eig­enda hlut­ar­ins, aflands­fé­lags­ins Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, myndi renna til tveggja aflands­fé­laga, skráð á sama stað, sem áttu það félag. Annað þeirra aflands­fé­laga var Marine Choice Limited, í eigu Ólafs Ólafs­sonar. Hann hagn­að­ist um 3,8 millj­arða króna á flétt­unni.

Hitt félagið, Dekhill Advisors, hagn­að­ist um 2,9 millj­arða króna á „Puffin“ verk­efn­inu og fékk þá fjár­muni greidda inn á reikn­ing sinn á árinu 2006. Á núvirði er sam­eig­in­legur hagn­aður félag­anna tveggja um 11 millj­arðar króna.

Spurningunni sem var ekki svarað

Þau gögn sem rann­sókn­ar­nefndin var með undir höndum í vinnu sinni sýndu ekki fram á það með óyggj­andi hætti hver eig­andi, eða eig­endur, Dekhill Advisors, væru. Þau sýndu heldur ekki hvort ein­hverjir aðrir en skráðir eig­endur félags­ins væru með aðgang að þeim fjár­munum sem runnu inn í það.

Rann­sókn­ar­nefndin ályktaði að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi verið eig­endur þess. Þar er átt við að mögu­lega hafi stjórn­endur Kaup­þings átt það, eða að minnsta kosti notið þeirra fjár­muna sem flæddu inn í félagið. En það hefur líka öðrum mögu­leikum verið velt upp. Í samn­ings­drögum sem birt eru í skýrsl­unni kom á einum tíma til greina að Ágúst og Lýður Guð­munds­synir myndu eiga hlut í Welling & Partners.

Kjartan Bjarni Björgvinsson og Finnur Vilhjálmsson rannsökuðu söluna á Búnaðarbankanum og opinberuðu „Lundafléttuna“.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son og Finnur Vil­hjálms­son rann­sök­uðu söl­una á Bún­að­ar­bank­anum og opin­ber­uðu „Lunda­flétt­una“.

Allir þeir sem komu að „Lunda­flétt­unni“ og voru kall­aðir fyrir rann­sókn­ar­nefnd­ina gátu ekki svarað því hverjir eig­endur Dekhill væru. Þeim var síðan sent bréf frá nefnd­inni þann 13. mars þar sem þeim bauðst að svara spurn­ingum nefnd­ar­innar í ljósi þeirra gagna sem hún hafði aflað sér og þeirrar nið­ur­stöðu sem hún hafði kom­ist að. Svörin bár­ust flest 20. og 21. mars en skýrsla nefnd­ar­innar var ekki birt fyrr en 29. mars.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, sagði í svar­bréfi sínu við spurn­ingum nefnd­ar­innar að hann teldi „óhætt að full­yrða að ég hafi aldrei heyrt minnst á félagið Dekhill Advisors Limited fyrr en í bréfi nefnd­ar­innar“. Ólafur Ólafsson sagð­ist í svar­bréfi sínu til nefnd­ar­innar ekki minn­ast þess „að hafa heyrt minnst á félagið Dek­hillA­dvis­ors Limited.“ Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, sagð­ist í sínu bréfi ekki geta „aðstoðað nefnd­ina við að svara þeim spurn­ingum sem að mér er beint“. Bræð­urnir Ágúst og Lýður sögðu í sam­hljóma svar­bréfum að þeim reki ekki minni til þeirra atriða sem nefnd voru í bréfi rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Finnur Ing­ólfs­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, for­stjóri VÍS, ráð­herra og seðla­banka­stjóri, var hluti af S-hópnum. Hann sendi frá sér yfir­lýs­ingu 31. mars þar sem hann sagði að „hvorki ég né nokkur sem mér teng­ist er eig­andi að félag­inu Dekhill Advisors“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið undanfarið ár