Seðlabankinn birtir skýrslu um neyðarlán Kaupþings á næstu mánuðum

Skýrsla sem boðuð var í febr­úar 2015 af Seðla­banka Íslands, og fjallar um til­drög þess að Kaupþing fékk 500 millj­óna evra neyð­ar­lán í októ­ber 2008, verður birt á næstu mán­uðum. Hún mun einnig fjalla um sölu­ferli FIH.

Skýrsla um neyð­ar­lán­veit­ingu Seðla­banka Íslands til Kaup­þings í miðju banka­hrun­inu er langt á veg komin og gert er ráð fyrir að hún verði kynnt í banka­ráði hans á næstu mán­uðum. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri greindi frá því í febr­úar 2015 að hann ætl­aði að láta taka saman skýrslu um til­drög þess að Kaupþing fékk neyð­ar­lán upp á 500 millj­ónir evra frá bank­anum 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett og Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, bað guð að blessa Ísland í sjón­varps­ávarpi. Það eru því um tvö og hálft ár liðið frá því að skýrslan var boðuð.

Í svari við fyr­ir­spurn frá Kjarn­anum um afdrif skýrsl­unnar segir Seðla­banki Íslands að ákveðið hafi verið að bæta sölu­ferli FIH bank­ans – en sá danski banki var tek­inn sem veð fyrir lán­inu – við skýrsl­una. „Sá hluti er mjög umfangs­mik­ill og snertir m.a. þróun efna­hags- og banka­mála í Danmörku. Vegna mik­illa anna starfs­manna við önnur verk hefur verið erf­ið­leikum bundið að tryggja næga krafta í þetta verk – en það er sem sagt langt á veg komið,“ segir í svar­inu.

Kjarninn óskaði eftir nán­ari upp­lýs­ingum um hver tímara­mm­inn á skilum á skýrsl­unni væri, en Seðla­bank­inn taldi sig ekki geta verið nákvæm­ari en að henni verði skilað á næstu mán­uðum.

Hannes vinnur líka að skýrslu

Önnur skýrsla er vænt­an­leg þar sem fjallað verður meðal ann­ars um sölu­ferli FIH. Sú er skrifuð af stjórn­mála­fræði­pró­fess­ornum Hannesi Hólm­steini Giss­ur­ar­syni, en honum var falið að stýra rann­sókn­ar­verk­efni á vegum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins á erlendum áhrifa­þáttum hruns­ins í júlí 2014. Áætl­aður kostn­aður verk­efn­is­ins var tíu millj­ónir króna og áætluð verk­lok voru í byrjun sept­em­ber 2015. Skýrslu Hannesar hefur enn ekki verið skilað en greint var frá því í júní að hún sé nú í yfir­lestri. Til stendur að kynna skýrsl­una 8. októ­ber næst­kom­andi, eða rúmum tveimur árum eftir upp­haf­leg áætluð verk­lok og rúmum þremur árum eftir að Hannesi var falið verk­efnið.

Ráðn­ing Hann­esar til verks­ins var afar umdeild sökum mik­illa tengsla hans við áhrifa­menn innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sér­stak­lega fyrr­ver­andi seðla­banka­stjór­ann Davíð Odds­son, sem nú stýrir Morg­un­blað­inu.

Hannes skrif­aði grein í Morg­un­blaðið 21. apríl 2015 þar sem hann opin­ber­aði í fyrsta sinn hluta af því sem hann er að skrifa um í skýrslu sinni. Í grein­inn fjall­aði hann í löngu máli um söl­una á FIH-­bank­an­um, sem tekin var sem veð fyrir neyð­ar­láni Seðla­banka Íslands til Kaup­þings 6. októ­ber, þegar Davíð Odds­son stýrði enn Seðla­bank­an­um. Kjarn­inn greindi frá því 2. októ­ber 2014 að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna FIH væri 35 millj­arðar króna.

Hannes komst að þeirri nið­ur­stöðu að FIH hafi verið gott veð. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hafi hins vegar verið plat­aður í mál­inu með þeim afleið­ingum að Ísland varð af 60 millj­arða króna ágóða vegna FIH, og sat þess í stað uppi með ofan­greint tap.

Már svar­aði grein Hannesar skömmu síðar. Hann sagði Hannes mis­skilja margt í mál­inu og full­yrti að ef Seðla­bank­inn hefði knúið FIH bank­ann í slita­með­ferð haustið 2010 hefði allt neyð­ar­lánið sem bank­inn veitti Kaup­þingi 6. októ­ber 2008 tap­ast. Með því að selja bank­ann tak­ist Seðla­bank­anum að inn­heimta lið­lega helm­ing láns­ins, sem var upp á 500 millj­ónir evra.

Því liggur fyrir að á haust­mán­uðum munu koma út tvær skýrslur þar sem fjallað verður um sölu­ferli FIH, og út frá grein Hannesar frá því í apríl 2015, og svörum Más nokkrum dögum síðar, liggur fyrir að umfjöllun í skýrsl­unum verður afar ólík. Raunar er við­búið að nið­ur­stöður þeirra varð­andi FIH verði eins og svart og hvítt.

Ásakanir um ábyrgð ganga á víxl

Neyð­ar­lán Seðla­banka Íslands til Kaup­þings 6. októ­ber 2008 hefur reglu­lega ratað í fréttir á und­an­förnum árum. Það var upp á 500 millj­ónir evra, tæp­lega 78 millj­arða króna á gengi þess dags sem lánið var veitt. Tæpur helm­ingur láns­ins end­ur­heimt­ist aldrei þar sem veðið sem sett var fyrir lán­inu, danski bank­inn FIH, var fjarri því jafn verð­mætur og talið var í fyrstu.

Lánið komst aftur í hámæli í októ­ber í fyrra, nokkrum dögum fyrir þing­kosn­ingar, eftir að Kastljós og fréttir Stöðvar 2 birtu vitna­skýrslu frá 2012 þar sem það er til umfjöll­unar. Þar komu fram upp­lýs­ingar um inni­hald sím­tals milli Geirs H. Haarde og Davíðs Odds­sonar sem átti sér stað skömmu fyrir hádegi 6. októ­ber 2008. Eftir sím­talið lá fyrir ákvörðun um að veita lánið til Kaup­þings.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur hafnað því að bankinn hafi orðið af 60 milljarða króna söluhagnaði vegna FIH. Fjallað verður um söluferli FIH í væntanlegri skýrslu.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur hafnað því að bank­inn hafi orðið af 60 millj­arða króna sölu­hagn­aði vegna FIH. Fjallað verður um sölu­ferli FIH í vænt­an­legri skýrslu.

Í umræddu sím­tali milli Geirs og Davíðs ræða þeir lán­veit­ing­una. Geir hefur ekki viljað veita heim­ild fyrir því að upp­takan verði gerð opin­ber.

Í febr­úar 2015 skrif­aði Davíð Reykja­vík­ur­bréf í Morg­un­blað­ið. Þar sagði að þar sem gjald­eyr­is­vara­­forði Seðla­­banka Íslands í októ­ber 2008 var til­­kom­inn vegna skulda­bréfa­út­­­gáfu rík­­is­­sjóðs hafi banka­­stjórar Seðla­­bank­ans litið svo á að það það yrði að vera vilji rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­­ar, ekki bank­ans, sem réði því hvort Kaup­­þing fengi hann nán­­ast allan að láni þennan dag. Í Reykja­vík­ur­bréf­inu stóð: „Þeir sem báðu um aðstoð­ina [Kaup­­þing] héldu því fram, að rík­­is­­stjórnin vildi að þessi fyr­ir­greiðsla yrði veitt. Þess vegna fór sím­talið við for­­sæt­is­ráð­herr­ann fram. Til­­viljun réð því að það sím­­tal var hljóð­­rit­að. Þess vegna átti fyr­ir­greiðslan sér að lokum stað gegn alls­herj­­­ar­veði í banka sem tal­inn var standa mjög ríf­­lega undir því.“ Að sögn Dav­íðs var það því Geir sem tók ákvörð­un­ina um að lána Kaup­þingi.

Geir, sem er núver­andi send­i­herra Íslands í Banda­­ríkj­un­um, sagði hins vegar í fréttum Stöðvar 2 í maí í 2015 að það hafi verið mis­­tök að veita Kaup­­þingi lánið. Því miður hafi ekki allt verið sem sýnd­ist hjá bank­­anum og hann staðið veikar en látið var. Lánið hefði því aldrei dugað til að bjarga bank­­anum og pen­ing­­arnir ekki farið í það sem þeir áttu að fara.

Í svari við fyr­ir­spurn Kast­ljóss vegna nýrra upp­lýs­inga í mál­inu, sem sagt var frá í októ­ber 2016, sagði Geir að for­sæt­is­ráð­herra ætti ekki að þurfa að sæta því að emb­ætt­is­menn rík­is­ins hljóð­riti sam­töl við hann „án hans vit­und­ar“. Þá sagði hann það alveg skýrt að Seðla­bank­inn hafi borið ábyrgð á lán­inu, þó hann hafi talið það til­raun­ar­innar virði. Það séu von­brigði að veð sem Seðla­bank­inn taldi trygg, skyldu ekki hafa duga fyrir lán­inu.

Enn liggur heldur ekki fyrir í hvað pen­ing­arnir sem Kaupþing fékk lánað fóru. Um það eru frá­sagnir mis­vísandi. Mikil vilji virð­ist vera fyrir því að fá skýr og end­an­leg svör við þessum tveimur spurn­ingum: hver tók ákvörð­un­ina og í hvað fór lánið. Mögulega munu þau svör koma fram í skýrslu Seðla­bank­ans sem vænt­an­leg er á næstu mán­uðum.

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um þessi mál und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið undanfarið ár