Húsnæðisbætur myndu nýtast tekjuháum best - áttu að hjálpa þeim efnaminni

Nýtt hús­næð­is­bóta­kerfi, þar sem hús­næð­is­bætur eiga að koma í stað húsa­leigu­bóta, myndi skila sér helst til heim­ila sem hafa miklar tekjur. Hlut­falls­lega yrði nið­ur­greiðsla húsa­leigu meiri eftir því sem tekjur heim­ila eru hærri. Þetta segir í umsögn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um frum­varp um hús­næð­is­bætur, sem RÚV greindi frá í kvöld­fréttum.

Þetta er þvert á yfir­lýst mark­mið frum­varps­ins, sem var ætlað að auka stuðn­ing við efna­litla leigj­endur.

Þá myndi frum­varpið að mati fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins leiða til þess að leigu­verð hækki, sem kynni að skila leigu­sölum meiri ávinn­ingi en leigj­endum. Útgjöld rík­is­sjóðs gætu auk­ist um rúma tvo millj­arða króna á ári og verði um 6,6 millj­arðar frá og með 2017, ef frum­varpið verður sam­þykkt óbreytt, en árið 2017 á að inn­leiða nýja kerfið. Í umsögn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að ekki hafi verið gert ráð fyrir auknum útgjöldum í fjár­lögum eða rík­is­fjár­mála­á­ætlun.

Almennar húsa­leigu­bætur munu fær­ast til rík­is­ins frá sveit­ar­fé­lögum sam­kvæmt frum­varp­inu, en sér­stakar húsa­leigu­bætur verða ennþá á for­ræði sveit­ar­fé­lag­anna. Þetta fyr­ir­komu­lag myndi að mati fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins auka rekstr­ar­kostnað og flækja ferlið fyrir hluta þeirra sem þiggja bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár