Er Ísland marxískt, spillt og stéttaskipt eða er allt sem ríkisstjórnin hefur gert frábært?

Eld­hús­dags­um­ræður fóru fram í gær. Þar lýstu stjórn­mála­menn stöðu mála í íslensku sam­fé­lagi á afar mis­mun­andi hátt. Raunar svo mis­mun­andi að það var á stundum eins og þeir væru ekki að lýsa gangi mála í sama land­inu.

Síðustu almennu stjórn­mála­um­ræður – svo­kall­aðar eld­hús­dags­um­ræður – kjör­tíma­bils­ins fóru fram í gær­kvöldi. Þessi vett­vangur er oft­ast nær not­aður af stjórn­ar­þing­mönnum til að mæra eigin verk, og með miklum upp­taln­ingum á gæðum mála sem þeir hafa komið í verk.

Stjórn­ar­and­staðan notar umræð­urnar á hinn bóg­inn til að finna verkum rík­is­stjórn­ar­innar allt til for­áttu.

Nú ber svo við að kosn­ingar fara fram í haust og flestir stjórn­mála­flokkar sem eiga þegar full­trúa á þingi eru langt komnir með að velja fólk á fram­boðs­lista sína. Eld­hús­dags­um­ræð­urnar gáfu full­trúum þess­ara sömu flokka tæki­færi til að setja fram helstu áherslur sínar fyrir kosn­ing­arnar úr ræðupúlti Alþingis.

Það gekk mis­jafn­lega í gær.

Miðflokkurinn: Fullveldi, umbúðir og innihald

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hóf leika, sýni­lega kvef­aður. „Síðustu 15 mán­uðir hafa verið tíð­inda­litlir í póli­tík­inni, allt hefur snú­ist um far­ald­ur­inn. Sem betur fer höfum við Íslend­ingar náð góðum árangri í bar­átt­unni við veiruna, þökk sé frá­bæru fag­fólki og sam­stöðu lands­manna. En nú er tíma­bært að hefja aftur alvöru­stjórn­mála­um­ræðu. Mörg stór mál hafa beðið óleyst árum saman. Til að geta tekið sem bestar ákvarð­anir um fram­tíð­ina þurfum við að líta til þess hvað reynst hefur vel og hvað ekki.“

Ræða hans var mjög í takt við þær áherslur sem hann hefur haft í ræðu og riti und­an­farið. Að rík­is­stjórnin sé hags­muna­banda­lag sem stundi póli­tík byggða á umbúðum ekki inni­haldi. Sig­mundur Davíð sagði að heil­brigð­is­kerfið væri nú orðið mið­stýrt og marxískt og að ef ekki væri fyrir and­stöðu Mið­flokks­ins þá hefði frum­varp um hálend­is­þjóð­garð þegar verið afgreitt. Hann sagði að sam­göngu­málum í land­inu væri að mestu stjórnað af borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum í Reykja­vík með sam­þykkt borg­ar­línu­verk­efn­is­ins „sem rík­is­stjórnin ákvað af óskilj­an­legum ástæðum að fjár­magna fyrir Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík.“

Meg­in­inntakið í ræðu Sig­mundar Davíðs, og þeirri póli­tík sem Mið­flokk­ur­inn ætlar sér að standa fyrir í aðdrag­anda kosn­inga, er þó það sem hann kallar að verja full­veldið. Í því sam­hengi var­aði hann við orku­pökkum Evr­ópu­sam­bands­ins, en and­staða Mið­flokks­ins við inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans reynd­ist honum gjöful í fylg­is­mæl­ingum til skamms tíma fyrr á kjör­tíma­bil­inu. Í ræðu Sig­mundar Davíðs sagði: „Við þurfum að fara yfir með hvaða hætti við nálg­umst og nýtum EES-samn­ing­inn og Schengen-sam­starfið nú þegar jafn­vel Evr­ópu­sam­bands­lönd eru farin að taka að sér meiri sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt varð­andi stjórn sinna landamæra og innri mála. Nú lætur Evr­ópu­sam­bandið sér ekki nægja að mæla fyrir um hvað fólk megi borða morg­un­mat heldur ætlar það að fara að stýra sjón­varps­dag­skránni og jafn­vel umræðu á sam­fé­lags­miðlum. Alþingi verður að hafna nýju rit­skoð­un­ar­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar og ESB.“

Að end­ingu verða komu fram full­yrð­ingar um að „báknið“, hinn opin­beri rekstur, væri orðið of stórt og þyrfti að skera niður, að Mið­flokk­ur­inn myndi setja byggða­mál og land­bún­að­ar­mál á odd­inn og draga þyrfti úr kvöðum á lítil fyr­ir­tæki. „Með rót­tækri heild­ar­stefnu Mið­flokks­ins getur greinin sótt fram á öllum víg­stöðvum. Eftir 15 mán­uði án stjórn­mála þurfum við að taka afstöðu til þess hvernig við byggjum upp sam­fé­lagið til fram­tíðar. Í því efni er Mið­flokk­ur­inn með lausn­irnar.“

Sjálfstæðisflokkurinn: Stefnan skýr, ekki hefta og letja

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafði þegar flutt eft­ir­minni­leg­ustu ræðu sem hann mun flytja um sinn á kosn­inga­vöku sinni eftir nauman sigur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík aðfara­nótt sunnu­dags. Þar end­aði hann ræð­una, eftir að hafa sagt að inn­an­flokks­fólk sem hefði unnið gegn honum hefði tapað, á eft­ir­far­andi orðum: „Núna ætlum við að taka kvöldið og nótt­ina í það að skemmta okkur almenni­lega, fagna þessum sigri og ég ætla að opna þessa kampa­víns­flösku.“

Guð­laugur Þór var enn rámur eftir gleði helg­ar­innar þegar hann steig í pontu í gær og flutti ræðu sem lyktaði af því að þar færi stjórn­mála­maður með for­manns­drauma í sínum flokki.

Utan­rík­is­ráð­herr­ann hrós­aði sam­stöðu og sam­heldni þjóð­ar­innar í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn en var­aði við því að það væri ekki hægt að ætl­ast til þess að „allt verði gott á nýjan leik að sjálfu sér.“

Mik­il­vægt væru að efla verð­mæta­sköpun í land­inu og hann var­aði við því að auka skuld­setn­ingu rík­is­sjóðs með hefð­bundnum frösum á borð við að skuldir þurfi að greiða á end­anum og að „við sem hér erum höfum engan rétt á því að senda reikn­ing­inn til kom­andi kyn­slóða.“ Um þetta myndu næstu kosn­ingar snú­ast. „Stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins er og verður skýr í þessum efnum: Við viljum greiða leið fólks og fyr­ir­tækja, ekki hefta og letja.“

Ekki væri heldur í boði að skatt­leggja landið út úr þeim vanda sem stæði fyrir dyrum heldur þyrfti þvert á móti að lækka skatta og auka sókn á erlenda mark­aði með útflutn­ings­vörur. Guð­laugur Þór hældi svo nýlega gerðum frí­versl­un­ar­samn­ingi sem Ísland, í sam­floti við Noreg og Liechtenstein, gerðu við Bretland og hann skrif­aði undir fyrir hönd þjóð­ar­innar.

Guðlaugur Þór Þórðarson talaði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Mynd: Bára Huld Beck
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son tal­aði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Við­spyrna í efna­hags­málum væri mik­il­væg en það þyrfti líka það sem utan­rík­is­ráð­herr­ann kall­aði við­spyrnu þegar kemur að því að aflétta hömlum af dag­legu lífi fólks. „Ein­stak­ling­ur­inn á alltaf að vera í önd­vegi. Þá farn­ast okkur öllum best. Ef hvert og eitt okkar fær notið frelsis, ef hvert og eitt okkar finnur kröftum sínum við­nám nýtur sam­fé­lagið í heild sinni góðs af því. Gleymum því heldur ekki að frelsi og ábyrgð eru ekki and­stæður heldur tvær hliðar á sama pen­ingi. Ábyrgð hvers og eins okkar á eigin málum, ábyrgð okkar gagn­vart sam­fé­lag­inu, ábyrgð okkar gagn­vart umhverf­inu og ábyrgð okkar gagn­vart fram­tíð­inni verður ekki skilin frá því frelsi sem hvert og eitt okkar nýtur.“

Samfylkingin: Bilið milli almennings og fárra auðjöfra eykst

Logi Ein­ars­son hélt ræðu á flokks­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar um liðna helgi þar sem hann sagði að kann­anir bentu til þess að hægt yrði að mynda stjórn eftir hinu svo­kall­aða Reykja­vík­ur­mód­eli eða R-lista fyr­ir­bær­inu eftir næstu kosn­ingar. Slík stjórn myndi inni­halda fjóra af eft­ir­far­andi fimm flokkum: Sam­fylk­ingu, Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokk, Viðreisn eða Pírata. Áður hafði Logi þegar úti­lokað stjórn­ar­sam­starf við Mið­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Í ræðu sinni í eld­hús­dags­um­ræðum benti Logi á að far­ald­ur­inn hefði lagt mis­þungt á fólk, jafnt heilsu­fars­lega sem efna­hags­lega. „Nú þegar heild­ar­myndin af efna­hags­að­gerðum rík­is­stjórn­ar­innar síð­asta árið er farin að teikn­ast upp stefnir í það sem hag­fræð­ingar kalla K-laga kreppu, þ.e. sumir verða efn­aðri á meðan aðrir hafa minna milli hand­anna en áður. Það var ein­fald­lega ekki gripið til nógu mark­vissra aðgerða til þess að beina fjár­magn­inu þangað sem þurfti. Það fólk hefur neyðst til að eyða sparn­aði sínum eða jafn­vel skuld­setja sig til að kom­ast í gegnum hrylli­legar aðstæður. “

Þótt tekju­jöfn­uður mælist mik­ill hér á landi fari eigna­ó­jöfn­uð­ur­inn hratt vax­andi og opin­berar tölur sýni að lít­ill hópur ein­stak­linga raki til sín meg­in­þorr­anum af öllum nýjum auð í land­inu. „Bilið milli almenn­ings og fárra auð­jöfra eykst og þessir auð­jöfrar sölsa undir sig fleiri og fleiri staði sam­fé­lags­ins. Þess vegna vill Sam­fylk­ingin berj­ast gegn ójöfn­uði hvar sem hann er að finna.“

Logi gagn­rýndi líka önnur verk sitj­andi rík­is­stjórnar, sem hann kall­aði rík­is­stjórn mála­miðl­ana og kyrr­stöðu, á kjör­tíma­bil­inu og velti fyrir sér hversu vel núver­andi stjórn­ar­mynstur væri lík­legt til að geta mætt flóknum áskor­unum fram­tíðar. Það hefði mis­tek­ist að fjár­magna íslenskt heil­brigð­is­kerfi með full­nægj­andi hætti og fram­fara­mál hefðu strandað á rík­is­stjórn­ar­borð­inu þrátt fyrir lík­legan meiri hluta í þing­sal.Þar nefndi Logi afglæpa­væð­ingu, ramma­á­ætlun, hálend­is­þjóð­garð og það sem hann kall­aði „almenni­legt auð­linda­á­kvæði“ í stjórn­ar­skrá. „Það getur hins vegar vel verið að þetta óvenju­lega stjórn­ar­mynstur íhalds­flokk­anna hafi hentað til að kæla stöð­una eftir skandala síð­ustu stjórna en þessir flokkar munu ekki finna þann sam­hljóm sem þarf til að ráð­ast við risa­stórar áskor­anir fram­tíðar.[...]Það er þess vegna, kæru lands­menn, nauð­syn­legt að greiða veg­inn fyrir nýja rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum sem er sam­mála um veg­inn og verk­efnin fram undan, rík­is­stjórn sem er óhrædd við nýja fram­tíð og er nógu opin til að nýta skap­andi lausnir til að ráð­ast gegn ójöfn­uði, lofts­lagsógn­inni og breyt­ingum á vinnu­mark­aði, rík­is­stjórn sem er til­búin til að byggja upp, ekki skera niður eins og rík­is­stjórnin boðar í fimm ára fjár­mála­á­ætlun. Það er bein­línis hroll­vekj­andi, herra for­seti, að í stað þess að ætla að bæta almanna­þjón­ust­una og fjár­festa í fólki ætli rík­is­stjórnin að hefja nið­ur­skurð­ar­hníf­inn á loft.“

Sam­fylk­ingin yrði til­búin að fara í slíka rík­is­stjórn um fram­farir, auk­inn jöfnuð, almanna­hags­muni og sókn út úr krepp­unni.

Vinstri græn: Telur Katrínu bera höfuð og herðar yfir aðra

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, flutti fyrstu ræðu þess flokks í gær­kvöldi. Þar mærði hún verk sitj­andi rík­is­stjórnar og þá ákvörðun flokks­ins að setj­ast í óhefð­bunda rík­is­stjórn með skil­greindum höf­uð­and­stæð­ingi hans í stjórn­málum, Sjálf­stæð­is­flokknum. Hún tal­aði hins vegar lítið sem ekk­ert um það sem Vinstri græn ætl­uðu að gera í fram­tíð­inni að öðru leyti en að hún teldi Katrínu Jak­obs­dóttur bera höfuð og herðar yfir aðra stjórn­mála­leið­toga og ætti að leiða sam­fé­lagið áfram. „Við á vinstri vængnum höfum lengi haft það orð á okkur að vera óstjórn­tæk. Að við kunnum bara að vera fúl á móti. En ég tel að þetta kjör­tíma­bil hafi sannað að Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð er afl sem þorir. Það þarf kjark til að stíga inn og leiða umdeilt rík­is­stjórn­ar­sam­starf með póli­tískum and­stæð­ingum. Og það þarf kjark til að af slíku sam­starfi náist eins mik­ill mál­efna­legur árangur og reynst hefur á þessu kjör­tíma­bili. Það er ánægju­legt að til­heyra stjórn­mála­afli sem lætur verkin tala og kemur stefnu sinni til fram­kvæmda.“

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er ánægð með ríkisstjórnina.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir er ánægð með rík­is­stjórn­ina.

Bjarkey taldi þrepa­skipt skatt­kerfi, stytt­ingu vinnu­vik­unnar, lengt fæð­ing­ar­or­lof og hlut­deild­ar­lán upp sem mál sem rík­is­stjórnin hefði staðið fyrir. Þá hefðu rétt­indi trans, kynsegin og inter­sex fólks verið tryggð, ný jafn­rétt­islög, vernd upp­ljóstr­ara tryggð, varnir gegn hags­muna­á­rekstrum og skrán­ing raun­veru­lega eig­enda verið sam­þykkt. „Svo gæti ég lengi talað um aðgerðir rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur í átt að jöfn­uði og rétt­lát­ara sam­fé­lagi, svo ekki sé minnst á þrot­lausa vinnu hæstv. for­sæt­is­ráð­herra til að gera mik­il­vægar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá okkar Íslend­inga. Nú höfum við sem hér eigum sæti í þessum sal tæki­færi til að stíga skrefið og gera breyt­ingar á því mik­il­væga grunn­plaggi okkar sem stjórn­ar­skráin er.“

Bjarkey skipti svo um gír og hóf að mæra Svandísi Svav­ars­dóttur næst. Hún sagði að undir hennar stjórn hefði heilsu­gæsla verið efld, kostn­að­ar­þátt­taka sjúk­linga lækkuð, nýr Lands­spít­ali væri að rísa og stór­sókn hefði orðið í geð­heil­brigð­is­málum. Bjarkey til­tók einnig ný lög um þung­un­ar­rof sem sam­þykkt voru 2019 þvert á stjórn­ar­línur, en hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddi atkvæði gegn því frum­varpi. „Þá er ótalin sú trausta for­ysta sem hæstv. heil­brigð­is­ráð­herra Svandís Svav­ars­dóttir hefur sýnt í bar­átt­unni við heims­far­ald­ur­inn. Nú eru tæp 64% full­orð­inna bólu­sett. Það sér fyrir end­ann á þessu öllu saman. Margar voru vaf­aradd­irnar hér fyrir ekki svo löngu. Takk, Svandís, takk, þrí­eyki, og takk, þið öll sem hafi staðið ykkur svo frá­bær­lega vel í gegnum þennan far­aldur.,“ sagði Bjarkey.

Þá var einn ráð­herra Vinstri grænna eftir til að mæra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra fyrir að banna mark­aðs­setn­ingu einnota plasts og fyrir að fá sam­þykkta full­fjár­magn­aða aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum í fyrsta sinn. Hún sagð­ist einnig hafa trú á því að hálend­is­þjóð­garður yrði að veru­leika, en nokkuð ljóst liggur fyrir að hvorki Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn né Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætla sér að sam­þykkja það mál óbreytt fyrir lok kjör­tíma­bils­ins þrátt fyrir að það hafi verið bundið í stjórn­ar­sátt­mála.

Píratar: „Á Íslandi eru stórir og valdamiklir hagsmunahópar sem svífast einskis“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir tal­aði fyrst fyrir Pírata. Það varð strax ljóst að hún ætl­aði að draga skýra línu milli Pírata sem lausnar og þeirra sem þeir telja að séu vanda­málið í sam­fé­lag­inu.

Þór­hildur Sunna hrós­aði Ásgeiri Jónssyni seðla­banka­stjóra fyrir nýlegt við­tal við Stundina og fyrir að rjúfa þar „æpandi þögn æðstu ráða­manna þjóð­ar­innar um yfir­gengi­lega ósvífni ákveð­inna hags­muna­hópa. Loksins hafði hátt­settur emb­ætt­is­maður kjark til að segja það sem almenn­ingur veit mæta­vel; að á Íslandi eru stórir og valda­miklir hags­muna­hópar sem svífast einskis, sem reka fólk fyrir að gagn­rýna þá og ofsækja þau sem veita þeim aðhald.“

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir talaði hart gegn spillingu.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir tal­aði hart gegn spill­ingu.

Hún sagði Ásgeir hafa opnað á mik­il­vægt sam­tal með for­dæm­ingu sinni á kæru Samherja gegn starfs­mönnum Seðla­bank­ans, opin­berum eft­ir­lits­starfs­mönnum sem voru kærðir per­sónu­lega af þeim sem eft­ir­litið beind­ist að. Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar hefðu heldur ekki haft áhuga á þessu sam­tali. „Þegar fjár­mála­ráð­herra var inntur eftir við­brögðum sagði hann að emb­ætt­is­menn með mikil völd yrðu auð­vitað að vita það að væri þeim mis­beitt gæti það haft afleið­ingar. Þá vitum við það. Fjár­mála­ráð­herra, sem aldrei hefur sætt afleið­ingum fyrir að mis­beita valdi sínu, sama hversu gróf­lega hann gerir það, vill að starfs­fólk eft­ir­lits­stofn­ana ótt­ist afleið­ingar eft­ir­lits­starfa sinna, rétt eins og fjöl­miðla­menn eiga að ótt­ast afleið­ingar afhjúpana sinna, eða eins og skáld og fræði­menn eiga ótt­ast afleið­ingar gagn­rýni sinnar, og jafn­vel ráð­herrar sem hags­muna­hóp­arnir hafa ekki í vas­anum eiga að ótt­ast afleið­ingar orða sinna í þessum ræðu­stól.“

Á meðan reki hags­muna­að­ilar sem svíf­ist einskis skæru­liða­deildir sem njósni um og rægi fólk sem þeim mis­líkar, sem beiti sér í kosn­ingum og próf­kjörum og plotti um að hræða fólk til hlýðni. „Er þetta það sam­fé­lag sem við viljum, sam­fé­lag með­virkni, afkomu­ótta og sam­trygg­ingar, sam­fé­lag þar sem verra er að benda á brotin en að fremja þau?“

Vara­for­maður þing­flokks Pírata sagði að þessi ger­enda­með­virkni og þögg­un­ar­taktík sem birt­ist væri um margt lík þeirri sömu með­virkni og konur hafi nú sagt stríð á hendur.

Í kosn­ing­unum framundan væru mark­mið Pírata skýr: að eft­ir­lits­stofn­anir hafi bol­magn til að sinna skyldum sínum í þágu almenn­ings og að starfs­menn þeirra njóti verndar gegn per­sónu­legum ofsóknum hags­muna­hópa. Þeir vilja tryggja fjöl­miðla­frelsi með betri rétt­ar­vernd blaða­manna og með mót­væg­is­að­gerðum gegn afskiptum sér­hags­muna­afla af rit­stjórn­ar­stefnu fjöl­miðla. Þeir vilja allan afla á markað, alvöru­hömlur á eign­ar­hald fisk­veiði­kvóta og alvöru­gjald fyrir nýt­ing­ar­rétt á öllum sam­eig­in­legum auð­lindum þjóð­ar­innar. „Og við viljum lög­fest­ingu nýju stjórn­ar­skrár­innar sem setur vald­höfum mörk og end­ur­heimtir fisk­inn úr sjónum úr klóm sægreif­anna sem hafa fengið að vaða hér yfir allt á skítugum skónum allt of lengi[...] Við skulum hætta að rækta þessa skúrka, hætta að leyfa þeim að ráða hér öllu. Það gerum við með því að kjósa flokka sem eru ekki með­virkir þegar skúrk­arnir brjóta af sér og láta ekki undan öllum þeirra kröfum, flokka sem setja þeim stól­inn fyrir dyrnar, sem leiða ekki varð­hunda hags­muna­hópanna til valda þvert ofan í fögur fyr­ir­heit um annað, flokka sem láta hags­muni almenn­ings sann­ar­lega ganga fyrir hags­munum örfárra auð­manna og stór­fyr­ir­tækja, flokka eins og Pírata.“

Framsóknarflokkurinn: Efnahagslegt varnarskipulag

Willum Þór Þórsson, for­maður fjár­laga­nefndar, var fyrsti ræðu­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann byrj­aði á því að vitna í pólskt ljóð um hvað taki við að loknu stríði. Síðan hófst dásömun á aðgerðum rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur sem settar hafa verið fram til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Hann greip til knatt­spyrnu­lík­inga og sagði að hið efna­hags­lega varn­ar­skipu­lag hafi falist í fjöl­mörgum leiðum til þess að verja efna­hag fyr­ir­tækja og heim­ila, m.a. í því að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi við laun­þega. Hluta­bóta­leiðin var sam­þykkt í fyrsta aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar í mars á síð­asta ári. „Allan tím­ann hefur rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur staðið við fyrri áform um upp­bygg­ingu. Kröftug við­brögð og efna­hags­legar aðgerðir til við­bótar kalla vissu­lega á halla­rekstur rík­is­sjóðs og lán­töku, en er alls ekki tapað fé heldur fjár­munir sem styðja við efna­hag heim­ila og fyr­ir­tækja. Það dregur úr efna­hags­legum sam­drætti, eflir okkur og styrkir sem sam­fé­lag og leggur grunn að öfl­ugri við­spyrnu.“

Willum sagði að Íslend­ingur hafi, með auknu sam­spili rík­is­fjár­mála og pen­inga­mála­stefnu, lærst og farn­ast betur að jafna sveiflur og mynda efna­hags­legan stöð­ug­leika. Auðnast að hlúa að rík­is­sjóði þannig að hann geti virkað og sinnt hlut­verki sínu hverju sinni, í þágu allra lands­manna, staðið undir vel­ferð­ar­þjón­ustu, jafnað kjörin og mætt hag­sveiflum.

Hann mærði svo heil­brigð­is­kerfið fyrir við­náms­þrótt þess á veiru­tímum og sagði að seiglu og sam­vinnu hefði þjóðin sam­ein­ast um „öll erum við almanna­varnir og öll erum við rík­is­sjóður.“

Nú hafi Ísland snúið vörn í sókn. „Sókn­ar­aukn­ingin byggir á traustum grunni, grunni auð­linda, á grunni stöð­ug­leika, efna­hags­legum og póli­tískum, og á grunni þeirra sam­fé­lags­legu inn­viða sem við höfum náð að treysta veru­lega á kjör­tíma­bil­inu. En sókn­ar­mögu­leik­inn nú byggir ekki síst á grunni þeirrar þraut­seigju og sam­vinnu sem býr með þjóð­inni og við höfum sýnt og staðið saman nú sem fyrr þegar veru­lega reynir á.“

Willum sagði Framsókn vera stolt af rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. „Stærsta áskor­unin næstu miss­erin verður að skapa atvinnu, fjár­festa í fólki, skapa verð­mæti og vaxa til auk­innar vel­sældar. Sóknin þarf að vera mark­viss og sam­stillt, græn, staf­ræn og félags­leg sókn.“

Viðreisn: Faðmlag íhaldsflokkanna þriggja hefur verið „svo nærandi“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, lagði áherslu á það sem rík­is­stjórnin vildi ekki ræða í almennum stjórn­mála­um­ræðum, að hún skildi eftir 50 millj­arða króna gat í nýrri fjár­mála­á­ætlun og segði ekki hvort því verði lokað með nýjum sköttum eða stór­felldum nið­ur­skurði. „Hún vill ekki ræða að það dregur úr krafti atvinnu­lífs­ins að rík­is­stjórnin hefur tekið, þvert á yfir­lýs­ingar, erlend lán á hærri vöxtum og með geng­is­á­hættu til að fjár­magna halla rík­is­sjóðs. Hún vill ekki ræða að það dregur úr krafti atvinnu­lífs­ins þegar verð­bólgan og vextir eru miklu meiri og hærri hér en í sam­keppn­is­lönd­unum. Hún vill ekki ræða að það dregur úr krafti atvinnu­lífs­ins þegar gjald­eyr­is­höft eru tekin fram yfir frelsi í við­skiptum.“ Svar Við­reisnar við þess­ari stöðu er að tengja krón­una við evru líkt og Danir gera.

Hún sagði að í aðdrag­anda kosn­inga í haust dugi ekki hefð­bundin lof­orða­póli­tík um stór­aukin rík­is­út­gjöld. „Okkur dugar heldur ekki að ná aftur verð­mæta­sköp­un­inni frá 2019. Við þurfum að ná mun meiri hag­vexti, strax. Til hvers? Til þess að standa vörð um vel­ferð­ar­kerfið. Öll þessi atriði sem rík­is­stjórnin vill ekki ræða koma í veg fyrir að atvinnu­lífið geti hlaupið jafn hratt og við þurfum á að halda. Lausn­ar­orð rík­is­stjórnar er gjald­eyr­is­höft. Þau draga úr hag­vexti, auka líkur á sköttum og nið­ur­skurði og vinna gegn nýsköpun.“

Formaður Viðreisnar talaði fyrir því að krónan yrði tengd evru.
Formaður Við­reisnar tal­aði fyrir því að krónan yrði tengd evru.

Í ræðu Þor­gerðar Katrínar var hvöss gagn­rýni á stjórn­ar­flokk­ana. Hún sagði faðm­lag íhalds­flokk­anna þriggja hafa verið svo nær­andi „að hægri deild stjórn­ar­sam­starfs­ins hefur ekki gert neinar athuga­semdir við það þegar vinstri deild stjórn­ar­sam­starfs­ins sýnir sitt rétta and­lit.“ Flokkur einka­fram­taks­ins, Sjálf­stæð­is­flokkur, sitji hljóður hjá þegar Domus Medica loki, þegar biðlistar lengj­ast hjá tal­meina­fræð­ingum, sjúkra­þjálf­urum, sál­fræð­ingum, þegar þrengt sé að rekstri sér­fræði­lækna og sjúk­lingar sendir í dýrar aðgerðir til útlanda í stað þess að semja við inn­lendar stofur eða spít­ala. „Afleið­ingin er verri þjón­usta fyrir sjúk­linga og hærra verð fyrir ríkið, ein­hæf­ara starfs­um­hverfi og færri tæki­færi fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk.“

Þá hafi ekki síður sorg­legt að fylgj­ast með við­brögðum rík­is­stjórnar við Sam­herj­a­mál­inu. „Oddvitar rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hafa sett upp silki­hansk­ana í gagn­rýni sinni og muldrað sak­leys­is­leg orð um að þetta sé óvið­eig­andi og óeðli­legt. Þannig geng­is­fella þeir alvör­una í mál­inu því sam­særi stór­fyr­ir­tækis gegn blaða­mönnum er ekki bara óvið­eig­andi heldur einnig árás á lýð­ræð­is­lega umræðu. Orð skipta nefni­lega máli. En það þarf hins vegar engum að koma á óvart að for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna nota bara inni­rödd­ina þegar kemur að sér­hags­munum stór­út­gerð­ar­fyr­ir­tækja. Það er í fullu sam­ræmi við alger­lega tann­laust auð­linda­á­kvæði sem for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fyrir þingið og mun ekki breyta nokkrum sköp­uðum hlut, verði það sam­þykkt. Það ákvæði er frið­þæg­ing fyrir útgerð­ina meðan hlutur þjóðar er skil­inn eftir.“

Hún sagi að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír vilji vinna áfram saman eftir kom­andi kosn­ingar. Atkvæði til þess­ara flokka sé atkvæði greitt áfram­hald­andi kyrr­stöðu­stjórn. Viðreisn vilji á hinn bóg­inn breyta sam­fé­lag­inu og lofta út. „Það er skýr stefna Við­reisnar að öll kerfi sam­fé­lags­ins[...] þurfa og verða að þjóna almenn­ingi.[...]Þau eiga ekki að þjóna kreddum stjórn­mála­manna eða vera stjórnað af hags­muna­öflum. Þau eiga ekki að vera kjör­lendi fyrir bit­linga eða skjól fyrir flokks­gæð­inga.“

Flokkur fólksins: Tvær þjóðir í landinu

„Virðu­legi for­seti. Kæra þjóð. Það búa tvær þjóðir í land­inu. Það er risa­gjá á milli þeirra. Á öðrum bakk­anum standa þeir sem allt eiga og græðgi og auð­magn og sjálf­taka hefur skapað þeirra til­veru og þeirra líf. Á hinum bakk­anum eru svo hinir sem ekk­ert eiga og þurfa að biðja um ölm­us­una.“

Þetta sagði Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, í síð­ustu eld­hús­dags­um­ræðum kjör­tíma­bils­ins. Tóninn og áherslan er kunnug, enda Inga fyrir löngu búin að skil­greina sig sem stjórn­mála­mann og rödd fátæka fólks­ins á Íslandi.

Í ræðu sinni sagð­ist Inga að flokkur hennar vildi byggja brú yfir þessa gjá. Þing­flokk­ur­inn, sem taldi upp­haf­lega fjóra en telur nú tvo, hefði mælt fyrir hátt í 40 þing­manna­málum á kjör­tíma­bil­inu. Ekkert þeirra hafi fengið braut­ar­gengi.

Inga sagði að það væri með ólík­indum að hlusta á söng ann­arra þing­manna sem fengið hafði að hljóma úr ræðupúlti Alþingis þetta mánu­dags­kvöld. „Nánast allir þeir tals­menn sem hér hafa komið upp hafa sjálfir eða sjálfar verið í rík­is­stjórn og hafa haft aðstöðu og aðstæður til að hafa hlut­ina svo­lítið öðru­vísi: Við viljum þetta og við viljum hitt. – En af hverju hefur það þá ekki verið gert? En eitt er alveg víst að þessi rík­is­stjórn hefur ekki rétt okkur marga steina til að reyna að byggja þessa brú á milli þeirra sem allt eiga og hinna sem eiga ekk­ert.“

Hún spurði svo hvað þjóðin vildi í kosn­ing­unum í haust, og sér­stak­lega hvort hún vildi virki­lega óbreytt ástand, þar sem sér­hags­munir og græðg­i­svæð­ing ráði ríkjum? Inga tal­aði í kjöl­farið um mannauð­inn sem fengi aldrei að blómstra. „Mannauð­inn sem býr líka í öryrkjum, öldruðum og fötl­uðum ein­stak­lingum, gríð­ar­stór mannauður sem ekki er nýttur og aldrei fær að blómstra.[...]Það er með hreinum og klárum ólík­indum þegar við komum hér með fjár­auka eftir fjár­auka, fjár­mála­á­ætlun til fimm ára, við komum hér með fjár­lög og samt er enn þá skil­inn eftir risa­stór hópur úti í sam­fé­lag­inu sem ekki er tekið utan um.“

Hún rifj­aði svo upp orð Katrínar Jak­obs­dóttur, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í umræðum um stefnu­ræðu þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar, sem flutt var í sept­em­ber 2017, skömmu áður en rík­is­stjórn hans sprakk. Þar hafi Katrín sagt að það að láta fátækt fólk bíða eftir rétt­læt­inu væri það sama og að neita því um rétt­læti. „Samt er það svo núna undir for­ystu Vinstri grænna og hæstv. for­sæt­is­ráð­herra, sem mælti þessi orð á þeim tíma, að biðraðir lengj­ast í hjálp­ar­stofn­anir þar sem fátækt fólk er að biðja um mat.“

Inga sagði að Flokkur fólks­ins hafi mælt fyrir 350 þús­und króna lág­marks­fram­færslu skatta- og skerð­inga­laust, en að því hafi ekki bara verið alger­lega hafnað og sópað út af borð­inu, heldur hafi ekki einu sinni verið hlustað á það hvernig flokk­ur­inn vildi fjár­magna þetta.

Hún lauk ræðu sinni á eft­ir­far­andi hátt: „Ég ætla að vona að þið getið öll, kæru landar mínir, átt sem ánægju­leg­ast sumar. Því að ég veit að það eru mjög margir sem fá ekk­ert sum­ar­frí og geta ekki gert sér neinn daga­mun af því að þeir hafa ekki efni á því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár