Alþjóðleg áhrif og átök í íslenskri bókaútgáfu

Kaup streym­isveit­unnar Storytel á langstærstu bóka­út­gáfu á Íslandi hafa vakið undrun á meðal höf­unda og í útgáfu­heim­inum. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og Bára Huld Beck blaða­maður skoð­uðu málið frekar.

Bóka­út­gef­endur eru aug­ljós­lega ekki vanir að halda blaða­manna­fundi, varð annarri okkar að orði þegar við stigum inn í feikistóran bókala­ger For­lags­ins, við Fiski­slóð, til að fylgj­ast með blaða­manna­fundi vegna til­kynn­ingar fyrr um morg­un­inn þess efnis að sænska hljóð­bóka­veitan Storytel AB hefði keypt 70 pró­sent í For­lag­inu, langtum stærsta útgáfu­fyr­ir­tæki lands­ins. Hið rót­gróna bók­mennta­fé­lag Mál og menn­ing, sem átti 87 pró­sent hlut, mun áfram eiga 30 pró­sent hlut í félag­inu og er ætl­unin að Forlagið starfi áfram sem sjálf­stætt bóka­for­lag, aðskilið frá streym­isveitu Storytel á Íslandi.

Nema jú, á bóka­mess­unni í Frank­furt, sagði hin, þar þurfti að halda ófáa blaða­manna­fundi! Með því vís­aði hún til árs­ins 2011 þegar Ísland var þar í for­grunni svo íslenskar bók­menntir voru þýddar yfir á þýsku á færi­bandi, nokkuð sem á sínum tíma opn­aði hlið út í heim.

Við mættum tvær á fund­inn; Bára Huld blaða­maður á Kjarn­anum og Auður, rit­höf­undur sem hefur, þangað til nýverið, verið við­loð­andi Mál og menn­ingu síðan á ung­lings­árum og er einnig vara­maður í Rit­höf­unda­sam­bandi Íslands.

Kannski var líka eitt­hvað skáld­legt við þennan blaða­manna­fund sem stakk í stúf við aðra slíka sem við höfum mætt á. Ef orðið skáld­legt er ennþá brúk­legt, því í sam­tali við fram­kvæmda­stjóra Rit­höf­unda­sam­bands­ins, Ragn­heiði Tryggva­dóttir, hafði komið fram að starfs­maður Storytel í Svíþjóð hefði leið­rétt hana í sím­tali og sagt: Við notum helst ekki orðið litt­eratur!

Eitthvað við setn­ing­una minnir á and­ann í Meist­ar­anum og Margar­ítu. Djöf­ull­inn hefði undir eins breytt þess­ari konu í korn­hænu!

En svo má spegla þessi við­skipti í nýrri litt­er­a­túr, t.d. skáld­sög­unni Lítill heimur eftir David Lodge, því bók­mennta­heim­ur­inn verður stöðugt alþjóð­legri og íslenskur útgáfu­heimur þarf að laga sig að mark­aðslög­málum umheims­ins sem eru síbreyti­leg, en þessar umbreyt­ingar opna fyrir marg­slungn­ara sam­tal um þróun útgáfu. Og ef maður sætir færis að hafa skáld­legt gaman af þessu, þá er lúm­skt skondið að heyra ein­hverja bölsót­ast yfir meintum kap­ít­alistum í Mál og menn­ingu, í þá veru að þeir séu að selja íslenskar bók­menntir úr landi og kannski á ein­hver höf­undur eftir að skrifa sína Atómstöð um það. Það er af sem áður var … eða hvað? Við búum jú í breyttum heimi.

Allur útgáfubransinn er á ákveðnu breytingaskeiði

Fleira bar á góma í sam­tal­inu við fram­kvæmda­stjór­ann, eins og það að sala Máls og menn­ingar á 70 pró­sent eign­ar­hluti skili engu til höf­unda, sem búa aðeins að samn­ingi sínum og sölu bóka sinna, en ráð megi gera fyrir að selj­endur fái háa upp­hæð fyrir eign­ar­hlut­inn með öllu sem þar er inni­falið, og þá er helsti feng­ur­inn vænt­an­lega aðgengið að drjúgum hluta íslenskra bók­mennta á einu bretti.

Mál og menn­ing er sjálfs­eign­ar­fé­lag og mun styrkj­ast við þetta, raunar svo að segja má að Forlagið sé komið í höfn, á tví­sýnum óvissu­tímum í bóka­út­gáfu, eftir stór­tækan for­sendu­brest í kjöl­far COVID-19; þegar miklu máli skiptir að stærsta for­lag lands­ins haldi velli. Samn­inga­við­ræð­urnar hófust þó að sögn kunn­ugra fyrir það ástand eða í jan­úar síð­ast­liðnum. Þess ber að geta að Egill Örn Jóhanns­son, sem átti hlut á móti Mál og menn­ingu í For­lag­inu, seldi hann, en verður áfram fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Áður hafði Mál og menn­ing keypt hlut föður hans, Jóhanns Páls Valdi­mars­sonar, stofn­anda JPV sem við þekktan sam­runa varð að For­lags­inu. Á tímum Jóhanns Páls voru þeir feðgar vanir að ávarpa hjörð höf­unda í jóla­boð­inu árlega, á þessum sama lager, og skála fyrir ævin­týra­lega góðu gengi í því flókna við­skiptaum­hverfi sem bóka­út­gáfa velk­ist um í, vel­gengni sem m.a. spratt úr sam­spili við­skipta­vits son­ar­ins og djarfri upp­á­tekta­semi föð­ur­ins – sem sonur hans þurfti stundum að hemja.

Egill Örn var á blaðamannafundinum í vikunni.
Egill Örn var á blaða­manna­fund­inum í vik­unni.

Á bókala­gernum voru skreyttar bolla­kökur á borði og ein­hverjir fjöl­miðla­menn mættir með sjón­varps­upp­töku­vélar. Upp við vegg stóðu full­trúar For­lags­ins, gam­al­kunnug and­lit, ásamt aðeins sól­brúnni og sum­ar­legri Skand­inövum, full­trúum Storytel. Enginn virt­ist ætla að segja neitt svo rit­höf­und­ur­inn vissi ekki fyrr en hún var búin að taka sér stöðu and­spænis gömlu sam­starfs­fólki og útlenskum við­skipta­mönnum til að spyrja, á lif­andi Bjark­arensku, út í vanga­veltur sem höfðu kviknað á facebook og í sam­tölum við kollega eftir að frétta­til­kynn­ingin birt­ist.

Brosandi yfir­veg­aðir voru full­trúar Storytel fljótir að svara skáld­kon­unni, þar sem hún var mætt í snjáðri lopa­peysu með apó­teks­gler­augu, enda hafði ætl­unin verið að þrífa eld­hús­skápana og skrifa kannski eitt ljóð! – áður en frétta­til­kynn­ingin skall á.

Hana rám­aði í að hafa í sam­tal­inu við fram­kvæmda­stjóra Rit­höf­unda­sam­band Íslands heyrt vitnað í norskan lög­fræð­ing í höf­und­ar­rétti; konu sem við­mæl­and­inn vissi ekki hvort vildi láta geta sín, en sem hafði sagt á árs­fundi Norrænu rit­höf­unda­sam­tak­anna: Það er ekki spurn­ing að Storytel er gott við­skipta­módel fyrir við­skipta­menn en það verður aldrei fyrir höf­unda.

Hvað viljið þið segja um þetta? spurði Auður eftir að hafa vitnað í ummælin.

Otto Sjöberg, stjórn­ar­for­maður útgáfu­fé­laga í eigu Storytel á Norð­ur­lönd­unum, greip orðið: „Ég tel að þetta sé við­skipta­módel í þróun. Áskrift í gegnum streymi kom mjög nýlega til sög­unnar en við sjáum á sænskum mark­aði – en meðal nor­rænu mark­að­anna er hann lang þroskað­astur – að hann er enn að þró­ast. Allur útgáfu­brans­inn er á ákveðnu breyt­inga­skeiði svo við verðum að finna nýjar aðferðir til þess að geta skapað ann­ars konar vett­vang. Svo þetta er módel í þróun. Við höfum séð að les­endum líkar vel við þetta fyr­ir­komu­lag, til dæmis í Svíþjóð er 50 pró­sent skáld­sagna fyrir full­orðna streymt þannig að sú þróun hefur auk­ist til muna. Þetta á við um öll Norð­ur­löndin.“

Otto Sjöberg telur viðskiptamódelið enn vera í þróun.
Otto Sjöberg telur við­skipta­mód­elið enn vera í þróun.

Auður hafði næst orð á því að í röðum rit­höf­unda hefði heyrst gagn­rýni á við­skipta­mód­elið, m.a. rætt hversu sann­gjarn hlutur þeirra væri.

Sjöberg svar­aði á þessa leið: „Ég veit ekki hvernig þessu er hagað hér á Íslandi en þetta er alltaf í umræð­unni. En eins og ég sagði áðan þá er við­skipta­mód­elið að þró­ast um leið og brans­inn breyt­ist.“

Hvað með hlut rit­höf­und­anna sjálfra og hvernig staðið er að honum? spurði Auður.

„Það er inn í sam­komu­lag­inu að við viljum skýra ferlið allt og gera samn­ing­ana gagn­særri fyrir íslenska rit­höf­unda.“ sagði Halldór Guð­munds­son, stjórn­ar­for­maður For­lags­ins og Máls og menn­ingar, þá.

Eldri verk hafa vaknað til lífsins

Næst varð Sjöberg að orði: „Eitt sem er mjög mik­il­vægt að velta fyrir sér í þessu sam­hengi eru eldri höf­und­ar­verk. Nú eiga þau end­ur­komu – þau er að koma til baka því þegar höf­undur gefur út nýja bók þá mun hann hagn­ast af sínum eldri verkum. Ef þú horfir á hefð­bund­inn smá­sala þá sérðu að minna hefur verið um sölu á eldri höf­und­ar­verkum og í raun hefur dregið veru­lega úr henni. En núna sjáum við það í gegnum áskriftir að þegar les­andi finnur höf­und sem honum líkar við, þá leitar hann að eldri verkum. Eldri höf­und­ar­verk hafa því vaknað til lífs­ins vegna þessa. Sem útgef­andi finnst mér þetta mjög mik­il­vægt.“

Rustan Panday, stjórn­ar­for­maður Storytel Group, sagði þá að Storytel hefði aukið hefð­bundna bók­sölu í Svíþjóð, en fór þó ekki út í ítar­legar grein­ingar á því.

Sjöberg lagði áherslu á að mik­il­vægt væri að ræða þessa hluti. „Það sem við erum að sjá núna er upp­haf mik­illa breyt­inga í útgáfu­geir­anum. Á meðan slíkum umskiptum stendur munu koma upp alls konar áskor­anir fyrir alla hlut­að­eig­endur; fyrir höf­unda, for­lögin og fyrir áskrift­ar­þjón­ustur. Við verðum öll að vera opin fyrir breyt­ingum í útgáfu­lands­lag­inu. Ég tel að þegar spurt er um við­skipta­módel þá verður að benda á að margt mun ger­ast á kom­andi árum, þetta er í raun nýr bransi. Útgáfu­brans­inn er einn sá elsti í heim­inum, eða um 500 ára gam­all, og í honum hefur verið notað sama módel nán­ast allan tím­ann.“

Hann upp­lýsti að bak­grunnur hans hefði verið í fjöl­miðla­brans­anum og að hann þekkti því vel breyt­ingar í gegnum hann. „Allir hafa upp­lifað krefj­andi áskor­anir sem koma í kjöl­far breyt­inga.“

Hvað með aðstæður hér, bóka­út­gáfa er við­kvæmur bransi á Íslandi? spurði Auður.

Sjöberg sagði að þetta væri auð­vitað mjög við­kvæmt umræðu­efni. „En við höfum fengið sömu spurn­ingar í Svíþjóð. Hvað mun þetta í raun þýða fyrir útgáfu? Við höfum séð að það sé gott að hafa eig­anda sem er við­rið­inn brans­ann – því þegar hann breyt­ist verðum við að skilja hvort annað,“ svar­aði hann og bætti síðan við: „Ég geri mér grein fyrir því að íslenskur útgáfu­bransi sé ekki eins þrosk­aður enn og sá sænski en það sama má segja um hinn finnska. Við sjáum þó miklar breyt­ingar þar í landi. Það er alltaf betra að sýna frum­kvæði og vera sjálfur við stjórn­ina.“

Rustan Panday segir að Storytell hafi verið stofnað fyrir bókaunnendur – og að fyrirtækið þurfi sögur fyrir viðskiptavinina.
Rustan Panday segir að Storyt­ell hafi verið stofnað fyrir bókaunn­endur – og að fyr­ir­tækið þurfi sögur fyrir við­skipta­vin­ina.

Af hverju vill Storytel eign­ast hlut í íslenskum bóka­út­gáfu­mark­aði?

Panday svar­aði: „Storytel var stofnað fyrir bókaunn­endur og við þurfum sögur fyrir við­skipta­vini okkar. Við höfum nú um 1.500 íslenska titla á Storytel en það er til gríð­ar­legur fjöldi af eldri höf­und­ar­verkum. Við viljum enn þá fleiri inn fyrir okkar við­skipta­vini og það er mjög dýrt að taka öll þessi gömlu höf­und­ar­verk upp. Svo við viljum fá for­lögin til að taka upp sínar bækur. Höf­und­arnir munu því hafa fleiri bækur á Storytel sem hlust­endur okkar munu síðan nýta sér. Fyrir okkur eru við­skipta­vinir okkar þeir mik­il­væg­ustu og fyrir for­lögin eru það rit­höf­und­arnir, því án þeirra hafa þeir engar sögur.“

Hætta á að risar gleypi bókaútgáfu

Rit­höf­undar eru mik­il­vægir fyrir Storytel – en skiptir hagur þeirra máli?

Um það hefur áður verið rætt á stjórn­ar­fundum í Gunn­ars­húsi, húsa­kynnum Rit­höf­unda­sam­bands­ins, vegna Storytel á Íslandi, m.a. vegna þess að skort hafi þótt gagn­sæi í samn­ingum þess við móð­ur­fé­lagið.

Ragn­heiði Tryggva­dóttur, fram­kvæmda­stjóra rit­höf­unda­sam­bands­ins, var nokkuð brugðið við þær fréttir að Storytel AB í Svíþjóð hefði nú eign­ast 70 pró­sent hlut í stærsta útgáfu­fyr­ir­tæki lands­ins.

„Fyrir það fyrsta er áhyggju­efni að íslensk bóka­út­gáfa yfir­leitt sé í eigu erlendra aðila. Bóka­út­gáfa á örtungu­máli – sem er svo smátt að það nær nán­ast ekki inn í excelskjalið þar sem „stóru“ örtung­urnar eins og norska, danska, sænska og finnska eru mældar – verður að vera drifin að hluta til af öðru en mark­aðslög­málum og ábata­von. Nauðsyn þess að gefnar séu út fjöl­breyttar teg­undir bók­mennta sem spegla íslenskan veru­leika er ómæl­an­leg þegar kemur að und­ir­stöðum menn­ingar,“ sagði Ragn­heiður. Í títt­nefndu sam­tali við hana hafði líka borið á góma að rit­höf­unda­sam­tök, í Evrópu, þá ekki hvað síst á Norð­ur­lönd­unum, hefðu lengi haft af því þungar áhyggjur að risar í líki Google og Amazon kæmu auga á bóka­út­gáfu­mark­að­inn og gleyptu hann í einum bita.

„Þróunin alls staðar, þar sem þetta er byrjað, sýnir að ýmis­legt verður undan að láta og þar er það fyrst fjöl­breytnin sem minnkar,“ benti hún einnig á. „Samkvæmt þeim fréttum, sem þegar hafa borist af kaupum Storytel á 70 pró­sent hlut í For­lag­inu, á að reka útgáf­una áfram óbreytta og allir samn­ingar eiga áfram að gilda. Við spyrjum samt, hversu lengi? Óhjá­kvæmi­lega mun koma að þeim tíma­punkti að ábata­von nýrra eig­enda, sem varla líta á sig sem sér­staka vörslu­menn íslenskrar tungu, muni hafa áhrif á útgáfu­stefnu For­lags­ins.“

Ójafnvægið er þegar alltof mikið

Í þessum vanga­veltum öllum var ekki úr vegi að heyra í rit­höf­undi. Svo við báðum Margréti Tryggva­dóttur, rit­höf­und sem gefur út hjá For­lag­inu og situr í stjórn RSÍ, að segja okkur í stuttu máli hvernig staðan blasir við henni.

„Sko … “ hugs­aði Margrét upp­hátt. „Maður ótt­ast ýmis­legt. Þegar Oddi hætti að prenta bækur og flestar bækur í kjöl­farið prent­aðar í útlöndum fannst mér það svo­lítið eins og þegar Íslend­ingar hættu að geta smíðað skip í gamla daga. Nú er eign­ar­haldið á 70 pró­sent af stærsta útgáfu­fé­lagi lands­ins komið úr landi. Ósjálfrátt sýpur maður hveljur,“ sagði hún en tók síðan fram að eign­ar­hald væri eitt, eig­enda­stefna og dag­legur rekstur væri annað.

„Eign­ar­haldið á For­lag­inu og for­verum þess hefur verið alls­konar og hvorki höf­undar né les­endur hafa endi­lega fundið mik­inn mun. Bjart­sýn­is­mann­eskjan í mér vonar að svo verði áfram og að samn­ingar vegna hljóð­bóka verði jafn­vel eitt­hvað skárri en þeir eru nú og höf­undar beri sann­gjarn­ari hlut úr býtum. Á sama tíma ótt­ast ég að svo verði ekki og að þeir samn­ingar sem höf­undar þó hafa náð við útgef­endur og eru skárri en í fjöl­menn­ari löndum þar sem meiri sala er mögu­leg – og þar með hærri höf­unda­laun, þótt þau séu hlut­falls­lega lægri – þurrk­ist út.“

Hún kvaðst líka ótt­ast um íslenskan bóka­markað ef stóri og vold­ugi aðil­inn á mark­aðnum yrði enn stærri og burð­ugri.

„Ójafn­vægið er þegar alltof mikið. Það sem mér finnst mest spenn­andi og áhuga­vert er þó hvað verður um sjálfs­eign­ar­stofn­un­ina Bók­mennta­fé­lagið Mál og menn­ingu sem mér þykir afar vænt um og er nú allt í einu vænt­an­lega stút­full af pen­ingum. Ég vona svo sann­ar­lega að það fé verði til góðs fyrir íslenskar bók­menntir og bóka­markað eins og til var stofnað.“

Í Rit­höf­unda­sam­band­inu hafa verið viðr­aðar áhyggjur af sam­ings­stöðu íslenskra höf­unda og vanga­veltur kviknað; hvort það gæti mögu­lega haft áhrif á ramma­samn­ing RSÍ og FÍBÚT – sem er þessa dag­ana í end­ur­skoðun. Gæti svo farið að erlent stór­fyr­ir­tæki setji afar­kosti í slíkum við­ræðum, í sam­fé­lagi útgef­enda og rit­höf­undar, þar sem bæði liggja sam­eig­in­legir hags­munir og hags­muna­á­rekstrar verða á köflum; í bransa sem sam­einar báða aðila og er flók­inn og um margt sér­stakur á Íslandi.

Blaðamannafundurinn var haldinn í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð.
Blaða­manna­fund­ur­inn var hald­inn í bóka­búð For­lags­ins á Fiski­slóð.

Á fund­inum spurði Auður hvort þessi kaup hefðu áhrif á samn­inga­for­sendur íslenskra höf­unda og svar­aði Egill um hæl að svo væri ekki. „Þetta mun hafa nákvæm­lega engin áhrif á samn­ings­stöðu íslenskra höf­unda við Forlagið eða Storytel. Forlagið mun alfarið halda áfram að starfa sem sjálf­stætt fyr­ir­tæki sem semur við höf­unda á grunni og eftir ramma­samn­ingi Félags íslenskra bóka­út­gef­anda og Rit­höf­unda­sam­bands­ins.“

Í sama streng tók Hólm­fríður Matth­í­as­dóttir, útgáfu­stjóri For­lags­ins. „Við fylgjum ramma­samn­ingi Rit­höf­unda­sam­bandi Íslands og Félagi íslenskra bóka­út­gef­anda, hvernig sem hann er og verður. Þetta mun ekki hafa áhrif á þá samn­inga, alls ekki,“ sagði hún.

Að sögn full­trúa For­lags­ins sem við ræddum við er stefnan að Forlagið starfi áfram sjálf­stætt og á þeim má skilja að öðrum útgáfu­fé­lögum á Norð­ur­lönd­unum hafi vegnað vel á þessum for­sendum. Í frétt á Kjarn­anum í vik­unni mátti sjá eft­ir­far­andi ummæli Jonas Tellander, for­stjóra og stofn­anda Storytel: „Við erum gríð­ar­lega ánægð með þessa nýj­ustu við­bót við Storytel fjöl­skyld­una og öfl­ugt net útgáfu­fé­laga okkar á Norð­ur­lönd­un­um. For­lagið sómir sér þar vel meðal virtra félaga á borð við Nor­stedts För­lags­grupp, Gum­merus Publ­is­hers og Peop­le’s Press. Við erum spennt að hefja sam­starf með reynslu­miklum útgef­endum For­lags­ins sem deila ástríðu okkar fyrir góðum sög­um.“

Í höf­uð­stöðvar rit­höf­unda­sam­bands­ins hafa þó borist flókn­ari frá­sagnir. Upp­lýs­ingar sem að RSÍ hefur frá syst­ur­sam­tökum sínum á Norð­ur­lönd­unum ganga að sumu leyti þvert á þær yfir­lýs­ingar að höf­undar séu almennt sáttir og ánægðir.

Ragn­heiður nefndi að fyrr­ver­andi for­maður rit­höf­unda­sam­bands­ins í Svíþjóð, Gunnar Ardelius, hefði í fjöl­mörgum við­tölum lýst yfir áhyggjum sínum af við­skipta­mód­el­inu sem Storytel AB stæði fyrir.

Hætta ekki að gefa út prentaðar bækur

Við spurðum útgáfu­stjór­ann, Hólm­fríði Úu Matth­í­as­dóttur, hvað þau hefðu að segja við þá höf­unda sem hefðu áhyggjur af þessum kaupum. „Við segjum fyrst og fremst að það sé ekk­ert að breyt­ast innan For­lags­ins. Þetta er sama fólkið, sömu áherslur og sami útgáfu­listi; það mun ekk­ert breyt­ast í okkar sam­skiptum við þau. Það eina sem mun breyt­ast með tím­anum er það að við ætlum að fram­leiða fleiri hljóð­bækur sem var alltaf á stefnu­skránni hjá okkur. Nú fáum við auk­inn kraft til að gera það.“

Egill Örn og Hólmfríður spjölluðu við Auði og Báru Huld á fundinum. Hólmfríður segir að ekkert muni breytast í samskiptum við höfunda við kaupin.
Egill Örn og Hólm­fríður spjöll­uðu við Auði og Báru Huld á fund­inum. Hólm­fríður segir að ekk­ert muni breyt­ast í sam­skiptum við höf­unda við kaupin.

Hún sagði að umhverfið væri að breyt­ast og þró­ast í tækni og þróun og með þessu yrði von­andi hægt að bregð­ast fyrr við þeim breyt­ingum. „Við erum ekki að fara að hætta að gefa út prent­aðar bækur. Það er alveg víst.“

Hólm­fríður sagði að fyrst og fremst sæju þau hjá For­lag­inu tæki­færi í þessum breyt­ingum á eign­ar­haldi og benti á að nú væru óvissu­tímar framundan. „Við erum á þessum umbreyt­ing­ar­tímum og við verðum nátt­úru­lega að gera þetta fag­mann­lega og í sam­vinnu við höf­undana á skyn­saman hátt þannig að útkoman sé góð fyrir alla – og þegar ég segi alla þá á ég við höf­unda og útgef­endur.“ Hún sagð­ist gera sér grein fyrir því að þetta væru óvæntar fréttir fyrir marga og væri hún að reyna að hafa sam­band við sem flesta til að ræða þetta og útskýra.

Stærsta forlagi Íslands vonandi siglt í örugga höfn

Halldór Guð­munds­son er stjórn­ar­for­maður Máls og menn­ingar, en hann var árum saman útgáfu­stjóri sama félags. Óhætt er að full­yrða að hann búi yfir óvenju marg­slung­inni reynslu á sviði alþjóð­legrar útgáfu, en hann var í for­svari fyrir Ísland þegar það var gesta­þjóð á bóka­mess­unni í Frank­furt og síðar einnig fyrir Noreg; auk þess sem hann hefur skrifað á þýsku sér­stak­lega fyrir þýskan markað.

Halldór á eft­ir­tekt­ar­verðan frum­kvöðla­þátt í útrás íslenskra höf­unda, bæði með því að leggja grunn að henni í Mál og menn­ingu á sínum tíma og með því að tengja íslenska útgáfu við áður­nefnda alþjóð­lega sölu­messu, ásamt Árna Ein­ars­syni, sem einnig er í stjórn félags­ins, og ýmsum fleirum, eins og Valgerði Bene­dikts­dóttur, sem hefur ára­tugum saman haldið saman erlendu rétt­inda­deild­inni innan Eddu útgáfu og í For­lag­inu; rétt eins og Hólm­fríður sem starf­aði jafn­framt lengi í útgáfu í Barcelona. Þó er óhætt að segja að sú stað­reynd að Halldór hafi verið alinn upp í Þýska­landi og löngum búið yfir djúpu, marg­slungnu tengsla­neti þar, jafnt sem á Norð­ur­lönd­unum, hafi haft skáld­leg áhrif á íslenska útgáfu.

Halldór benti á í sam­tali við Auði og Báru Huld að Íslend­ingar horfðu nú fram á mjög erf­iða kreppu­tíma, nú þegar við siglum inn í heimskreppu, og þá væri gaman að sjá áhuga erlendra aðila á íslenskri bóka­út­gáfu. Hann tók sér­stak­lega fram að þarna væri um að ræða breyt­ingu á eign­ar­haldi á For­lag­inu, það rynni ekki inn í Storytel. „Svo er þetta nátt­úru­lega þannig að landa­mæri bóka­út­gáfu eru tungu­málið. Þú ferð ekk­ert með íslensk­una eða íslenskar bækur í burtu. Við vonum að Storytel eigi eftir að efla fyr­ir­tækið og geri það með því að leggja okkur lið með meiri útgáfu með raf­rænum hætti.“

Hann sagði að nú, í miklu sam­drátt­ar­skeiði í íslenskri bók­sölu, væri búið að taka stærsta for­lag Íslands og sigla því í það sem hann vonar að reyn­ist örugg höfn.

„Það finnst mér mik­ill ávinn­ingur – og svo vona ég að við höfum gæfu til að láta þetta þró­ast,“ sagði hann og bætti því næst við: „Við þurfum að grípa gæs­ina – þeir sem vinna hjá For­lag­inu, höf­undar og aðrir verða að hugsa út í það. Við getum átt sam­eig­in­lega sókn inn á alþjóða­mark­aði.“

En viltu spá ein­hverju um hversu mikil áhrif á hljóð­bókin eftir að hafa á bóka­út­gáfu?

Halldór sagði að eng­inn vissi það í reynd.

Hann taldi ekki að minna væri að selj­ast af prent­uðum bókum vegna hljóð­bókanna. „Ef við horfum alveg raun­sætt á þetta þá hefur venju­leg fýsísk bók­sala hægt og hægt dreg­ist saman. Við verðum að horfast í augu við það. Þannig hefur það verið – miklu meira í sumum greinum og minna í öðrum. Skáld­sögur hafa oft haldið sér vel en orða­bækur eru til dæmis hættar að koma út. En hljóð­bókin hefur verið stöðugri sókn.“

En nú hefur verið kurr í RSÍ út af samn­ingum höf­unda við Storytel á Íslandi. Viltu segja eitt­hvað um það?

„Forlagið ber ekki ábyrgð á því. Það á nú alveg að vera hægt á þessum litla mark­aði að setj­ast niður og búa til skýra og góða samn­inga – og við settum það inn í þetta sam­komu­lag núna að báðir aðilar myndu vinna að því en á sama tíma erum við að reyna að koma með kraft og nýj­ungar á markað sem hefur átt í miklum vanda. Ég held að það hafi verið unnið heil­mikið í því að bæta þá samn­inga og maður sér nátt­úru­lega á reikn­ingum Storytel á Íslandi að þeir borga veru­legar höf­unda­greiðslur sem hlut­fall af sinni veltu. Svo erum við að sjá að vegna hljóð­bók­ar­innar er bóka­lestur að aukast.“

Halldór segir að bókalestur sé að aukast í kjölfar tilkomu hljóðbókarinnar.
Halldór segir að bóka­lestur sé að aukast í kjöl­far til­komu hljóð­bók­ar­innar.

Hann sagði að þar sem hann væri sjálfur rit­höf­undur þekkti hann umræð­una vel í kringum for­lögin. „Ég hef alveg skiln­ing á því vegna þess að allir rit­höf­undar eru í „one man warfare“ og þurfa að gæta sinna hags­muna en við megum ekki mis­skilja það að breytt eign­ar­hald þýði að Forlagið fari eitt­hvað eða að það að vera sýni­legra á hug­veitum geri það allt í einu að verkum að bækur selj­ist ekki. Neyslu­mynstur eru mis­jöfn og breyt­ast með kyn­slóðum.“

Halldór benti jafn­framt á að tvær megin ástæður væru fyrir þessu.

„Annars vegar: á þessum óvissu­tímum er mik­il­vægt að fá inn öfl­ugan aðal­eig­anda. Og þar að auki eig­anda sem er sér­hæfður í hljóð- og raf­bókum – því við höfum siglt hratt inn í staf­ræna tíma. Nú er gíf­ur­leg eft­ir­spurn eftir hljóð­bókum, en þetta hefur setið á hak­anum í íslenskum for­lögum. Lestr­ar­venjur breyt­ast með tím­anum, en ég vil líka kalla hlustun á hljóð­bækur lestur,“ sagði hann og hélt svo áfram: „Útgáfa er jafn­framt að verða alþjóð­legri og það er mik­il­vægt að rödd íslenskra bók­mennta heyr­ist betur erlendis. Hér með teng­ist íslensk útgáfa alþjóð­legri þróun og hvernig tek­ist er á við hana. Útgáfa rétt eins og annað er að alþjóða­væð­ast og er mjög gott fyrir íslenska útgáfu að fá þessa teng­ingu inn í alþjóð­legan heim. Og ég held að það geti líka orðið til hags­bóta fyrir neyt­endur, eða rétt­ara sagt les­endur.“

Öllum bregður við breytingar

Samn­ing­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og sagð­ist Halldór ekki geta metið hvort hann myndi hafa áhrif á aðra bóka­út­gef­endur. „Íslenskur bóka­mark­aður er mjög aðgengi­legur, það getur nán­ast hver sem er sest niður og gefið út bók, þ.e. fram­leiðslan er orðin ódýr­ari. En það er ekki mikið um bóka­mark­aði í Evrópu sem er aðgengi­legri en okkar litli mark­aður. Sem sé í þess­ari sam­keppn­is­merk­ingu; að það sé auð­velt að kom­ast inn á hann.“

Hann sagð­ist hafa fullan skiln­ing á því að rit­höf­undum hefði brugðið við fréttir af kaupum Storytel á For­lag­inu. „Öllum bregður við breyt­ingar en það er líka hægt að prófa að opna hug­ann og spyrja sig: Eru tæki­færi í þessu?“

Hann telur að íslenski bóka­mark­að­ur­inn sé ekki svo frá­brugð­inn öðrum – ein­ungis minni og aðgengi­legri. „Ég sé ekki að sam­band útgef­anda og höf­unda ætti að breyt­ast við þetta.“

Samofinn og sensitívur útgáfuheimur

Hinir og þessir sem við heyrðum í, bæði útgef­endur og rit­höf­undar, hljóm­uðu undr­andi, sumir for­vitnir og ein­hverjir um leið að ein­hverju leyti gagn­rýnir á þessi óvæntu umsvif, en ekki voru allir að sama skapi reiðu­búnir til að tjá sig um þau opin­ber­lega, öðru­vísi en að segja þetta mikil tíð­indi. Kannski er það til marks um hversu sam­of­inn og sensi­tívur útgáfu­heim­ur­inn er í nábýl­inu á Íslandi; þetta sam­fé­lag höf­unda og útgef­anda, ýmist í sam­vinnu eða líf­legum rök­ræðum, sem þó birt­ist að miklu leyti saman eins og fjöl­skylda í jóla­bóka­flóð­inu ár hvert. Og kannski er sam­fé­lagið eins konar fjöl­skylda – með öllum þeim átökum sem því fylgja.

Sitt sýn­ist hverjum og auð­vitað er hlut­verk Rit­höf­unda­sam­bands­ins að vera á tánum fyrir félags­menn sína, mis­burð­uga í við­skiptum og kjar­aum­leit­unum, um leið og það er hlut­verk útgef­enda að finna leiðir til að halda lífi í útgáf­unni.

Hvort þessi umsvif eiga eftir að opna spenn­andi leiðir og stuðla að alþjóð­legri sam­vinnu í breyttum útgáfu­heimi, þar sem er við­buið að verði ófyr­ir­sjá­an­legar áskor­anir, eða fæða af sér snún­ari sam- og við­skipti í heima­brans­anum kemur í ljós. Kannski ger­ist bæði, tæki­færin blómstra og um leið átök og álita­mál. Þannig er útgáfu­brans­inn og líka veru­leik­inn, aldrei svart hvítur, frekar í lit, þó að lit­brigðin séu stundum með fal­lega áferð og stundum ekki. Og svo er að sjá hvað Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir!

Að lokum: ein­hverjar vanga­veltur heyrðum við um hverjir eiga stærstan hlut í Storytel, en hér má sjá það í stórum dráttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár