Formaður VM: Rio Tinto „alþjóðlegur auðhringur sem á sér viðbjóðslega sögu um allan heim“

Rio Tinto er alþjóð­legur auð­hringur sem á sér við­bjóðs­lega sögu um allan heim, þar sem manns­líf hafa litlu skipt í leit þeirra að auknum hagn­aði. Þetta segir Guð­mundur Ragn­ars­son, for­maður félags vél­stjóra og málm­tækni­manna, í nýjum pistli. Guð­mundur fer hörðum orðum um Rio Tinto Alcan og fram­göngu fyr­ir­tæk­is­ins í kjara­deilu fyr­ir­tæk­is­ins og starfs­mann­anna í álver­inu í Straums­vík. Verkfall hefst í álver­inu í næstu viku ef ekki hefur samist fyrir þann tíma.

„Um hvað snýst deilan í ÍSAL í raun? Hún snýst um alþjóða­væð­ingu auð­hringa sem beita öllum ráðum til að sjúga eins og þeir geta út úr þeim hag­kerfum sem þeir starfa í, með því að greiða lág laun, helst enga skatta né aðrar skyldur,“ skrifar Guð­mundur í pistl­inum. Hann segir að sam­fé­lagið verði að átta sig á því að deilan snú­ist ekki um þessi störf sem Rio Tinto vilji fá í verk­töku, en um það hefur verið deilt í kjara­deil­unni. Það skili fyr­ir­tæk­inu engu í þeirri miklu veltu og litla launa­kost­aði sem það hafi.

„Við höfum látið þessi fyr­ir­tæki hafa orku á hag­kvæmu verði til að fá þau hingað. Þau hafa óhindr­aða mögu­leika á að lána sjálfum sér á okur­vöxtum og kom­ast þannig hjá að greiða eðli­lega skatta af hagn­aði,“ segir Guð­mundur. Ef láta eigi þeim eftir að fá vinn­una gef­ins líka, „þá er lítið fyrir okkur að hafa, sem sam­fé­lag, af veru þeirra hér. Það verður að stoppa þetta í fæð­ingu.“ Ef það verði ekki gert muni hin stór­iðju­fyr­ir­tækin fara sömu leið til þess að skera niður launa­kostnað, eflaust með hót­unum um að loka og fara ef þau fái ekki sitt fram. 

Guð­mundur segir það vera Samtökum atvinnu­lífs­ins til ævar­andi skammar að „vera farin að ganga erinda auð­hringa til að skaða íslenskt sam­fé­lag.“ Hann gagn­rýnir líka Lands­virkjun fyrir að veita ekki upp­lýs­ingar um ákvæði raf­orku­samn­ings­ins við Rio Tinto.

Hann skorar á þing­menn að styðja kröfu starfs­manna í álver­inu og taka slag­inn við auð­hring­inn. „Látum hann finna fyrir að við ætlum ekki að láta vaða yfir okkur.“

Hann segir fyr­ir­tækið spila ljótan leik ef það er að nota starfs­fólkið til að fá hag­kvæm­ari raf­orku­samn­ing sýni það skít­legt eðli eig­end­anna. Ef ætl­unin sé að loka eigi að hafa kjark til að gera það á réttum for­sendum. Lokun sé mikið áhyggju­efni og afkoma margra sé í húfi. „Alþjóð­legir auð­hringir skeyta hvorki um manns­líf, ein­stak­linga, fjöl­skyldur, sam­fé­lög eða annað til að hámarka gróða sinn,“ segir Guð­mundur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár