Reykjavík ber uppi félagslega þjónustu á höfuðborgarsvæðinu

Íbúar Reykja­víkur borga tvö­falt hærri upp­hæð en allir hinir íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í veitta félags­þjón­ustu. Um 29 pró­sent af öllum skatt­tekjum höf­uð­borg­ar­innar fara í slíka þjón­ustu á meðan að þeir sem búa í Kópavogi borga undir 15 pró­sent.

Íbúar Reykja­víkur borga tvö­falt hærri upp­hæð en allir hinir íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í veitta félags­þjón­ustu. Um 29 pró­sent af öllum skatt­tekjum höf­uð­borg­ar­innar fara í slíka þjón­ustu á meðan að þeir sem búa í Kópavogi borga undir 15 pró­sent. Til við­bótar er Reykja­vík í sér­flokki þegar kemur að upp­bygg­ingu á hús­næði fyrir lág­tekju­hópa.

Í fyrra fóru 29,1 pró­sent af þeim skatt­tekjum sem höf­uð­borg lands­ins, Reykja­vík, inn­heimti af fólki og fyr­ir­tækjum í að standa undir félags­þjón­ustu af ýmsum toga. Hlut­fallið hækk­aði umtals­vert milli ára, en það var 26 pró­sent árið áður. Heild­ar­upp­hæðin sem fór í að greiða fyrir félags­þjón­ustu í Reykja­vík var 32,9 millj­arðar króna. Í höf­uð­borg­inni bjuggu alls 133.290 manns um síð­ustu ára­mót. Það þýðir að hver og einn Reyk­vík­ingur greiddi 246.830 krónur í félags­þjón­ustu á síð­asta ári.

Um er að ræða fjár­hags­að­stoð til þeirra sem þurfa á slíkri að halda, þjón­ustu við börn og ung­linga, þjón­ustu við fatlað fólk og aldr­aða og ýmis­legt annað sem fellur undir mála­flokk­inn.

Þetta mál lesa úr talna­efni sem birt hefur verið á vef Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Aukning var í flestum hinna sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þau eru hins vegar öll langt frá því að verja jafn miklum fjár­munum og Reykja­vík­ur­borg í félags­þjón­ustu. Raunar er hlut­fallið af skatt­tekjum sem fer í félags­þjón­ustu undir 20 pró­sent hjá þeim öllum.

Hjá nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum var hlut­fallið hæst hjá Mos­fellsbæ, 19,8 pró­sent og hjá Garðabæ og Hafn­ar­firði þar sem það var 19,7 pró­sent. Sel­tjarn­ar­nes kom þar á eftir með 18,3 pró­sent og Kópa­vogur rekur sem fyrr lest­ina með 14,8 pró­sent.

Samtals greiddu önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 15,3 millj­arða króna í félags­þjón­ustu, eða tæp­lega helm­ing þeirrar upp­hæðar sem íbúar Reykja­víkur greiddu fyrir slíka. Í þessum fimm sveit­ar­fé­lögum bjuggu alls 103.230 manns um síð­ustu ára­mót sem þýðir að með­al­greiðsla á hvern íbúa þeirra var 148.213 krónur. Hver ein­asti Reyk­vík­ingur greiðir því næstum eitt hund­rað þús­und krónum meira á ári í félags­þjón­ustu en íbúar hinna fimm sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gera að með­al­tali.

Lægsta framlagið í Kópavogi

Hafn­ar­fjörður er sem stendur það nágranna­sveit­ar­fé­lag höf­uð­borg­ar­innar sem kemst næst því að axla álíka hluta af félags­legu þjón­ust­unni en kostn­aður á hvern íbúa þar var 168.564 þús­und krónu í fyrra. Hver íbúi í Reykja­vík borg­aði samt sem áður 46 pró­sent meira í félags­lega þjón­ustu en hver íbúi í Hafn­ar­firði á árinu 2020.

Lægsta fram­lagið á hvern íbúa var í Kópavogi, þar sem það dróst saman milli ára. Þar greiddi hver íbúi 120.830 krónur í félags­þjón­ustu í fyrra, sem þýðir að Reyk­vík­ingar borga rúm­lega tvisvar sinnum meira fyrir til­urð hennar en sveit­ungar þeirra í næst stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins.

Reykja­vík er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem inn­heimtir hámarks­út­svar, 14,52 pró­sent. Hafn­ar­fjörð­ur, Kópa­vogur og Mos­fells­bær eru ekki langt und­an, þau rukka 14,48 pró­sent í útsvar, en í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi er útsvarspró­sentan 13,7 pró­sent. Það þýðir ein­fald­lega að íbúar nágranna­sveit­ar­fé­laga Reykja­víkur greiða lægri skatta á sama tíma og íbúar Reykja­víkur axla meiri ábyrgð á félags­þjón­ustu, og greiða fyrir vikið hærri skatta.

Reykjavík í sérflokki

Það er sama hvar er drepið nið­ur, Reykja­vík er alltaf að veita lang­mestu félags­legu þjón­ust­una. Mest slá­andi er mun­ur­inn þegar kemur að fjár­hags­að­stoð sem sveit­ar­fé­lögin veita íbú­um.

Sveit­ar­fé­lögum er skylt að veita fjár­hags­að­stoð til fram­færslu ein­stak­linga og fjöl­skyldna sem ekki geta séð sér og sínum far­borða án aðstoð­ar. Í Reykja­vík getur fjár­hags­að­stoð til ein­stak­lings verið allt að 212.694 krónur á mán­uði og hjón eða sam­búð­ar­fólk getur fengið sam­tals allt að 340.310 krónur á mán­uði. Í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru greiðslur að jafn­aði lægri. Fjár­hags­að­stoð í Reykja­vík er til að mynda sjö pró­sent hærri en í Kópavogi og tæp­lega fimm pró­sent hærri en í Garðabæ.

Það þýðir að það borgar sig bein­línis fyrir þá sem þurfa á fjár­hags­að­stoð að halda að flytja sig til Reykja­vík­ur. Þar af leið­andi eru mun fleiri sem þurfa á henni að halda búsettir þar en í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­inn­ar.

Hver íbúi í Reykja­vík­ur­borg borg­aði tæp­lega 35 þús­und krónur með sköttum sínum í það sem flokk­ast undir félags­lega ­að­stoð í fyrra. Þar er að uppi­stöðu um fjár­hags­lega aðstoð að ræða. Kópa­vogur kemur þar næst með tæp­lega 27 þús­und krónur á hvern íbúa, sem þýðir að hver íbúi í Reykja­vík greiðir um 30 pró­sent meira vegna þessa mála­flokks en sá sem býr í Kópavogi.

Samfylkingin, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn mynda meirihluta í Reykjavík. Það er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki í meirihlutastjórn.
Sam­fylk­ingin, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn mynda meiri­hluta í Reykja­vík. Það er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ekki í meiri­hluta­stjórn.

Á sama tíma greiddi íbúi á Sel­tjarn­ar­nesi um sex þús­und krónur vegna félags­legrar ­að­stoðar og hver íbúi í Mos­fellsbæ greiddi um sjö þús­und krón­ur. Með öðrum orðum borg­aði hver Reyk­vík­ingur fimm sinnum meira fyrir að halda uppi þessum mála­flokki fyrir þá íbúa borg­ar­innar sem þurftu á henni að halda en íbúar á Sel­tjarn­ar­nesi gerð­u.

Sinna öldruðum og fötluðum betur

Ljóst er að félags­legar áherslur nágranna­sveit­ar­fé­lag­anna liggja mun frekar í þjón­ustu við aldr­aða og fatl­aða en þá sem glíma við félags­legan eða fram­færslu­vanda. Þegar kostn­aður á hvern íbúa vegna veittrar þjón­ustu við aldr­aða er skoð­aður kemur í ljós að hann var hæstur í Garðabæ, eða 43.394 krónur. Reykja­vík er þó skammt undan en kostn­aður á hvern íbúa þar í fyrra var 42.452 krónur að með­al­tali. Af sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var hann lægstur í Kópavogi, um 16 þús­und krónur á hvern íbúa. Mos­fells­bær og Hafn­ar­fjörður voru skammt undan með kostnað uppá um 17 þús­und krónur á hvern íbúa. Það þýðir að hver íbúi í Garðabæ og Reykja­vík greiddi tæp­lega 170 pró­sent meira vegna þjón­ustu við aldr­aða en íbúi í Kópavogi á síð­asta ári.

Þegar kemur að þjón­ustu við fatl­aða er kostn­aður á íbúa hæstur í Mos­fellsbæ, tæp­lega 133 þús­und krónur. Reykja­vík kemur þar næst með 114 þús­und krónur og í Hafn­ar­firði er kostn­að­ur­inn á hvern íbúa 104 þús­und. Í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er kostn­að­ur­inn undir 81 þús­und krónum á hvern íbúa og lægstur er hann í Kópavogi, tæp­lega 57 þús­und krónur á hvern íbúa. Það þýðir að hver Reyk­vík­ingur borgar að jafn­aði tvisvar sinnum meira fyrir þjón­ustu við fatl­aða en hver íbúi í Kópavogi.

Borgin með 78 prósent félagslegra íbúða

Reykja­vík dregur líka vagn­inn í upp­bygg­ingu á hús­næði fyrir þá hópa sem eru með lægstu tekj­urn­ar. Kjarninn greindi frá því í gær að hlut­deild Reykja­vík­ur­borgar í fram­boði félags­legs hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi vaxið frá árs­lokum 2017, er um 76 pró­sent af félags­legum leigu­í­búðum voru í eigu eða umsjá borg­ar­inn­ar. Hlut­fallið nú er yfir 78 pró­sent.

Alls eru félags­legar íbúðir í eigu eða umsjá sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 3.798 tals­ins, en þetta geta verið félags­­­legar leig­u­í­­búð­ir, leig­u­í­­búðir fyrir aldr­aða í eigu sveit­­ar­­fé­laga, leig­u­í­­búðir fyrir fatl­aða í eigu sveit­­ar­­fé­laga og aðrar íbúðir sem ætl­­aðar eru til nýt­ingar í félags­­­legum til­­­gangi.

Í Reykja­vík eru 22 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa. Það sveit­ar­fé­lag sem kemur næst er Kópa­vogur með tæp­lega 12 íbúðir á hverja þús­und íbúa en félags­legum íbúðum þar hefur fækkað á und­an­förnum árum þrátt fyrir að íbúum hafi fjölgað.

Garðabær (1,6 félags­leg íbúð á hverja þús­und íbúa), Sel­tjarn­ar­nes (3,8 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa) og Mos­fells­bær (3,9 félags­legar íbúðir á hverja þús­und íbúa) eru í sér­flokki þegar það kemur að því að bjóða upp á lítið félags­legt hús­næði.

Nánast allar almennar íbúðir í Reykjavík

Lög um almennar íbúðir voru sam­­þykkt sum­­­arið 2016. Hið nýja íbúða­­­kerfi er til­­­raun til að end­­­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­­­­­lega hús­næð­is­­­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­­­­­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­­­­­legum íbúðum fækk­­­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

Mark­mið þeirra laga var að bæta hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­­ar­­mörkum með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi leig­u­hús­næði. Þannig sé stuðlað að því að hús­næð­is­­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­­getu þeirra sem leigja hús­næðið og fari að jafn­­aði ekki yfir 25 pró­­sent af tekjum þeirra.

Kjarn­inn greindi frá því fyrir ári síðan að íslenska ríkið hefði þá alls úthlutað 15,3 millj­örðum króna í stofn­fram­lög vegna almennra íbúða á land­inu öllu frá árinu 2016, þegar lög um slík fram­lög voru sett. Þær tölur hafa ekki verið upp­færðar á þessu ári, en Kjarninn hefur kallað eftir nýjum tölum frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun.

Í umfjöllun Kjarnans í nóv­em­ber í fyrra kom fram að 11,2 millj­arðar króna hefðu farið í fram­lög vegna upp­bygg­ingar á íbúðum í Reykja­vík sem nýtt hefðu verið til annað hvort að kaupa eða byggja alls 1.923 íbúð­ir.

Allt í allt þá hefðu verið veitt stofn­fram­lög úr rík­is­sjóði til að byggja 2.625 íbúðir á land­inu öllu, sem þýðir að 73 pró­sent af almennu íbúð­unum sem höfðu á þeim tíma annað hvort verið keyptar, byggðar eða voru í bygg­ingu voru í Reykja­vík.

Það þýðir að Reykja­vík hefur verið að taka á sig næstum tvö­faldan hluta af upp­bygg­ingu almenna íbúða­kerf­is­ins en hlut­fall íbúa borg­ar­innar segir til um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnhagmál

Mest lesið undanfarið ár