Tæplega þrjú þús­und félags­legar íbúðir eru í Reykja­vík og rúm­lega 800 til við­bótar í nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Borgin með 78 prósent félagslegra íbúða – en bara 56 prósent íbúa

Félags­legar íbúðir í eigu eða umsjá sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru alls 3.798 tals­ins. Reykja­vík slítur sig frá öðrum sveit­ar­fé­lögum hvað varðar fram­boð á félags­legu hús­næði. Á hinum end­anum er Garðabær svo í sér­flokki.

Hlut­deild Reykja­vík­ur­borgar í fram­boði félags­legs hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur vaxið frá árs­lokum 2017, er um 76 pró­sent af félags­legum leigu­í­búðum voru í eigu eða umsjá borg­ar­innar. Hlut­fallið nú fer yfir 78 pró­sent, sam­kvæmt svörum sveit­ar­fé­laga við fyr­ir­spurnum Kjarnans.

Alls eru félags­legar íbúðir í eigu eða umsjá sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 3.798 tals­ins, en þetta geta verið félags­legar leigu­í­búð­ir, leigu­í­búðir fyrir aldr­aða í eigu sveit­ar­fé­laga, leigu­í­búðir fyrir fatl­aða í eigu sveit­ar­fé­laga og aðrar íbúðir sem ætl­aðar eru til nýt­ingar í félags­legum til­gangi.

Gögnin ekki lengur tekin saman á einum stað

Fram til árs­loka 2017 voru upp­lýs­ingar um fram­boð félags­legs hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu teknar saman af apparati sem sjaldan heyr­ist um, Vara­sjóði hús­næð­is­mála. Fjallað var um síð­ustu könnun sjóðs­ins í frétta­skýr­ingu í Kjarn­anum árið 2018 en síðan þá hefur þetta ekki verið tekið saman með reglu­bundnum hætti.

Kjarninn leit­aði fanga bæði hjá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun, sem fjallar reglu­lega um stöðu hús­næð­is­mála og sömu­leiðis Samtökum sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en fékk þau svör að þar væri þessum upp­lýs­ingum ekki safnað reglu­bundið saman.

Þess í stað var leit­aði Kjarninn svara hjá sveit­ar­fé­lög­unum sex, Reykja­vík, Kópavogi, Garðabæ, Mos­fellsbæ, Hafn­ar­firði og Sel­tjarn­ar­nesi og hafa þau verið að ber­ast und­an­farna daga.

Svörin sem bár­ust eru ekki öll full­kom­lega sam­bæri­leg, sum sveit­ar­fé­lög til­tóku til dæmis íbúðir sem væru í áfram­leigu en ekki í eigu sveit­ar­fé­lags­ins, til dæmis, en fyr­ir­varar eru settir fram þar sem það á við í þess­ari umfjöllun.

Virðist fækka í Kópavogi

Félags­legum leigu­í­búðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur fjölgað í öllum sveit­ar­fé­lög­unum frá því við árs­lok 2017, nema í Kópavogi. Þar var fjöldi félags­legra íbúða sagður 451 í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, en í síð­ustu könnun Vara­sjóðs hús­næð­is­mála voru íbúð­irnar taldar 470 tals­ins. Þarna er þó ef til vill ekki öll sagan sögð, þar sem svar­inu frá Kópavogi fylgdu ekki upp­lýs­ingar um fjölda íbúða fyrir fatl­aða eða aldr­aða í eigu bæj­ar­ins.

Í Kópavogi bjuggu 38.779 manns þann 1. ágúst, sem þýðir að 11,6 félags­legar íbúðir eru á hverja 1.000 íbúa bæj­ar­ins. Í þessum sam­an­burði er Kópa­vogur í öðru sæti á eftir Reykja­vík er kemur að félags­legum íbúðum sem eru í eigu eða umsjá sveit­ar­fé­lag­anna.

Nær nákvæm­lega tífalt fleiri félags­legar íbúðir eru á hverja þús­und íbúa í Kópavogi en Garðabæ, þar sem félags­legar íbúðir eru 1,6 á hverja 1.000 íbúa – alls 30 tals­ins. Það er reyndar að frá­töldum íbúðum eða búsetu­úr­ræðum fyrir fatl­aða í eigu bæj­ar­ins þar sem sam­tals 19 manns búa. Að þeim íbúð­ar­ein­ingum með­töldum má segja að 2,6 félags­legar íbúðir séu á hverja þusund íbúa í Garðabæ – en þar bjuggu 18.194 manns í ágúst.

Í Reykja­vík eru íbúð­irnar alls 2.971 tals­ins. Almennar íbúðir eru 2.112, 431 eru svo útbúnar fyrir fatl­aða, 385 eru fyrir aldr­aða og 43 íbúð­ar­ein­ingar eru fyrir heim­il­is­laust fólk. Að öllu með­töldu er 22 félags­leg íbúð á hverja 1.000 íbúa Reykja­víkur – en þeir voru 134.162 tals­ins þann í upp­hafi ágúst. Heild­ar­fjöldi félags­legra íbúða í Reykja­vík við árs­lok 2017 var sagður 2.513 og hefur þeim því fjölgað um rúm­lega 450 síðan þá.

Hafn­ar­fjörður kemur í kjöl­far Kópavogs með þriðja hæsta hlut­fall félags­legra íbúða á hvern íbúa. Í bænum eru 278 félags­legar íbúðir, þar af 269 sem eru í eigu bæj­ar­ins, en níu íbúðir eru leigðar. Í árs­lok 2017 voru íbúð­irnar 255 tals­ins í Hafn­ar­firði. Íbúarnir voru 29.598 tals­ins í ágúst og því 9,4 félags­legar íbúðir á hverja 1.000 Hafn­firð­inga.

Garðabær, Seltjarnarnes og Mosfellsbær í sérflokki

Garðabær rekur lest­ina hvað hlut­fall félags­legra íbúða varðar, eins og áður var rakið, en bæði Sel­tjarn­ar­nes og Mos­fellsbæ standa Reykja­vík, Kópavogi og Hafn­ar­firði þó all­nokkuð að baki.

Á Sel­tjarn­ar­nesi eru 18 félags­legar íbúðir, sam­kvæmt svari bæj­ar­ins til Kjarnans. Þær voru 16 tals­ins undir lok árs 2017. Íbúar á Sel­tjarn­ar­nesi voru 4.726 tals­ins í ágúst, sem þýðir að íbúð­irnar voru 3,8 á hverja 1.000 íbúa á Sel­tjarn­ar­nesi.

Í Mos­fellsbæ eru félags­legar íbúðir svo 50 tals­ins, þar af 31 í eigu bæj­ar­ins en 19 sem eru leigðar. Þær voru 31 tals­ins undir lok árs 2017. Íbúar þar voru 12.914 í ágúst sem þýðir að félags­legar íbúðir á hverja 1.000 Mos­fell­inga eru 3,9 tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár