Mynd: Bjarg

Næstum þrjár af hverjum fjórum almennum íbúðum eru í Reykjavík

Fyrir nokkrum árum var ákveðið að end­­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­­­lega hús­næð­is­­kerf­inu sem lagt var niður undir lok síð­ustu aldar. Nýja kerfið kall­ast almenna íbúða­kerfið og því er ætlað að sjá fólki með lægri tekjur fyrir hús­næði.

Íslenska ríkið hefur úthlutað alls 15,3 millj­örðum króna í stofn­fram­lög vegna almennra íbúða á land­inu öllu frá árinu 2016, þegar lög um slík fram­lög voru sett.

Þar af hafa 11,2 millj­arðar króna farið í fram­lög vegna upp­bygg­ingar á íbúðum í Reykja­vík sem nýtt hafa verið til annað hvort að kaupa eða byggja alls 1.923 íbúðir.

Allt í allt þá hafa verið veitt stofn­fram­lög úr rík­is­sjóði til að byggja 2.625 íbúðir á land­inu öllu, sem þýðir að 73 pró­sent af almennu íbúð­unum sem hafa annað hvort verið keyptar, byggðar eða eru í bygg­ingu eru í Reykja­vík.

Þetta kemur fram í tölum sem Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun tók saman fyrir Kjarnann.

Alls búa 133.109 manns í höf­uð­borg­inni, eða 36 pró­sent lands­manna. Það þýðir að Reykja­vík er að taka á sig næstum tvö­faldan hluta af upp­bygg­ingu almenna íbúða­kerf­is­ins en hlut­fall íbúa borg­ar­innar segir til um.

Húsnæðiskostnaður í samræmi við greiðslugetu

Lög um almennar íbúðir voru sam­þykkt sum­arið 2016. Hið nýja íbúða­­kerfi er til­­raun til að end­­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­­­lega hús­næð­is­­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­­­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­­­legum íbúðum fækk­­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

Markmið þeirra laga var að bæta hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­ar­mörkum með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi leigu­hús­næði. Þannig sé stuðlað að því að hús­næð­is­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­getu þeirra sem leigja hús­næðið og fari að jafn­aði ekki yfir 25 pró­sent af tekjum þeirra.

Lögin byggja á yfir­lýs­ingu sem þáver­andi rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar gaf út í tengslum við kjara­samn­inga sem voru und­ir­rit­aðir í maí 2015. Í henni var gert ráð fyrir að 2.300 íbúðir yrðu byggðar á árunum 2015 til 2018.

Lengri tíma tók hins vegar að klára lögin og fyrstu úthlut­anir á grund­velli þeirra fóru ekki fram fyrr en á árinu 2016. Fjár­mála­á­ætlun núver­andi rík­is­stjórnar áætlar nú að um 3.200 íbúðir verði byggðar á árunum 2016 til 2022.

15,3 milljarða króna í stofnframlög

Íbúð­irnar sem hafa fengið stofn­fram­lög eru ætl­aðar fyrir allskyns hópa sem eru með lágar tekj­ur. Þar ber fyrst að nefna þá félags­hópa sem eru undir skil­greindum tekju- og eign­ar­við­mið­um. Þau eru 535 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði fyrir ein­stak­ling og 749 þús­und krónur á mán­uði fyrir hjón eða sam­búð­ar­fólk. Fyrir hvert barn eða ung­menni að 20 ára aldri sem býr á heim­il­inu bæt­ast við 133.750 krónur á mán­uði sem má hafa í tekj­ur. Heild­ar­eignir heim­il­is­ins mega þó ekki vera hærri en sem nemur 6.930.000 krón­um. Stór hluti þess­arar upp­bygg­ing­ar, sem er afar umfangs­mik­il, er á vegum Bjargs íbúða­fé­lags, sem var stofnað af ASÍ og BSRB fyrir nokkrum árum síð­an, og er rekið án hagn­að­ar­mark­miða.

Íbúða­kerfið er fjár­magnað þannig að ríkið veitir stofn­fram­lag sem nemur 18 pró­sent af stofn­virði almennra íbúða. Stofn­virði er kostn­að­ar­verð íbúð­ar­inn­ar, sama hvort það er við bygg­ingu hennar eða vegna kaupa á henni. Íslenska ríkið hefur greitt rúm­lega 14 millj­arða króna í slíkt stofn­fram­lag til íbúða sem hafa verið byggðar eða keyptar á land­inu öllu frá árinu 2016.

Til við­bótar hefur ríkið greitt 956 millj­ónir króna í fjögur pró­sent við­bót­ar­fram­lag til hluta þeirra verk­efna sem ráð­ist hefur verið í á tíma­bil­inu. For­senda fyrir veit­ingu stofn­fram­lags er að bæði Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun (HMS), sem sér um umsýslu stofn­fram­laga, og sveit­ar­fé­lag hafi veitt sam­þykki. Rík­is­fram­lögin eru í formi beinna fjár­út­láta og því hefur rík­is­sjóður sam­tals greitt 15,3 millj­arða króna í stofn­fram­lög vegna verk­efna í á land­inu öllu á und­an­förnum árum.

Langmest byggt í Reykjavík

Af þeirri upp­hæð hafa 11,2 millj­arðar króna farið í fram­lög vegna verk­efna í Reykja­vík, eða 73 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar. Af þessu má ráða að Reykja­vík hefur tekið á sig meg­in­þorra ábyrgðar á upp­bygg­ingu á almenna íbúð­ar­kerf­inu fyrir lág­tekju­fólk, náms­menn, öryrkja og fatl­aða og aðra sem eru í vand­ræðum með að taka þátt í almennum íbúða­mark­aði.

Það er ekki án kostn­aðar fyrir höf­uð­borg­ina, eða íbúa hennar, sem greiða fyrir rekst­ur­inn með útsvari og fast­eigna­gjöldum. Sveit­ar­fé­lög veita nefni­lega 12 til 16 pró­sent stofn­fram­lag til verk­efn­anna. Þau geta falist í beinu fjár­fram­lagi en eru oftar en ekki í formi úthlut­unar á lóðum eða lækk­unar eða nið­ur­fell­ingar á gjöldum sem þyrfti ann­ars að greiða til sveit­ar­fé­lags­ins.

Reykja­vík­ur­borg hefur meðal ann­ars úthlutað Bjargi íbúð­ar­fé­lagi lóðir undir mörg hund­ruð íbúðir á stöðum eins í Úlf­arsár­dal, Bryggju­hverf­inu og Hraun­bæ, en líka á þétt­ing­areitum í gamla hluta borg­ar­innar á borð við Kirkju­sand, Voga­byggð og Skerja­byggð.

Flest önnur sveitarfélög taka varla þátt

Það sveit­ar­fé­lag sem kemst næst höf­uð­borg­inni í upp­bygg­ingu almennra íbúða er Hafn­ar­fjörður. Þar hafa verið veitt fram­lög fyrir 204 íbúðum, eða átta pró­sent allra fram­laga úr rík­is­sjóði. Íbúar Hafn­ar­fjarðar eru átta pró­sent lands­manna.

Önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu standa þessum tveimur langt að baki í upp­bygg­ingu á almenna íbúða­kerf­inu. Í Kópavogi, þar sem rúm­lega tíu pró­sent lands­manna búa, hafa verið veitt fram­lög vegna 58 íbúa, eða 2,2 pró­sent heild­ar­fjöld­ans. Á Sel­tjarn­ar­nesi, þar sem 1,2 pró­sent lands­manna búa, eru sex íbúðir sem falla undir almenna íbúða­kerfið annað hvort til­búnar eða í bygg­ingu og í Garðabæ, þar sem fimm pró­sent lands­manna býr, er þær 25, eða eitt pró­sent heild­ar­fjöld­ans. Í Mos­fellsbæ hafa tvær íbúðir verið keyptar fyrir öryrkja eða fatl­aða sem passa inn í almenna íbúða­kerfið.

Á Akureyri, þar 5,2 pró­sent lands­manna búa, eru íbúð­irnar 67 tals­ins,eða 2,6 pró­sent alls almenna íbúða­kerf­is­ins. Í Reykja­nesbæ hafa ell­efu slíkar íbúðir verið byggðar eða keyptar og í Árborg 37.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár