Segir frumvarp stjórnvalda ekki til þess fallið að bæta stöðu launþega á húsnæðismarkaði

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði, segir að und­an­þágu­á­kvæði í frum­varpi stjórn­valda um skref til afnáms verð­trygg­ingar gera með­limum ann­arra verka­lýðs­fé­laga erf­ið­ara fyrir að fá lána­fyr­ir­greiðslu við hús­næð­is­kaup.

Þórólfur Mattíasson, prófessor í hagfræði.
Þórólfur Matt­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði. Mynd: Picasa 3.0

Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, segir í umsögn sinni um frumvarpsdrög stjórnvalda um skref til afnáms verðtryggingarinnar að ekki verði séð að drögin muni bæta stöðu launþega á húsnæðismarkaði. Hann segir að meðal annars geri undanþáguákvæði frumvarpsins meðlimum annarra verkalýðsfélaga, en þeirra sem komu að kjarasamningunum í vor, erfiðara fyrir að fá lánafyrirgreiðslu við húsnæðikaup.

Skuldbundu sig til banna 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán

[links]Í apríl 2019 kynntu stjórnvöld lífskjarasamningana sem stuðning við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði með að fyrir augum að styðja við markmið um stöðugleika í efnahagsmálum og bætt kjör launafólks. Á meðal þess sem stjórn­völd skuld­bundu sig til að gera var að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán frá byrjun næsta árs. Auk þess á að grund­valla verð­trygg­ingu við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­isliðar frá og með árinu 2020. Stjórnvöld settu einnig fram vil­yrði um að klára skoðun á því hvort að banna eigi alfarið verð­tryggð hús­næð­is­lán fyrir lok árs 2020.

Þann 11. júlí síðastliðinn birti fjármála- og efnahagsráðherra drög að lagafrumvarpi um skref til afnáms verðtryggingarinnar í samráðgátt stjórnvalda. Þórólfur er einn af tveimur sem hafa skilað inn umsögn um frumvarpið en í umsögn hans segir að tilgangur lagafrumvarpsins sé fjórþættur. Í fyrsta lagi að setja hámark á lánstíma svokallaðra verðtryggðra jafngreiðslulána, í öðru lagi að hækka lágmarkstíma slíkra lána úr 5 árum í 10 ár.

Í þriðja lagi að fjölga vísitölum sem heimilt er að nota sem grundvöll verðtryggingar og lögbinda notkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis sem grundvöll útreiknings verðbóta verðtryggðra jafngreiðslulána og í fjórða lagi að lögbinda skyldu Hagstofu Íslands til að reikna og birta vísitölu neysluverðs án húsnæðis.

Takmörkunin snýr að fámennum hluta mögulegra lántaka

Í frumvarpinu er lagt til að hámark lánstími verðtryggðalána verði 25 ár en frumvarpið nær þó einungis til verðtryggðra jafngreiðslulána en ekki verðtryggðra jafnafborganalána. Þórólfur bendir hins vegar á í umsögn sinni að ýmsar undantekningar sé á þessu ákvæði.

„Sé lántaki eða annað sambúðaraðila undir 35 ára aldri er heimilt að veita verðtryggt jafngreiðslulán til 40 ára; sé lántaki eða annað sambúðaraðila á bili 35-40 ára er heimilt að veita verðtryggt jafngreiðslulán til allt að 35 ára og sé lántaki eða annar sambúðaraðila undir 40 ára aldri og til allt að 30 ára sé lántaki eða annar sambúðaraðila undir 40 ára aldri. Þá er heimilt að veita þeim sem eru með lágar tekjur á „næst liðnu ári“ allt að 40 ára verðtryggt jafngreiðslulán. Í þriðja lagi er heimilt að veita verðtryggt jafngreiðslulán til allt að 40 ára sé veðsetningarhlutfall vegna þess láns lægra en 50%,“ segir í umsögninni.

Þórólfur segir að ekki sé hins vegar upplýst um hvernig samspil hinna ýmsu undanþáguákvæða er en segir að líklega snúi takmörkunin að fámennum hluta mögulegra lántaka eða um 5 prósent lántakenda. „Spyrja má hvort eðlilegt sé að þrengja kjör svo fámenns og sértæks hóps með almennri lagasetningu án þess að vitna megi til almannaheillar eins og lýst er í aðfararorðum umsagnar þessarar. En líklega munu þessi ákvæði þó ekki bíta fast,“ segir Þórólfur.

Undanþágurnar hafa áhrif á þau félög sem ekki gerðu kröfu um umræddar breytingar

Hann segir að lík­leg­ast telj­ist sá hópur fólks ekki til umbjóð­enda verka­lýðs­fé­laga á almennum mark­aði. Þvert á móti sé slíka hópa fyrst og fremst að finna meðal þeirra sem leita sér mjög langrar skóla­göngu erlendis, t.d. sér­fræði­læknar og fólk með dokt­ors­próf.

Þórólfur segir að þessir hópar til­heyra flestir Banda­lagi háskóla­manna. „Þannig má segja að inn­tak und­an­þág­anna sé í raun að hafa áhrif á aðila sem ekki eru félags­menn þeirra félaga sem gerðu kröfu um umræddar breyt­ingar.“

Bæta ekki gæði útreikninga húsnæðislána

Hann segir jafn­framt að veiga­mesta breyt­ingin, sem kveðið er á um í frum­varp­inu og hugs­an­lega sú eina sem hafi raun­veru­leg áhrif fyrir nýja lán­taka, sé ákvæðið um breyttan voga­grund­völl vísi­tölu þeirrar sem afborg­anir af verð­tryggðum jafn­greiðslu­lánum skuli taka mið af.

Að hans mati er það hins vegar galli hjá frum­varps­semj­endum að hafa ekki rætt mögu­leg áhrif þess að heim­ila fleiri vísi­tölur til verð­trygg­ingar en neyslu­verðs­vísi­tölu án hús­næð­is­verðs. „Fyrir laun­þega gæti það verið áhuga­verður kostur að miða verð­trygg­ingu hluta lána sinna við launa­vísi­tölu, eða að miða greiðslu­byrði við þróun launa­vísi­töl­unnar. Því kynni að fylgja breyti­legur láns­tími sama láns eftir því hvort launa­vísi­tala vex hraðar eða hægar en verð­lags­vísi­tala,“ segir Þórólfur.

Að hans mati verður því ekki séð að til­lögur frum­varps­ins um breytta vísi­tölu bæti gæði þeirra útreikn­inga sem hús­næð­is­lánin byggja á.

Fyrst og fremst neikvæð áhrif á meðlimi annarra stéttarfélaga

Enn fremur segir Þórólfur að það megi spyrja „frá sjón­ar­hóli sið­fræði og almennar kurt­eisi“ hvort að eðli­legt sé að krafa sem sett er fram af hálfu verka­lýðs­fé­laga á almennum mark­aði gagn­vart stjórn­völdum sé útfærð á þann hátt að hafa fyrst og fremst nei­kvæð áhrif á með­limi ann­arra stétt­ar­fé­laga

„Und­an­þágu­á­kvæði frum­varps­ins draga stór­lega úr áhrifum fyr­ir­hug­aðrar laga­breyt­ingar á með­limi þeirra verka­lýðs­fé­laga sem settu fram kröf­una. Und­an­þágu­á­kvæði verða til þess að fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar gera með­limum ann­arra verka­lýðs­fé­laga erf­ið­ara fyrir að fá lána­fyr­ir­greiðslu við hús­næð­is­kaup,“ segir í umsögn­inni.

Að lokum segir Þórólfur að ekki sé hægt að mæla með sam­þykkt frum­varps­ins í óbreyttri mynd en að hans mat verður bætir frum­varpið ekki stöðu laun­þega á hús­næð­is­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár