Fréttir

Klórar sér í koll­inum yfir upp­sögnum alls starfs­fólks

Öllu starfs­fólki Sæferða var sagt upp eftir að Vega­gerðin hafn­aði til­boði fyr­ir­tæk­is­ins í ferju­sigl­ingar yfir Breiða­fjörð. Þar á meðal var starfs­fólk sem ekki vinnur á Breiða­fjarð­ar­ferj­unni Baldri heldur á skemmti­ferða­skip­inu Særúnu. Úlfar Hauksson, véla­stjóri á Baldri, segir upp­sagn­irnar hafa komið mis­jafn­lega við fólk og hann eigi erfitt með að skilja að ekki sé hægt að halda úti skemmti­ferða­sigl­ingum frá Stykk­is­hólmi.
Fréttir

Skemmd­ar­verk framin á fjórum Orku­stöðvum í nótt

Regn­boga­fánar voru skornir niður á fjórum bens­ín­stöðvum Orkunnar í nótt er leið. Fyr­ir­tækið hefur brugð­ist við og flaggað upp á nýtt jafn harðan. Mark­aðs­stýra Orkunnar segir að þar á bæ verði ekki látið af stuðn­ingi við hinsegin fólk. Formaður Hinsegin daga segir um örvænt­ing­ar­full við­brögð fámenns hóps að ræða og leggur áherslu á að öll séu vel­komin á Hinsegin daga.
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir millj­arða í skatta­skjól í gegnum Smá­í­búða­hverfið

Kjör­ræð­is­maður Íslands í Belarús hefur á und­an­förnum árum flutt tugi millj­arða króna til dul­ar­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heima­húsi Reykja­vík. Um er að ræða ávinn­ing af fisk­við­skiptum og sér­kenni­legum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja kjör­ræð­is­manns­ins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagn­aði undan sköttum.

9 mín. lestur

Viðtal

„Við fengum ekki að velja hvar við fædd­umst“

Aðgerða­sinn­arnir í Pussy Riot eru í sjálf­skip­aðri útlegð frá Rúss­landi en þar bíður þeirra fátt annað en fang­els­is­vist. Þær segja stöð­una í heima­land­inu hræði­lega og fari versn­andi. „Þetta er mitt heim­ili,“ segir Maria Alyok­hina um Rússland, sem hún býst við að snúa aftur til einn dag­inn. Hópurinn ræðir aktí­vis­mann, aðstæð­urnar heima fyrir sem og Pútín og stríðið í Úkraínu sem þær berj­ast gegn.

23 mín. lestur

Fréttir

Minkabúi í Mos­fells­dal lokað verði aðbún­aður dýra ekki bættur

Mat­væla­stofnun segir ástandið á Dals­bú­inu í Mos­fells­dal óvið­un­andi. Búinu verði lokað í haust ef aðbún­aður dýr­anna verði ekki bættur. Á búinu fund­ust slas­aðir minkar sem ekki hafði verið sinnt. MAST segir að dýrin fái ekki fóður á sunnu­dögum og að búrin hafi ekki verið nægi­lega ein­angruð í 10 stiga frosti síð­asta vetur. Þá hafi minkar sloppið út af búinu og drepið fjölda hæna og dúfna í Mos­fells­dal.

8 mín. lestur

Fréttir

Fötluðu fólki nán­ast ókleift að nota almenn­ings­sam­göngur

Hreyfi­haml­aðir geta hvorki tekið strætó né flug­rút­una á Kefla­vík­ur­flug­völl og ferða­þjón­usta fatl­aðra fer ekki milli sveit­ar­fé­laga. Aðeins er gott aðgengi á einni stoppi­stöð strætó á lands­byggð­inni og aðeins er aðgengi fyrir hjóla­stóla á tveimur leiðum. Ekki er gert ráð fyrir sam­ráði við fatlað fólk í drögum að sam­göngu­á­ætlun.
Fréttir

Leyst upp eftir dauð­ann

Ný aðferð við með­höndlun jarð­neskra leifa, sem sögð er umhverf­is­vænni en aðrar leiðir, ryður sér nú til rúms. Bretar hafa nýverið breytt lögum til þess að heim­ila að lík séu leyst upp í brenn­heitri blöndu efna og vatns. Beinin standa eftir, eru möluð og sett í duft­ker. Einungis má greftra eða brenna lík á Íslandi og eru bálfarir orðnar yfir 60 pró­sent útfara á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Mest lesið undanfarið ár