Fréttir

Ósk um leyfi til virkj­unar Hverf­is­fljóts aftur á borði sveit­ar­stjórnar

Ragnar Jónsson er hvergi af baki dott­inn varð­andi áform sín um að reisa virkjun í Hverf­is­fljóti þrátt fyrir að úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála hafi fellt ákvörðun sveit­ar­stjórnar Skaft­ár­hrepps um veit­ingu fram­kvæmda­leyfis úr gildi, m.a. á þeim rökum að ekki hafi verið sýnt fram á brýna nauð­syn þess að raska eld­hrauni.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Nýtt líf eftir að 500 milli­lítra sílíkon­púðar voru fjar­lægðir

Skömmu eftir að Klara Jenný H. Arn­björns­dóttir ljós­móðir gekkst undir ristil­nám kom í ljós að sílíkon­púðar í brjóstum hennar láku. Hún lét setja púð­ana í sig árið 2006, þegar hún var 19 ára, og að eigin sögn með lítið sjálfs­traust. Hún hefur glímt við veik­indi frá árinu 2008. Nú hafa púð­arnir verið fjar­lægðir og Klara Jenný seg­ist hafa öðl­ast nýtt líf.
Fréttir

Borgar 276 þús­und krónum meira fyrir leik­skóla­pláss í Kópavogi en Reykja­vík á ári

Helen Rut Ást­þórs­dóttir er meðal þeirra for­eldra sem gagn­rýna nýja gjald­skrá leik­skóla í Kópavogi. Leik­skóla­vist barns sem er sex tíma á dag í leik­skól­anum kostar 10.462 krónur en fyrir barn sem er í átta tíma á dag þarf að greiða 49.474 krónur. Kópa­vogs­bær sendi frá sér aug­lýs­ingu til nýbak­aðra for­eldra að þeir geti fengið sér vinnu á leik­skóla og þannig fari barnið þeirra í for­gang auk þess sem þeir fengju afslátt af gjöld­unum.
FréttirEldgos við Litla-Hrút

Fóru á raf­magns­hjóla­stólum í átt að gló­andi hraun­inu

Andri Val­geirs­son og Hall­grímur Eymunds­son lögðu af stað í ferða­lag í átt að eld­gos­inu við Litla-Hrút á raf­magns­hjóla­stólum um síð­ustu helgi. Ferðin gekk stór­á­falla­laust fyrir sig, þó þeir hafi kast­ast aðeins til í stól­unum vegna tor­færs lands­lags og hleðslan á raf­hlöðum stól­anna hafi klár­ast á baka­leið­inni. Andri kallar eftir því að aðgengi að íslenskum nátt­úruperlum verði bætt, svo fólk sem not­ast við hjóla­stól geti fengið að sjá landið eins og gang­andi fólk.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Veik kona ætti að eiga skil­yrð­is­lausan rétt á hjálp

Konur sem rekja alvar­leg veik­indi til brjóstapúða hafa þurft að taka lán fyrir aðgerð þar sem púð­arnir eru fjar­lægðir. Aðgerðin, sem kostar mörg hund­ruð þús­und krónur, er ekki nið­ur­greidd af Sjúkra­trygg­ingum Íslands. Ónæm­is­fræð­ingur telur að ekki ætti að láta konur gjalda þeirrar ákvörð­unar að hafa farið í brjósta­stækkun, og segir að veikar konur ættu að eiga skil­yrð­is­lausan rétt á hjálp.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Lá í dái í fjórar vikur

Guðrún Eva Jóns­dóttir fékk andnauð­ar­heil­kenni og féll í dá í fjórar vikur síð­asta sumar. Und­an­fari veik­ind­anna voru síend­ur­teknar lungna­bólgur og sveppur sem fannst í lunga hennar árið 2020. Orsök veik­inda hennar er á huldu en sjálf telur hún síli­kon­púð­unum um að kenna. Hún á ekki fyrir aðgerð til þess að láta fjar­lægja þá. Sjúkra­trygg­ingar Íslands nið­ur­greiða ekki aðgerð­ina. Hún kostar mörg hund­ruð þús­und.
Fréttir

Skatt­tekjur af sölu Kerecis dugi fyrir vega­bótum til Ísa­fjarðar

Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­andi og for­stjóri Kerecis, ritar harð­orða umsögn um sam­göngu­á­ætlun stjórn­valda og segir Vest­firð­inga sitja eftir sem jað­ar­settan hóp þjóð­ar­innar, sem ekki njóti boð­legra sam­gangna, þrátt fyrir að skila fram­lagi til þjóð­ar­fram­leiðsl­unnar langt umfram íbúa­fjölda. Hann vill sjá „Vest­fjarða­línu“ verða að veru­leika.

Mest lesið undanfarið ár