„Við erum ennþá meðvirk með spillingunni“

Karl Ágúst Úlfsson er einn ást­sæl­asti leik­ari og höf­undur þjóð­ar­innar. Hann hefur látið sig sam­fé­lags­mál varða í ára­tugi, fyrst á vett­vangi Spaug­stof­unnar, sem valda­menn töldu að væri á mála hjá óvin­veittum öflum. Hann segir að sig svíði þegar níðst er á lít­il­magn­anum og hvernig feðra­veldið verji sig þegar kyn­ferð­is­legt ofbeldi kemst á dag­skrá. Ný bók hans, Átta ár á sam­visk­unni, er safn smá­sagna um fólk í sál­ar­háska.

„Við erum ennþá meðvirk með spillingunni“
Karl Ágúst Úlfsson Leik­skáldið segir kyn­ferð­is­legt ofbeldi vera allt í kring og svo virð­ist sem engin fjöl­skylda sleppi.

Ráðamenn og vald­hafar voru dregnir sundur og saman í háði Spaug­stof­unnar, sjón­varps­þátt­ar­ins sem var fasta­gestur á heim­ilum lands­manna í ára­tugi. Karl Ágúst Úlfsson, leik­ari, grínisti og höf­undur, lítur nú svo á að þeir Spaug­stofu­menn og þjóðin öll hafi verið sak­laus­ari þegar þætt­irnir hófu göngu sína. Spilling stjórn­mál­anna hafi ekki verið jafn aug­ljós og ákveðin þjóð­fé­lags­öfl hafi síðar kastað grímunni. Sjálfur hafi hann ekki getað setið á sér þegar upp­reist æru-málið svo­kall­aða kom upp sum­arið 2017 og yfir­hylm­ing ráða­manna með ákvarð­ana­töku í málum dæmdra barn­a­níð­inga varð lands­mönnum ljós.

„Kannski þurfum við að fara í gegnum 12 spora kerfi til að taka á þessu,“ segir hann. „Við þurfum að gera meiri kröfur. Kröfur um heið­ar­leika, að vald­hafar okkar axli ábyrgð og taki hags­muni umbjóð­enda sinna fram fyrir eigin hags­muni.“

Und­an­farin ár hefur hann snúið sér í auknum mæli að skrifum bók­mennta og sinnt for­mennsku í Rit­höf­unda­sam­bandi Íslands. Ný bók hans, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppreist æru

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár