Launahæstu forstjórarnir eru allir með yfir 5 milljónir á mánuði

Með­al­laun tíu launa­hæstu for­stjóra lands­ins eru 7,6 millj­ónir króna og jafn­gilda launum 23 launa­manna á lág­marks­launum sam­kvæmt nýju lífs­kjara­samn­ing­unum. For­stjóri Festar segir mik­il­vægt að stjórn­endur rífi sig ekki úr þjóð­fé­lag­inu með ofur­launum.

Launahæstu forstjórarnir eru allir með yfir 5 milljónir á mánuði

Með­al­laun tíu tekju­hæstu for­stjóra íslenskra fyr­ir­tækja hækk­uðu lít­il­lega milli ára og voru rúmar 7,6 millj­ónir króna á mán­uði árið 2018. Í fyrsta sinn eru mán­að­ar­laun allra í hópnum komin yfir 5 millj­ónir króna.

Samkvæmt nýjum „lífs­kjara­samn­ingum“ verða lág­marks­laun 317 þús­und krónur á mán­uði í ár. Eru með­al­laun for­stjór­anna tíu til jafns á við 23 starfs­menn á lág­marks­launum, þegar til­lit er tekið til líf­eyr­is­greiðslna. Mikil umræða spratt upp í tengslum við samn­ings­gerð­ina um mis­skipt­ingu tekna og nefndu verka­lýðs­leið­togar launa­hækk­anir for­stjóra til marks um það að fyr­ir­tækin hefðu nóg til skipt­anna. Á móti bentu atvinnu­rek­endur á að þótt for­stjórar stærstu fyr­ir­tækja lands­ins séu með marg­faldar tekjur launa­fólks þá eigi það ekki við um þorra stjórn­enda fyr­ir­tækja, sem flest séu minni að umfangi.

Eins og áður er Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Össurar, lang tekju­hæstur með and­virði 18,6 millj­óna íslenskra króna í mán­að­ar­laun. Draga laun hans og Árna Odds Þórð­ar­sonar, for­stjóra Marel, með­al­talið nokkuð upp, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár