Mynd: Heiða Helgadóttir

Óttast að áhrifafólk hafi gefið skotleyfi á flóttafólk

Prestur inn­flytj­enda á Íslandi segir kjarna krist­innar trúar fel­ast í því að opna dyrnar fyrir flótta­fólki og veita því skjól. Toshiki Toma hefur síð­ast­liðin ár starfað náið með flótta­fólki og hæl­is­leit­endum á Íslandi en telur nú að áhrifa­fólk í íslensku sam­fé­lagi hafi gefið skot­leyfi á þennan við­kvæma hóp. Hann hefur áhyggjur af auk­inni hat­urs­orð­ræðu í þeirra garð.

Toshiki Toma, prestur inn­flytj­enda á Íslandi, furðar sig á því með hvaða hætti sumt íslenskt áhrifa­fólk hefur að und­an­förnu leyft sér að tala um flótta­fólk og hæl­is­leit­endur og hefur áhyggjur af því að verið sé að gefa grænt ljós á að tala niður til þess­ara hópa.

Toshiki, sem hefur und­an­farin ár starfað náið með fólki á flótta, segir að þeir sem haldi uppi mál­stað þessa við­kvæma hóps þurfi í auknum mæli að sitja undir hat­urs­fullum athuga­semdum á sam­fé­lags­miðlum. Hann ótt­ast að æ fleiri nýti sér tján­ing­ar­frelsið til þess eins að þagga niður í mál­frelsi ann­arra en leggur áherslu á mik­il­vægi þess að leyfa hatr­inu ekki að sigra.

Blaða­maður Stund­ar­innar heim­sótti Toshiki Toma á skrif­stofu hans í Breiðs­holts­kirkju og fékk að heyra meira um bar­áttu hans fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk, ógn­irnar sem steðja að þessum við­kvæma hópi og örk­ina sem Ísland getur verið þeim sem hingað koma í leit …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár