Mynd: Heiða Helgadóttir

Missti eldmóðinn og lífsviljann eftir starf á íslensku hóteli

Fyrr­ver­andi kokkur og starfs­fólk lýsa upp­lifun sinni af störfum á hót­el­inu Radisson Blu 1919 í mið­borg Reykja­víkur. Morg­un­verð­ar­starfs­mönnum hót­els­ins var öllum sagt upp og boðnir nýir samn­ingar með færri vöktum og lak­ari kjörum. Ræsti­tæknar segja að þeim hafi verið sagt að þeir myndu ekki fá laun sín ef þeir tækju þátt í verk­falli Eflingar. Hót­el­stýra segir að upp­sagnir tengd­ust skipu­lags­breyt­ingum á vegum hót­el­keðj­unnar og neitar að hafa gefið starfs­fólki mis­vísandi upp­lýs­ingar.

Hann var hlát­ur­mildur og ham­ingju­samur í starfi. Sam­starfs­fólk hans lýsti honum sem „hjarta og sál“ hót­els­ins. Ástríða hans í líf­inu var að vera morg­un­verð­ar­kokkur. En þetta átti eftir að breyt­ast hratt. „Það slökkn­aði á eld­móði hans fyrir líf­inu,“ segir vinnu­fé­lagi hans. Síðasta haust reyndi hann að svipta sig lífi. Hann rekur van­líðan sína til breyt­inga í vinnu­um­hverfi hans. „Ég elskaði þessa vinnu svo mikið, en hún var orðin að martröð,“ segir hann.

Stundin ræddi við kokk­inn  Joao Paulo De Brito Linheiro Da Silva, eða Paulo eins og hann er kall­aður, ásamt fimm sam­starfs­mönnum hans á fjög­urra stjörnu hót­el­inu Radisson Blu 1919 í mið­borg Reykja­víkur. Starfs­menn hafa kvartað undan því að fá sjaldn­ast rétt útborgað og greina frá nið­ur­brjót­andi fram­komu yfir­manna í þeirra garð. Öllu morg­un­verð­ar­starfs­fólk­inu á vakt Paulo var sagt upp með til­boði um skertan vinnu­tíma og verri kjör.

Öll eru þau sam­mála um að starfs­að­stæðum hafi farið hrak­andi eftir að nýr hót­el­stjóri var ráð­inn síð­ast­liðið haust. Rekstur hót­els­ins hefur gengið mis­jafn­lega, en árið 2017 var það rekið með sjö millj­óna króna tapi sam­an­borið­við 38 millj­óna króna hagn­aði árið áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár