Frá Tortólu til Lúx­em­borgar Eign­ar­halds­fé­lag eig­in­konu Hreiðars Más Sig­urðsosnar, sem átti rúm­lega 300 millj­óna króna eignir, var fært frá Tortólu og sam­einað öðru félagi hennar í Lúx­em­borg í árs­lok 2017. Mynd: Ómar Óskarsson

Eignarhaldi fjölskyldu Hreiðars Más í sjóði Stefnis leynt í gegnum skattaskjól

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki Hreiðars Más Sig­urðs­sonar og tengdra aðila hefur síð­ast­liðin ár verið í eigu Tortóla­fé­lags sem eig­in­kona hans á. Sjóður í stýr­ingu Stefnis, dótt­ur­fé­lags Arion banka, var form­legur hlut­hafi en á bak við hann er Tortólu­fé­lag. Fram­kvæmda­stjóri Stefnis segir að fyr­ir­tækið hafi ekki vitað hver hlut­hafi sjóðs­ins var.

Félag eig­in­konu Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings, í skatta­skjól­inu Tortólu flutti rúm­lega 310 millj­óna króna eignir til Lúx­em­borgar í lok árs 2017. Stundin sýnir fram á að Hreiðar Már, mað­ur­inn sem stýrði Kaup­þingi í einu mesta gjald­þroti heims­sög­unnar og var í kjöl­farið dæmdur í fang­elsi fyrir alvar­leg efna­hags­brot í starfi, hefur í átt í veru­legum við­skiptum á Íslandi í gegnum sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefni, sem er í eigu arf­taka Kaup­þings, Arion banka, í gegnum sjóð með duldu eign­ar­haldi í skatta­skjóli. For­svars­menn Stefnis vita ekki hver er eig­andi umrædds sjóðs.

Hreiðar Már var með allt að 80 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun hjá Kaup­þingi á árunum fyrir hrunið 2008. Sjálfur sagð­ist hann ekki vera auð­maður eftir hrun, og hafa glatað megn­inu af sparn­aði sínum, en síðar hefur komið fram að hann átti eignir upp á um 600 millj­ónir króna. Hluti þeirra eigna virð­ist hafa skilað sér aftur í umsvifum á Íslandi í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskiptafléttur

Skeljungsmálið: Besta leiðin til að eignast fyrirtæki er að vinna við að selja það
GreiningViðskiptafléttur

Skelj­ungs­málið: Besta leiðin til að eign­ast fyr­ir­tæki er að vinna við að selja það

Þrír af sak­born­ing­unum í Skelj­ungs­mál­inu eign­uð­ust lax­eld­is­fyr­ir­tækið Fjarða­lax árið 2013 eftir að tveir þeirra höfðu komið að sölu þess í gegnum Straum. Líkt og í Skelj­ungs­mál­inu högn­uð­ust þre­menn­ing­arnir vel á við­skipt­unum með lax­eld­is­fyr­ir­tækið. Í báðum til­fellum unnu þre­menn­ing­arnir eða hluti þeirra að sölu Skelj­ungs og Fjarða­lax.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár