Að bug­ast Guðrún Ágústa er við það að bug­ast á ástand­ingu á íslenskum leigu­mark­aði en henni finnst þyngra en tárum taki að neyð­ast mögu­lega til þess að yfir­gefa son sinn og flytja úr landi til þess að láta enda ná saman. Mynd: Heiða Helgadóttir

Með þrjár háskólagráður og í fullu starfi en samt í fjárhagslegum nauðum

Móðir í fullu starfi, sem er með þrjár háskóla­gráður, er að bug­ast á íslenskum leigu­mark­aði sem hún segir að sé að murka úr henni lífið. Guðrún Ágústa Ágústs­dóttir, missir leigu­í­búð sína á vor­mán­uðum og íhugar að flytj­ast í ósam­þykkt iðn­að­ar­hús­næði eða úr landi. Hún furðar sig á aðgerð­ar­leysi stjórn­valda.

Guðrún Ágústa Ágústs­dóttir, ein­stæð móðir sem starfar sem ráð­gjafi hjá SÁÁ, segir íslenskan leigu­markað vera að murka úr sér lífið hægt og rólega. Hún og fimmtán ára sonur hennar þurfa enn og aftur að flytja sig um set eftir að leigu­samn­ingi þeirra var nýlega sagt upp. Guðrún Ágústa, sem er upp­eldis- og mennt­un­ar­fræð­ingur að mennt og með þrjár háskóla­gráður, hefur verið á leigu­mark­aði síð­ustu tólf árin en hún segir ástandið aldrei hafa verið jafn slæmt og nú. Hún telj­ist heppin ef hún finni þriggja her­bergja íbúð fyrir 250 þús­und krónur á mán­uði. Slíkt dæmi gangi hins vegar engan veg­inn upp þar sem hún sé ekki með nema um 300 þús­und krónur í mán­að­ar­laun eftir skatt. Guðrún hefur velt því fyrir sér hvort hún þurfi mögu­lega að finna sér íbúð í ósam­þykktu iðn­að­ar­hús­næði en það sé eitt­hvað sem hún vilji helst ekki gera syni sínum.

Mæðginin hafa búið í þriggja her­bergja íbúð í Kópavogi síð­ast­liðin tvö ár og telur Guðrún sig heppna að hafa ein­ungis verið að greiða 180 þús­und krónur í leigu. Hún geti hins vegar ekki hugsað þá hugsun til enda hvað ger­ist þurfi hún að reiða fram tug­þús­undum meira í leigu á mán­uði. Henni var því allri lokið þegar henni barst til­kynn­ing frá leigu­sala sínum þann 4. des­em­ber síð­ast­lið­inn um að hann hygð­ist setja íbúð­ina sína á sölu og þyrfti því að segja upp leigu­samn­ingnum. Guðrún brást við með því að skrifa stöðu­færslu á Facebook sem fengið hefur mikla dreif­ingu, en þar lýsti hún meðal ann­ars yfir furðu á aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í hús­næð­is­málum og spurði hvers vegna fólk í hennar stöðu fengi ekki lán til íbúð­ar­kaupa þegar ljóst væri að það hefði staðið undir him­in­hárri leigu til þessa.

Stundin ræddi við Guðrúnu Ágústu á heim­ili þeirra mæðgina í Kópavogi en hún seg­ist hafa stigið fram vegna þess að hún hafi engu að tapa lengur. Henni virð­ist sem menntun og/eða vinnu­semi hafi ekk­ert að segja á Íslandi dags­ins í dag. Fólk eins og hún sé ein­fald­lega dæmt til eilífrar fátæktar og þess von­leysis sem henni fylgir. Hún íhugar að flytja til Noregs þar sem hún fengi mun hærri tekjur fyrir sam­bæri­leg störf auk þess sem leigu­mark­að­ur­inn þar í landi lýtur mann­eskju­legri lög­málum. Henni finnst hins vegar sárt að neyð­ast ef til vill til þess að flýja eigið heima­land með þessum hætti og hefur áhyggjur af því að það yrði til þess að hún myndi fjar­lægj­ast son sinn sem vill ekki flytja úr landi.

„Hann er það eina sem ég á“

„Mig langar bara að geta séð fyrir mínu barni og mig langar bara að eiga heim­ili en þetta þjóð­fé­lag er bara að drepa mann,“ segir Guðrún Ágústa, sem bendir á að það versta sem hún geti hugsað sér í líf­inu sé að þeim mæðginum verði tvístrað. Það geti þó vel farið svo sjái hún sér ekki annað fært en að flytja úr landi, þar sem dreng­ur­inn myndi helst vilja búa áfram á Íslandi. „Það er auð­vitað allt í lagi að hann búi hjá pabba sínum og ég er ekk­ert að setja út á það,“ segir Guðrún sem tekur fram að það sé hins vegar þyngra en tárum taki að finna sig í þeirri stöðu að neyð­ast mögu­lega til þess að flytj­ast búferlum út fyrir land­stein­ana vegna þeirrar von­lausu stöðu sem uppi er á íslenskum leigu­mark­aði, og fjar­lægj­ast um leið son sinn. „Ég meina, hann er það eina sem ég á.“

„Þetta þjóð­fé­lag er bara að drepa mann“ 

Stans­laust óör­yggi Guðrún Águsta og fimmtán ára sonur hennar hafa verið á leigu­mark­aði síð­ast­liðin tólf ár og flutt á milli bæj­ar­fé­laga og hverfa.

Líkt og kom fram hér á undan er Guðrún með um 300 þús­und krónur í útborguð mán­að­ar­laun, þegar skattar og launa­tengd gjöld hafa verið dregin frá. Þá fær hún um 30 þús­und krónur í húsa­leigu­bætur og annað eins í með­lag. Þar af fara nú 180 þús­und krónur í leigu og hafa þau mæðgin því úr um það bil 180 þús­und krónum að moða í hverjum mán­uði. Þetta hefur gengið hingað til, þó að það hafi á stundum verið erfitt, en Guðrún sýpur hveljur yfir þeirri til­hugsun að þurfa ef til vill að reiða fram 250 þús­und krónur á mán­uði fyrir næstu leigu­í­búð. Þetta myndi þýða að þau þyrftu að lifa á um 100 þús­und krónum á mán­uði, sem dugar skammt í rekstri heils heim­ilis og öllu sem því fylgir.

„Það þarf engan nóbels­verð­launa­hafa í stærð­fræði til þess að reikna þetta, þú sérð bara að dæmið gengur ekki upp. Það er alveg sama hvað þú reynir, bæta við þig menntun, flytja hér, flytja þar, milli sveit­ar­fé­laga, skipta um vinnu, nefndu það, vinna meira, taka auka­vaktir, það dugir ekki til.“

Ekki saman um jól

Guðrún hefur velt því fyrir sér hvort hún eigi ef til vill að minnka við sig, leigja tveggja her­bergja íbúð þar sem hún getur sofið í stof­unni. Þá sé annar kostur að leita eftir ódýr­ara hús­næði í iðn­að­ar­hverfum borg­ar­innar. „Maður veit að margir eru að hír­ast í ein­hverju atvinnu­hús­næði ein­hvers staðar eða eitt­hvað svona,“ segir Guðrún sem telur þetta þó ekki væn­legan kost. Sonur hennar eigi ekki að þurfa að upp­lifa sig jað­ar­settan í íslensku sam­fé­lagi. Hann eigi rétt á því að búa í venju­legu hverfi þar sem hann umgengst aðra krakka og fái sömu tæki­færi og jafn­aldrar hans. „Þetta snýst um svo miklu meira en bara leigu­hús­næði. Þetta snýst nátt­úr­lega bara um það hvernig líf ég vil skapa honum.“

Guðrún sér því miður ekki marga leiki í stöð­unni. Hún hefur íhugað að bæta við sig menntun eða jafn­vel fengið skringi­legar hug­dettur um að láta til sín taka í ein­hvers konar neð­an­jarð­ar­starf­semi sem blóm­stri sem aldrei fyrr á Íslandi í dag, eitt­hvað sem hún vill að sjálf­sögðu ekki einu sinni hugsa sér. „Ég er ein­hvern veg­inn bara algjör­lega búin að fyll­ast von­leysi núna.“ Hún telur lík­leg­ustu nið­ur­stöð­una að hún þurfi að flytj­ast úr landi en það myndi mögu­lega tvístra þeim mæðginum. Það fær aug­ljós­lega mikið á hana að ræða þennan mögu­leika og tárin spretta fram áður en hún heldur áfram: „Það er nátt­úr­lega bara eitt­hvað sem ég vil ekki sko, en ef hann vill ekki fara úr landi og ég get ekki skaffað honum hús­næði, hvað á ég þá að gera?“ spyr Guðrún sem bætir við að staðan sé hrein­lega ömur­leg sama hvernig á þetta sé litið.

 „Og mögu­lega þurfa leiðir okkar að skilja af því að maður getur ekki komið þaki yfir höf­uðið“

Hún bendir á að þau mæðgin hafi til dæmis ekki getað átt jól saman síð­ustu fjögur árin þar sem hún hafi alltaf verið að vinna. Dreng­ur­inn hafi átt fín jól hjá pabba sínum þar sem ekki hefur væst um hann, en henni þykir leitt að þurfa að missa með þessum hætti af sam­veru­stundum með drengnum vegna fátæktar. „Þetta er bara ömur­leg staða, að allar ráð­stöf­un­ar­tekjur þurfi að fara í það að eiga þak yfir höf­uðið,“ segir Guðrún sem leggur áherslu á að hún sé að missa af eina barn­inu sínu, „og mögu­lega þurfa leiðir okkar að skilja af því að maður getur ekki komið þaki yfir höf­uðið.“

Stanslaust óöryggi

Sem fyrr segir hafa mæðginin verið á stop­ulum leigu­mark­aði síð­ast­liðin tólf ár, eða alveg síðan leiðir Guðrúnar og barns­föður hennar skildu árið 2006. „Við erum búin að búa í þess­ari leigu­í­búð í tvö og hálft ár og þar á undan vorum við hérna úti á Kársnesi í Kópa­vog­inum og þar á undan vorum við inni í Reykja­nesbæ og þar á undan úti í Vest­manna­eyjum, þannig að það er búið að vera svona svo­lítið flakk á okkur,“ segir Guðrún sem hefur lengi viljað festa kaup á íbúð en er með of lágar tekjur til þess að stand­ast greiðslu­mat hjá bönk­unum.

Hún hefur reynt hvað hún getur að skapa syni sínum það öryggi sem hún hefur getað hverju sinni. Þannig bendir hún til dæmis á að hann hafi sem betur fer bara þurft að vera í þremur grunn­skólum um ævina en hann mun ná að klára tíunda bekk­inn í núver­andi skóla. Hún hikar aðeins áður en hún tekur fram að hún hafi sjálf alist upp við það að búa á sama æsku­heim­il­inu til átján ára ald­urs og var þannig alltaf í einum og sama grunn­skól­anum. „En ég get ekki skapað honum þetta öryggi. Hann er búinn að þurfa að skipta þrisvar um skóla, flytja hérna á milli hverfa, á milli sveit­ar­fé­laga og kynn­ast krökkum hér og krökkum þar,“ segir Guðrún sem bendir á að þetta hafi þau áhrif að hann eigi orðið erf­ið­ara með að kynn­ast nýjum krökkum, enda sé næsti flutn­ingur alltaf handan við hornið.

„En ég get ekki skapað honum þetta öryggi.“ 

Hún segir að óör­yggið sem fylgi því að vera á leigu­mark­aði hafi markað son hennar. „Ég finn það alveg að auð­vitað hefur þetta áhrif á strák­inn líka. Og hann hefur spurt mig nokkrum sinnum; getum við ekki bara keypt íbúð? Getum við ekki bara verið ein­hvers staðar föst? Og þá er ég svona að reyna að útskýra fyrir honum að það sé bara ekki þannig hjá öllum. Það er svo­lítið erfitt að útskýra þetta fyrir börnum og krökkum,“segir Guðrún sem hefur alltaf reynt að hlífa drengnum við sínum áhyggjum. „Þannig að ég hef svona reynt að slá á létta strengi með þetta.“

Hafði trú á menntun

Á meðan Guðrún Ágústa og barns­faðir hennar voru í sam­bandi var hún mest­megnis heima­vinn­andi að sjá um litla dreng­inn þeirra auk þess sem hún tók að sér hluta­störf með­fram því. Þegar hún stóð svo frammi fyrir þeim veru­leika að verða ein­stæð móðir með þriggja ára gam­alt barn á fram­færi varð henni ljóst að hún ætti ekki séns á að kaupa sér fast­eign þar sem hún kæm­ist aldrei í gegnum greiðslu­mat hjá bönk­unum. Hún átti því engan kost annan en að fara á leigu­mark­að­inn þar sem þau mæðgin hafa verið æ síðan. Guðrún átt­aði sig fljót­lega á því að hún gæti ekki unnið tíu til tólf tíma vinnu­daga sam­hliða því að ala upp lítið barn og ákvað því að ganga mennta­veg­inn í þeirri von að það myndi að end­ingu borga sig fyrir þau mæðgin.

„Ég gat ekki hugsað mér að hann væri bara að ganga sjálfala þannig að úr varð að ég fór í nám,“ segir Guðrún sem kláraði meist­ara­nám í upp­eldis- og mennt­un­ar­fræðum og lauk auk þess diplóma­gráðu á meist­ara­stigi í fjöl­skyldu­með­ferð. Sem fyrr segir starfar hún nú við sitt fag sem ráð­gjafi hjá SÁÁ, en henni finnst sem menntun hennar sé ekki metin að verð­leikum. Það skjóti skökku við að mann­eskja í fullu starfi í því fagi sem hún hefur menntað sig í eigi ekki kost á að búa sér og barni sínu öruggt heim­ili. „Við erum alltaf að tala um að mennta sig, að menntun sé máttur og allt þetta,“ segir Guðrún sem veltir því fyrir sér hvað börn þessa lands eigi eig­in­lega að hugsa þegar þau átti sig á því að slík skila­boð byggi á sandi.

„Hann sér bara mömmu sína sveitta að skrifa hvert verk­efnið á fætur öðru, þegar ég var að skrifa bæði bachelor- og masters-rit­gerð­irnar þá var ég vakin og sofin yfir því, og dreng­ur­inn hugsar; ókei, maður leggur sjúk­lega mikið á sig en maður upp­sker ekki neitt.“ Guðrún Ágústa og ætt­ingi hennar sem er öryrki hafa borið stöðu sína saman og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Guðrún hafi það verra. „Vegna þess að ég er ekki með öruggt hús­næði, ég er ekki með næga inn­komu og ég fæ hvergi aðstoð,“ segir Guðrún sem tekur fram að öryrkjar eigi að sjálf­sögðu að fá þá aðstoð sem þeir þurfa á að halda. Það sé hins vegar ótækt að fólk í hennar stöðu geti lent með þessum hætti á milli skips og bryggju.

Hefur engu að tapa

Þegar leigu­sam­ingi Guðrúnar fyrir íbúð­inni í Kópa­vog­inum var sagt upp nú í byrjun des­em­ber var henni allri lokið. „Það bara gerð­ist eitt­hvað í hausnum á mér. Ég hugs­aði bara, veistu það, ég er búin að fá nóg, ég get þetta ekki. Ég varð ein­hvern veg­inn svo reið og svekkt og sár að ég sett­ist við tölv­una og drit­aði þetta niður í raun­inni án þess að hugsa,“ segir Guðrún sem vakti athygli á stöðu sinni á Facebook en pistill­inn fékk mikla dreif­ingu og var meðal ann­ars end­ur­birtur á net­miðlum. Þar sagð­ist Guðrún alltaf hafa verið mikil bar­áttu­kona og að upp­gjöf væri ekki til í hennar orða­bók, „en núna finn ég að ég get ekki meir … ég get þetta ekki lengur, Ísland er að drepa mig!!! Ísland er að murka úr mér lífið hægt og rólega!!!“

Henni fannst eins og hún hefði ekki neinu að tapa lengur. „Ef ég stend frammi fyrir því að vera á göt­unni, á hrak­hólum, og þetta verður mögu­lega til þess að ég og sonur minn tvístrumst þá á ég hvort eð er ekk­ert eftir. Af hverju ekki að segja þetta bara eins og þetta er, umbúða­laust?“ spyr Guðrún sem bendir á að margir í hennar stöðu upp­lifi skömm og séu þess vegna ekki til­búnir að opna sig með þessum hætti um stöðu sína. „En ég hugs­aði með mér, veistu það, ég hef engu að tapa, ég ætla bara að láta þetta flakka.“ Hún hefur áður reynt að vekja athygli á eigin stöðu, meðal ann­ars með því að fara á fund vel­ferð­ar­ráð­herra fyrir nokkrum árum, en henni finnst eins og að þeir sem fari með völd í sam­fé­lag­inu hafi lít­inn áhuga á því að hlusta. „Það er bara eins og fólk loki eyr­unum, það bara vill ekki heyra þetta.“ 

Hún við­ur­kennir að hún hafi verið við það að bug­ast á síð­ustu árum. Á stundum hafi hún verið svo búin á sál og lík­ama að henni hafi ekki fund­ist hún geta meir. Þá hafi hún hrein­lega íhugað hvort hún ætti kannski bara að ganga í hafið þar sem „ein­fald­ast og best væri að láta sig hverfa bara“. Hún hefur fullan skiln­ing á því að sumir í sam­bæri­legri stöðu gef­ist á end­anum hrein­lega upp. „Það er nátt­úr­lega ömur­legt að líða svona og mér finnst ömur­legt að þetta ástand valdi manni því að maður hugsi svona,“ segir Guðrún sem leggur áherslu á að það sýni auð­vitað bara hve frústreruð og þreytt hún sé orðin á þeirri von­lausu stöðu sem hún finni sig í á íslenskum leigu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár