Eiga von á myndarlegri endurgreiðslu

Höfði í Reykja­vík er bað­aður nýju ljósi en þar fara fram kvik­mynda­tökur á Hollywood-mynd um leið­toga­fund­inn sem átti sér stað í hús­inu árið 1986. Líklegt verður að telja að íslenska ríkið end­ur­greiði fram­leið­endum 35 pró­sent af kostn­aði sem til fellur.

Eiga von á myndarlegri endurgreiðslu
Sögu­slóðir Daniels og Harris eru á raun­veru­legum slóðum Reagan og Gorbachev, mann­anna sem þeir leika, en ekki í mynd­veri Vest­an­hafs. Fram­leið­endur hefðu ekki verið fyrstir til að end­ur­byggja Höfða, hefði sú leið verið valin, en það gerði jap­anskur rækju­kaup­maður á níunda ára­tugnum. Mynd: Golli

Hollywood-leik­ar­arnir Jeff Daniels, Jared Harris og fleiri sjást nú reglu­lega á tröppum Höfða í Reykja­vík, þar sem fara fram upp­tökur á kvik­mynd um fund Ronalds Reagan, for­seta Banda­ríkj­anna, og Mikhail Gorbachev, leið­toga Sov­ét­ríkj­anna, í Reykja­vík eina októ­ber­helgi árið 1986. Húsið er nú gjarnan baðað ljósi, enda hefur stórum köst­urum verið komið fyrir við húsið, til að stýra birtu og lýs­ingu við kvik­mynda­tökur. Daniels er í hlut­verki Reagans og Harris leikur Gorbachev og ger­ist myndin að stærstum hluta í Reykja­vík, að því er fram hefur komið í umfjöllun um hana í erlendum miðlum, en myndin sjálf mun heita Reykja­vík. 

Það er þó fleira en Höfði sem dregur að, enda hefðu kvik­mynda­gerð­ar­menn getað fetað í fót­spor jap­anska rækju­kaup­manns­ins Sakuhana, sem reisti nákvæma end­ur­mynd Höfða í heimabæ sínum í Hyogo, og byggt leik­mynd í stúd­íói vest­an­hafs. Hér á Íslandi mega fram­leið­endur hins vegar vænta mynd­ar­legrar end­ur­greiðslu frá íslenska rík­inu. En allt að …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár