„Oft á dag hugsa ég til drengjanna minna“

Jóna Dóra Karls­dóttir hefur lifað með sorg helm­ing ævi sinnar en hún missti unga syni sína í elds­voða árið 1985. Í þá daga mátti varla tala um barns­missi en hún lagði sig fram um að opna umræð­una. Fyrir starf sitt í þágu syrgj­enda hlaut Jóna Dóra fálka­orð­una í sumar. „Ég er viss um að ég á fullt skemmti­legt eftir. En það breytir ekki því að ég er skít­hrædd um börnin mín og barna­börn. Það hættir aldrei“.

„Oft á dag hugsa ég til drengjanna minna“
Fann á sér að eitt­hvað illt væri í aðsigi Jóna Dóra Karls­dóttir segir að í febr­úar árið 1985 hafi hún fundið fyrir ofsa­hræðslu í marga daga en ekki náð að tengja það við neitt sér­stakt. Mynd: Golli

Jóna Dóra fædd­ist í Reykja­vík á nýárs­dag 1956. Fyrir áttu for­eldrar hennar tvo syni, móðir hennar var heima­vinn­andi og faðir hennar í iðn­námi og fjöl­skyldan bjó í bragga­hverfi í borg­inni. 

Þaðan fluttu þau í árs­lok 1958 í Smá­í­búða­hverfið og tveimur árum síðar fædd­ist yngsta systkinið, lít­ill bróðir. „Við fluttum í tveggja hæða 90 fer­metra rað­hús við Tunguveg með ömmu og afa. Á heim­il­inu ríkti tak­marka­laus kær­leikur og við systk­inin vorum undir vernd­ar­væng heims­ins bestu for­eldra og móð­ur­ömmu okkar og -afa.“

Hún og tveir bræður hennar voru í íþróttum, þeir í bæði hand­bolta og fót­bolta, hún í fót­bolta. „Þriðji bróðir minn var mik­ill tón­list­ar­maður, þótt hann hafi á end­anum reynst sá okkar sem hafði hvað mestan áhuga á íþróttum. Því miður lést þessi bróðir minn í maí eftir langvar­andi veik­indi, sem var mér óend­an­lega sárt.“

Hélt hann væri hrokagikkur

Nítján ára gömul fór Jóna Dóra með vin­konum …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár