Íslendingar þurfa að draga úr allskonar losun gróðurhúsalofttegunda

Loft­lags­mál eru til umræðu í sjón­varps­þætti Kjarnans í kvöld. Farið er yfir hversu langt Ísland er frá því að upp­fylla skil­yrði sem landið hefur und­ir­geng­ist, hvað það geti kostað okkur ef við bætum ekki úr og hvað þurfi til þess að losun minnki.

„Númer eitt, tvö og þrjú er að við þurfum að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Við gerum það meðal ann­ars, og aðal­lega, með því að hætta að nota svona mikið jarð­efna­elds­neyti.“ Þetta segir Vanda Úlfrún Lív Hellsing, teym­is­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun, í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum á Hring­braut í kvöld þar sem fjallað er um loft­lags­mál og þær skuld­bind­ingar sem Íslend­ingar hafa und­ir­geng­ist í þeim mála­flokki. Hinn gestur þátt­ar­ins er Birgir Þór Harð­ar­son, sér­fræð­ingur Kjarnans í umhverfis- og loft­lags­málum.

[adspot]Eins og staðan er í dag mun Ísland raunar ekki ná þeim mark­miðum sem sett voru í Kyoto-bók­un­inni um að minnka losun fram til árs­ins 2020 og þarf að óbreyttu að kaupa heim­ildir vegna umfram­los­unar.

Nýleg skýrsla Hag­fræða­stofn­unar Háskóla Íslands spáði því að losun myndi að óbreyttu aukast á Íslandi um að minnsta kosti 53 pró­sent frá því sem hún var árið 1990. Samkvæmt Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu á hún að drag­ast sama um 40 pró­sent til 2030 og Ísland því óra­fjarri því að mæta mark­miðum sam­komu­lags­ins.

Birgir Þór segir að það skorti á aðgerðir til að takast á við þetta: „Ein skýr­ing gæti verið að ákvarð­anir sem teknar eru í loft­lags­málum, árang­ur­inn af þeim ákvörð­unum sést ekki fyrr en í fjar­lægri fram­tíð, eftir 20-30 ár[...]Þá er sá ráð­herra eða sá þing­maður löngu hættur í póli­tík. Kjör­tíma­bilið er bara fjögur ár á Íslandi.“

Vanda segir að það sé ekki nóg að binda ein­ungis kolefni, til dæmis með end­ur­heimt vot­lendis. Íslend­ingum séu settar mjög fastar skorður í þeim alþjóða­samn­ingum um loft­lags­mál sem þeir eru aðilar að um hvað telj­ist bind­ing og hversu mikið af henni megi nýta.

Vanda segir að Íslend­ingar þurfi að draga úr losun frá sam­göng­um, land­bún­aði, sjáv­ar­út­vegi og vegna með­ferð úr­gangs til að mark­miðin náist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið undanfarið ár