Gengið út frá því að Katrín verði áfram forsætisráðherra en erfiðar málamiðlanir framundan

Stjórn­ar­flokk­arnir hafa rætt óform­lega um verka­skipt­ingu, fjölgun ráðu­neyta og hvaða mál­efni eigi að vera fyr­ir­ferða­mest í stjórn­ar­sátt­mála næstu rík­is­stjórnar, náist sam­komu­lag um áfram­hald­andi sam­starf.

Formenn flokk­anna þriggja sem ræða nú um áfram­hald­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf hafa þegar rætt að hluta um verka­skipt­ingu sín á milli, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þær óform­legu hug­myndir hafa síðan verið mát­aðar í þröngum hópum í kringum þá.

Gengið er út frá því að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, verði áfram for­sæt­is­ráð­herra. Hún nýtur mik­illar hylli í það emb­ætti og í könnun sem Íslenska kosn­inga­rann­sóknin vann í sam­starfi við félags­vís­inda­stofnun í aðdrag­anda kosn­inga kom fram að um 42 pró­sent lands­manna vildu að Katrín yrði áfram for­sæt­is­ráð­herra, sem er langt umfram það fylgi sem flokkur hennar hefur. Í öðru sæti á þeim lista var Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, með 12,8 pró­sent stuðn­ing í emb­ættið og Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks, kom þar á eftir með 10,7 pró­sent. Báðir eru með minni stuðn­ing í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra en fylgi flokks þeirra enda sýndu tölur ÍSKOS að fleiri kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks vildu Katrínu frekar sem for­sæt­is­ráð­herra en Bjarna og að 41 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar teldu að hún ætti að sitja áfram í stjórn­ar­ráð­inu.

Þá skiptir ekki síður máli að Katrín er sá flokks­leið­togi sem fæstir lands­menn van­treysta, en í nið­ur­stöðum könn­unar sem MMR birti tveimur dögum fyrir kosn­ingar kom fram að 22,7 pró­sent lands­manna bera frekar eða mjög lítið traust til hennar. Sigurður Ingi kemur næstur en 26,9 pró­sent van­treysta honum. Van­traust á Bjarna er mun meira en á hina tvö flokks­for­menn­ina, en 55,5 pró­sent svar­enda í könn­un­inni segj­ast treysta honum frekar eða mjög illa.

Sigurður Ingi horfir til fjármálaráðuneytisins

Sigurður Ingi sæk­ist sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans eftir því að fá fjár­mála­ráðu­neytið á grund­velli auk­ins styrks Fram­sókn­ar­flokks­ins eftir kosn­ingar, en þing­mönnum flokks­ins fjölg­aði um fimm og eru nú 13, eða þremur færri en sá fjöldi sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur. Það þykir næst valda­mesta ráðu­neytið og þaðan er hægt að stýra fjár­magni í þau stóru verk­efni sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn lof­aði að ráð­ast í í aðdrag­anda kosn­ing­anna, til að mynda kerf­is­breyt­inga í fram­færslu­kerfum eldri borg­ara og öryrkja.

Forysta Framsóknarflokksins, sem vann kosningasigur í þingkosningunum um liðna helgi og er nú í færum til að gera meiri kröfur um áhrif en áður.
Forysta Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem vann kosn­inga­sigur í þing­kosn­ing­unum um liðna helgi og er nú í færum til að gera meiri kröfur um áhrif en áður.

Við­mæl­endur Kjarnans hafa sagt að Bjarni sé ekki afhuga þess­ari nið­ur­stöðu fái Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fleiri ráðu­neyti í sinn hlut í stað­inn. Sjálfur myndi hann þá senni­leg­ast setj­ast í stól utan­rík­is­ráð­herra.

Hvernig skipt­ing ráðu­neyta verður á milli flokk­anna að öðru leyti liggur enn ekki fyrir, en búast má við að ráðu­neytum verði fjölgað til að höggva á þá hnúta sem gætu komið upp í þeim samn­inga­við­ræðum og til að leggja áherslu á helstu stefnu­mál nýrrar rík­is­stjórnar. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur þegar kallað eftir því að sér­stakt inn­við­a­ráðu­neyti verði að veru­leika með því að hús­næð­is­mál verði flutt yfir til sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráðu­neytið og jafn­vel ein­hver verk­efni sem verið hafa inni í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Þá er vilji innan þess flokks að skipta aftur upp sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu í tvennt þannig að land­bún­aði verði gert hærra undir höfði í sér­stöku ráðu­neyti sem kennt verði við land­búnað og mat­væli. Sérstakt lofts­lags­ráðu­neyti kemur einnig til greina. Því gætu ráðu­neytin orðið allt að tólf.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur áhuga á að taka yfir heil­brigð­is­ráðu­neytið og gæti mögu­lega líka fengið mennta­mála­ráðu­neytið, færi Lilja D. Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sig um set. Það gæti orðið erfitt fyrir Vinstri græn enda stefna flokk­anna tveggja þegar kemur að auk­inni aðkomu einka­rekst­urs í þessum mála­flokkum eins ólík og hægt er að vera. Það flækir málið að í kosn­inga­á­herslum Fram­sókn­ar­flokks í aðdrag­anda kosn­inga kom fram að flokk­ur­inn vilji skoða „hvort frek­ari til­efni sé til auk­ins einka­rekst­urs innan heil­brigð­is­geirans.“

Stór verkefni framundan

Flokk­arnir eiga eftir, í við­ræðum næstu daga, að koma sér saman um hvaða mál­efna­á­herslur verði efst á blaði hjá nýrri rík­is­stjórn nái þeir lend­ingu í við­ræður, sem flestir við­mæl­endur eru sam­mála um að sé senni­legt. Það eru stór og krefj­andi verk­efni framundan. End­ur­reisn efna­hags­lífs­ins eftir kór­ónu­veiru­far­aldur og næsta stóra lota kjara­samn­inga­við­ræðna eru þau sem eru mest aðkallandi auk lofts­lags­mála og sam­spili þeirra við efna­hags­stefnu næstu rík­is­stjórnar.

Efna­hags­mála­stefna rík­is­stjórn­ar­innar heild­rænt mun þar skipta máli og það að finna jafn­vægi milli rík­is­út­gjalda í þau verk­efni sem flokk­arnir vilja ráð­ast í og þess að við­halda aga og stöð­ug­leika í rík­is­fjár­málum sem leiði af sér minni verð­bólgu, minni halla á rík­is­sjóði og geti stutt við áfram­hald­andi vöxt. Þá þarf að taka ákvarð­anir um hvort og hvernig eigi að styðja við þær atvinnu­greinar sem hafa farið illa út úr kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og vinna frekar á atvinnu­leysi.

Þótt atvinnu­leysi hafi minnkað skarpt er það enn 5,5 pró­sent og yfir fimm þús­und manns hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Sem stendur eru enn í gildi svo­kall­aðir ráðn­inga­styrkir, þar sem rík­is­sjóður greiðir þorra launa nýrra starfs­manna fyr­ir­tækja tíma­bundið, en þeir renna flestir út á næstu vikum. Í síð­asta mán­uði voru 73 pró­sent aug­lýstra starfa átaks­verk­efni eða reynslu­ráðn­ingar og mörg þús­und manns eru ráðin á þessum ráðn­ing­ar­styrkjum.

Á að halda áfram stuðningi við fyrirtæki með peningum úr ríkissjóði?

Þá hefur ferða­þjón­ustan kallað eftir frek­ari aðgerðum fyrir sig, sér­stak­lega þegar nú liggur fyrir að ferða­menn í ár verða ein­ungis um 600 þús­und í ár, eða rétt um 100 þús­und fleiri en í fyrra, sem er svip­aður fjöldi og heim­sótti Ísland árið 2011. Nýleg spá Íslands­banka gerir ráð fyrir að þeir verði ein milljón á næsta ári, sem er svip­aður fjöldi og kom hingað árið 2014. Þegar best lét árið 2019 voru ferða­menn­irnir yfir 2,3 millj­ónir.

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag að nið­ur­staðan í ár sé „hörmu­leg nið­ur­staða“. Framundan sé afar erf­iður vetur fjöl­margra fyr­ir­tækja í grein­inni. „Það er því ljóst að tvenns konar aðgerðir þarf til að vinna úr þess­ari erf­iðu stöðu sem er nú að lengj­ast veru­lega í umfram það sem við von­uð­umst til. Annars vegar þarf að fram­lenga ráðn­ing­ar­styrki vinnu­mála­stofn­unar til að þeir taki yfir vet­ur­inn allan en ekki bara fram að ára­mótum. Það mun minnka óviss­una sem starfs­fólk í ferða­þjón­ustu stendur frammi fyrir inn í vet­ur­inn. Hins vegar þarf ný rík­is­stjórn að taka skýrt frum­kvæði um úrlausn skulda­vanda lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja. Tillögur um það sem byggja á vel reyndri leið Beinu braut­ar­innar frá því eftir banka­hrunið hafa legið inni hjá stjórn­völdum mán­uðum saman.“

Hnútarnir og málamiðlanir

Ótalin eru mál sem röt­uðu inn í síð­asta stjórn­ar­sátt­mála en end­uðu í deilum og náðu sum hver ekki afgreiðslu. Þar má nefna hálend­is­þjóð­garð, breyt­ingar á stjórn­ar­skrá og frek­ari styrk­ing á rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla, en þar eru áherslur flokk­anna æði ólíkar. Mikið púður fór í átök, jafnt opin­ber­lega og bak­við tjöldin, um þessi mál á síð­asta kjör­tíma­bili og for­menn flokk­anna vilja forð­ast þá stöðu nái þeir saman um áfram­hald­andi sam­starf.

Þegar horft er á mál sem flokk­arnir settu á odd­inn í aðdrag­anda kosn­inga, og eru ósam­mála um, er ljóst að mála­miðl­ana verður þörf. Á meðal kosn­inga­lof­orða Fram­sókn­ar­flokks­ins voru að auka end­ur­greiðslur til kvik­mynda­gerðar upp í 35 pró­sent, greiða vaxta­styrk til barna­fjöl­skyldna upp á 60 þús­und krónur á hvert barn óháð tekjum, taka upp þrepa­skipt trygg­inga­gjald og fleiri þrep í tekju­skatti fyr­ir­tækja þar sem hreinn hagn­aður fyr­ir­tækja umfram 200 millj­ónir króna verður skatt­lagður hætta á móti lækkun til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja.

Vinstri græn vilja taka upp þrepa­skiptan fjár­magnstekju­skatt, nota skatt­kerfið frekar til að jafna kjör og nýta það til að styðja við mark­mið í loft­lags­málum. Flokk­ur­inn vill fjölga íbúðum í almenna íbúða­kerf­inu og auka enn frekar við stuðn­ing rík­is­sjóðs við félags­legt hús­næði. Og Vinstri græn vilja auka fjár­fest­ingu í innviðum heil­brigð­is­kerf­is­ins og auka geta opin­bera hluta þess, í stað þess að auka hluta einka­geirans. Þá kemur fram í stefnu­skrá Vinstri grænna að flokk­ur­inn vili að þeir sem nýti auð­lindir í eigu þjóðar, þar á meðal sjáv­ar­auð­lind­ina, greiði sann­gjarnt gjald af þeirri nýt­ingu.

Áherslur Sjálfstæðisflokks ólíkar í ýmsum málaflokkum

Bjarni Bene­dikts­son gagn­rýndi hluta þess­ara áherslna sam­starfs­flokk­anna í aðdrag­anda kosn­inga. Í við­tali við Dagmál Morg­un­blaðs­ins sem birt var í vik­unni fyrir kosn­ingar sagði hann lítil rök hníga að því að auka skatt­byrði fyr­ir­tækja og að það væri óraun­hæft að end­ur­greiða kostnað vegna kvik­mynda­gerðar hér­lendis upp á millj­arða­tugi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enda með ólíkar áherslur en ofan­greindar í flestum þessum mála­flokkum. Hann vill lækka skatta, hefur það sem meg­in­mark­mið að rekstur rík­is­sjóðs verði orð­inn jákvæður fyrir lok kjör­tíma­bils­ins, meðal ann­ars með „umbótum í opin­berum rekstri“ sem felur til dæmis í sér að fækka rík­is­stofn­unum. Þá er sér­stak­lega til­tekið í stjórn­mála­á­lyktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem sam­þykkt var í aðdrag­anda kosn­inga að nauð­syn­legt væri að „gjald­heimta í sjáv­ar­út­vegi dragi ekki úr sam­keppn­is­hæfni á alþjóða­mark­aði og fjár­fest­ingu í grein­inni.“ Áhersla Sjálf­stæð­is­flokks­ins í lofts­lags­málum snýst fyrst og síð­ast um orku­skipti, sem hinir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir styðja.

Leiðin að þeim skiptum er þó ekki sú sama í huga þeirra allra. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telur að græna orku­bylt­ingin kalli „á aukna notkun á bæði raf­orku og raf­elds­neyti sem Ísland er í kjör­stöðu til að fram­leiða.“ Framsókn er lík­leg til að styðja það að virkjað verði meira en það verður erfið pilla fyrir Vinstri græn að kyngja, enda skil­greinir flokk­ur­inn sig út frá umhverf­is­vernd.

Í hús­næð­is­málum leggur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn áherslu á að fjölga mögu­leikum fólks til að eign­ast hús­næði en minn­ist ekk­ert á frek­ari upp­bygg­ingu á opin­beru hús­næð­is­kerfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár