Þetta er fólkið sem ræður yfir auðlindinni

Einn ein­stak­lingur fær úthlutað 10 millj­arða króna virði af auð­lind Íslend­inga með mak­ríl­frum­varp­inu. Sá sem ræður yfir stærstum hluta kvót­ans fer með and­virði 35 millj­arða króna af honum. Við segjum sögur þessa fólks, frá ævareiðum Vest­firð­ingum, auð­manni á hús­bíl og stór­veld­inu sem reis.

1Guðmundur Kristjánsson 35,46 milljarðar: 
Ósvífni útgerðarmaðurinn

Stærsti ein­staki kvóta­eig­andi Íslands er Guð­mundur Krist­jáns­son, kenndur við Brim. Það skondna er að Guð­mundur ætl­aði sér ekki að stunda útgerð og hafði fram­tíð­arplön um allt aðra hluti.

Örlög hans urðu þau að feta í fót­spor föður síns með þeim breyt­ingum þó að sonur þorps­höfð­ingj­ans byggði upp stór­veldi á lands­vísu. 

Hann hefur verið með fyr­ir­ferð­ar­meiri útgerð­ar­mönnum lands­ins og jafn­framt þeim umdeild­ari. Yfirtaka hans á Bása­felli á Vest­fjörðum árið 1999 mark­aði upp­haf þess veldis sem hann stýrir nú en var jafn­framt for­dæmd af mörgum Vest­firð­ingum. 

Hlutaði niður óskabarn Vestfirðinga   

Guð­mundur hefur starfað í sjáv­ar­út­vegi alla ævi. Faðir hans, Kristján Guð­munds­son, gerði út og rak fisk­verkun frá Rifi á Snæ­fells­nesi þar sem Guð­mundur er fæddur og upp­al­inn, enda seg­ist hann sækja kjark sinn í Snæ­fells­jökul. Útgerðin frá Rifi, Tjaldur hf., gekk vel og þá sér­stak­lega eftir að útgerð línu­báta með beit­ing­ar­vél um borð hófst. Guð­mundur og Hjálmar, bróðir hans, tóku við stjórn af föður sínum rétt fyrir ald­ar­mót og leið ekki að löngu þar til áhrifa þeirra fór að gæta.

Guð­mundur lagði undir sig útgerð­ar­ris­ann Básafell á Vest­fjörðum sem hann lim­aði í sundur. Mörg byggða­fé­lög voru í sárum eftir þá aðgerð. Sú aðgerðir hans að taka Básafell í sundur voru með fádæmum óvin­sælar enda var fyr­ir­tækið óska­barn Vest­firð­inga. Það var sam­sett úr nokkrum fjölda fyr­ir­tækja og réði yfir gríð­ar­legum kvóta. Því var ætlað að verða þunga­miðjan í atvinnu­lífi á norð­an­verðum Vest­fjörðum. 

Vandinn var hins vegar sá að him­in­háar skuldir slig­uðu fyr­ir­tækið. Sjálfur segir hann þann tíma hafa verið sér mjög erf­iðan. Ævareiðir Vest­firð­ingar gáfu honum við­ur­nefnið Guð­mundur vina­lausi og mað­ur­inn með hníf­inn. Sjálfur hefur Guð­mundur sagt að sund­ur­limun Bása­fells hafi í raun verið björg­un­ar­að­gerð þar sem félagið hafi staðið á brauð­fótum og ekki átt sér lífs­von. 

„Um tíma hugði ég á dokt­ors­nám en ég hætti við það eftir Bása­fells­tím­ann, hann var á við gott dokt­ors­nám,“ sagði Guð­mundur í við­tali við Frétta­blaðið árið 2004. 

Frá Vestfjörðum til Akureyrar 

Árið 2004 dró næst til tíð­inda hjá Guðmundi en þá keypti hann Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyrar. Kaup­verðið var níu millj­arðar króna. Það lýsir bæði kjarki og ósvífni að Guð­mundur kemur til Akur­eyrar eftir að hafa hirt kvót­ann af Vest­firð­ingum. 

Stolt Akur­eyr­inga hafði lengi verið Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga. Stjórn­endur þess þekktu þó ekki vitj­un­ar­tíma sinn. Á sama tíma og Samherji blómstr­aði missti ÚA fót­anna. Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi bæj­ar­stjóri á Akureyri, full­yrti að Guð­mundur myndi ganga á eigur félags­ins. Í orðum bæj­ar­stjór­ans lá að Guð­mundur myndi fara sömu leið og með Básafell. Taka félagið í sundur og nýta skip og kvóta. 

Afstaða bæj­ar­stjór­ans þótt skondin í því ljósi að sem bæj­ar­stjóri á Ísafirði hafði hann á því vel­þóknun þegar Samherji hf. inn­byrti flagg­skip Vest­firð­inga, togar­ann Guð­björgu ÍS. Í við­tali við Frétta­blaðið þetta sama ár tjáði Guð­mundur sig um kaupin á Útgerð­ar­fé­lagi Akur­eyrar. 

„Þetta er svo stór tala að maður pælir ekki í henni, þetta er nátt­úru­lega ekki eitt­hvað sem ég þarf að borga á morgun og er þaðan af síður til á banka­bók. Við erum ekki að eign­ast nein ver­ald­leg gæði heldur erum að koma pen­ingum í vinnu,“ sagði Guð­mundur. 

ÚA rann síðan inn í Brim hf. og lauk þar með ára­tuga­langri útgerð­ar­sögu. 

Holskefla reiði frá heimamönnum 

Bræð­urnir Guð­mundur og Hjálmar mættu seinna til Vest­manna­eyja þar sem þeir eign­uð­ust 40 pró­senta hlut í Vinnslu­stöð­inni í gegnum félag sitt, Stillu og KG fisk­verkun. Líklegt er að þar hafi menn ætlað að taka ræki­lega til í rekstr­inum og hugs­an­lega með svip­uðum hætti og á Norð­ur­landi og Vest­fjörðum. En heima­menn í Eyjum voru ekki á því að hleypa þeim bræðrum að kjöt­kötl­unum. Allar götur síðan þeir eign­uð­ust fyr­ir­tækið hafa þeir verið læstir inni í minni­hluta og áhrif þeirra á rekst­ur­inn engin. Af þessu hafa sprottið dóms­mál en það hvorki gengur né rekur. En það er tekið sem dæmi um kjarki blandna ósvífni Guð­mundar að hann kallar enn og aftur yfir sig hol­skeflu reiði og jafn­vel hat­urs með því að mæta til Vest­manna­eyja með nið­ur­skurð­ar­hníf­inn. Þá situr hann í stjórn Vinnslu­stöðv­ar­innar og mætir þar höf­uð­fjendum sínum óhikað. 

Síðustu árin hefur Guð­mundur verið að fóta sig í útgerð og fisk­vinnslu á Græn­landi. Rétt eins og á Íslandi er hann með mikil umsvif þar á sjó og á landi. En rekstr­ar­um­hverfið er erfitt og víst að það mun reyna mjög á hann að ná þar var­an­legri fót­festu. 

Mótmælti hækkun veiðigjalda 

Á tíma vinstri­st­jórn­ar­innar var Guð­mundur sér­stak­lega fyr­ir­ferð­ar­mikil og gagn­rýndi hann allt sem túlka mætti sem breyt­ingu á núver­andi kerfi. Hann stóð fyrir stór­fundi með sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um það leyti sem útgerð­ar­menn mót­mæltu sem ákaf­ast fyr­ir­hug­uðum hækk­unum á veiði­gjöldum. Um tíma var hann tals­maður útgerð­ar­manna í land­inu, án þess að vera til þess kos­inn. 

Skoðanir Guð­mundar hafa verið umdeildar á meðal útgerð­ar­manna. Hann hefur verið umdeildur í hópi þeirra eins og víðar. Afstaða hans til við­ræðna um aðild að ESB hefur verið kol­legum hans sér­stakur þyrnir í augum. Líkt og áður fór hann sínar eigin leiðir og lýsti þeirri skoðun sinni að ljúka ætti aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Þessi þver­girð­ings­háttur er einmitt ein­kenni á Guðmundi. 

Guð­mundur er frá­skil­inn og berst lítið á í einka­lífi. Þó brá svo við að hann dúkk­aði upp sem aðal­efni á for­síðu Séð og Heyrt í fyrra­sumar. Fyr­ir­sögnin var Lista­gyðja í net kvóta­kóngs. Þar sagði að stór­út­gerð­ar­mað­ur­inn Guð­mundur í Brim og Eddu­verð­launa­haf­inn Helga Stefáns væru aðal­per­sónur í ást­ar­sögu árs­ins og hefðu farið saman í leik­hús og eytt nokkrum góðum dögum á Lands­móti hesta­manna. Ekki fer neinum frek­ari sögum af þessu sam­bandi og Guð­mundur heldur sem fyrr einka­líf­inu fyrir sig. 

Samkvæmt kvóta­frum­varpi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra er Guð­mundur í þriðja sæti á lista þeirra sem fá úthlut­uðum mak­ríl­kvóta, eða 5,37% kvót­ans að verð­mæti 5,05 millj­arða.

 

2Kristján Vilhelmsson 30,34 milljarðar: 
Nægjusami Samherjinn

Kristján Vil­helms­son er stærsti ein­staki eig­andi Samherja. Hann var upp­haf­lega vél­stjóri á Akur­eyr­inni en tók síðan við starfi útgerð­ar­stjóra þegar fyr­ir­tækið stækk­aði og Þor­steinn Már Bald­vins­son, frændi hans, varð for­stjóri.

Krist­jáni er gjarnan lýst sem hæg­láta Sam­herj­anum. Hann var lengst af minnst áber­andi þeirra þriggja. Þegar brestir komu í sam­starfið vegna deilna Þor­steins Más og Þor­steins Vil­helms­sonar, bróður Krist­jáns, reyndi hann að bera klæði á vopnin og sætta frænd­urna. En það gekk ekki og Þor­steinn Vil­helms­son seldi sinn hlut. Kristján ákvað hins vegar að halda sig áfram innan Samherja þar sem hann er enn og sem stærsti ein­staki eig­and­inn. 

Í nær­mynd Indiíönu Hreins­dóttur blaða­manns í DV er því lýst að ósætti frænd­anna hafi rist djúp sár líf stór­fjöl­skyld­unnar og verið Krist­jáni sárs­auka­fullt. 

Kristján er þekktur fyrir að ber­ast lítið á þótt hann hafi mik­inn metnað til að ná langt. Þrátt fyrir að vera millj­arða­mær­ingur ók hann lengst af um á venju­legum bílum og kunni best við sig í sveit­inni þar sem hann á sum­ar­hús. Í nær­mynd DV var haft eftir æsku­vini hans að þegar Land­cruiser-jeppi hans var kom­inn í 200 þús­und kíló­metra hafi Kristján látið sprauta hann upp á nýtt og haldið áfram að nota hann. Enginn var í vafa um að hann hefði getað keypt hvaða bíl sem var. 

Annar félagi Krist­jáns lýsti því að hann væri gjarnan á þriggja stjörnu hót­elum þegar hann ferð­að­ist. Ekki væri til í honum stór­bokka­skapur og bruðl væri eitur í hans beinum.

„Margur hefði örugg­lega hlaupið meira út undan sér með allan þennan pen­ing,“ sagði vinur hans í DV. 

Samkvæmt kvóta­frum­varpi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra er Kristján næstefstur á lista þeirra sem fá úthlut­uðum mak­ríl­kvóta, eða 6,02% kvót­ans að verð­mæti 5,66 millj­arða.

 

3Guðbjörg Matthíasdóttir 29,31 milljarður: 
Flaggar ekki auðæfum

Auður Guð­bjargar Matt­hías­dóttur á sínar rætur í stór­veldi tengda­föður hennar, Einars ríka Sig­urðs­sonar. Sigurður Ein­ars­son, eig­in­maður 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár