Mislæg gatna­mót Sam­göngu­ráð­herra vill að Reykja­vík­ur­borg fjölgi mis­lægum gatna­mótum, en borg­ar­stjórn vill leggja fé í almenn­ings­sam­göngur og minni áherslu á fyr­ir­ferð­ar­mikil umferð­ar­mann­virki. Hér sjást gatna­mót Miklu­brautar og Sæbrautar við Elliða­ár­ósa. Mynd: Shutterstock

Bílaþjóðin

Íslend­ingar eyddu rúm­lega 440 millj­ónum á hverjum degi á síð­asta ári í einka­bíl­inn, og þá eru elds­neytis­kaup ekki talin með. Gamalt borg­ar­skipu­lag neyðir okkur til að eiga bíl, jafn­vel tvo, ólíkt íbúum á Norð­ur­lönd­unum, en sam­kvæmt neyslu­við­miði stjórn­valda er gert ráð fyrir að fjög­urra manna fjöl­skylda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eyði 1,44 millj­ónum á ári í einka­bíl­inn.

„Við erum ofsa­leg bíla­þjóð og við elskum bíl­ana okkar,“ sagði Egill Helgason, þátta­stjórn­andi Silf­urs­ins á RÚV, í umræðu um sam­göngu- og skipu­lags­mál síð­asta sunnu­dag. Gögn benda til þess að Egill hafi rétt fyrir sér. 

Íslend­ingar eru ein mesta bíla­þjóð í heimi. Bílum fjölgar hraðar en íbúum og eru þeir nú orðnir fleiri en lands­menn. Bíl­greinar veltu 440 millj­ónum á hverjum degi á síð­asta ári og vöxt­ur­inn heldur áfram. Íslend­ingar hafa aldrei flutt inn jafn mörg ný öku­tæki til lands­ins og nú er svo komið að starfs­fólk Sam­göngu­stofu hefur ekki undan við að skrá nýja bíla inn í landið. Fyrir vikið hrann­ast upp nýir bílar í Sunda­höfn.

Íslend­ingar eru bíla­þjóð og Reykja­vík er bíla­borg. Einka­bíll­inn hefur haft for­gang í borg­inni langt umfram það sem þekk­ist í nágranna­löndum okkar og gam­alt borg­ar­skipu­lag gerir það að verkum að borg­ar­búar nán­ast neyð­ast til að eiga bíl. Um helm­ingur borg­ar­lands Reykja­víkur fer undir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár