Mynd: Pressphotos.biz

Öskraði á lögreglumann og hótaði honum stöðulækkun

Lög­reglu­maður og fjöl­skyldu­með­limir hans þurftu á sál­fræði­að­stoð að halda vegna fram­göngu Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra eftir að hann lét í ljós efa­semdir um rétt­mæti ásak­ana sem bornar voru á sam­starfs­mann hans og reynd­ust síðar vera rangar. Maðurinn var sviptur lög­reglu­full­trúa­tign og færður til í starfi. „Hún til­kynnti honum að hann fengi ekki lög­reglu­full­trúa­stöðu þegar þær yrðu aug­lýstar. Hún tók jafn­framt fram að hann skyldi ekki reikna með fram­gangi hjá emb­ætt­inu í fram­tíð­inni.“

Lög­reglu­maður sem ann­að­ist fíkni­efna­rann­sóknir hjá emb­ætti lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur kvartað undan ein­elti sem hann telur sig hafa orðið fyrir af hendi Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra.

Lögmaður manns­ins sendi starfs­manna­skrif­stofu lög­regl­unnar og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu bréf í gær. Þar er því meðal ann­ars lýst hvernig Sigríður Björk hót­aði mann­inum stöðu­lækkun, svipti hann lög­reglu­full­trúa­stöðu og dró til baka ákvörðun um að hann fengi að sækja sér­hæf­ing­ar­nám­skeið erlendis.

Allt þetta gerð­ist í vitna við­ur­vist eftir að mað­ur­inn lét í ljós efa­semdir um rétt­mæti ásak­ana sem bornar höfðu verið á sam­starfs­mann hans, þann mann sem kall­aður hefur verið lög­reglu­full­trúi x í umfjöllun Stund­ar­innar og var hreins­aður af ásök­unum um brot í starfi og óeðli­leg sam­skipti við aðila úr fíkni­efna­heim­inum fyrr í sumar. 

Í bréf­inu kemur fram að vegið hafi verið að starfs­heiðri lög­reglu­manns­ins og fjár­hags­legri afkomu hans auk þess sem málið hafi haft djúp­stæð áhrif á fjöl­skyld­una. Bæði hann og fleiri fjöl­skyldu­með­limir hafi þurft að leita sér sál­fræði­að­stoðar vegna fram­göngu Sigríðar Bjarkar og greiddi lög­reglu­emb­ættið kostn­að­inn af þeirri með­ferð.

Fullyrt er að Sigríður hafi öskrað á mann­inn í vitna við­ur­vist, gefið í skyn að hún myndi standa í vegi fyrir fram­gangi hans innan lög­regl­unnar, borið á hann rangar sakir og kraf­ist þess að hann drægi til baka skoð­anir sem hann hafði látið í ljós. 

Aldís Hilmarsdóttir
Aldís Hilm­ars­dóttir fyrr­ver­andi yfir­maður fíkni­efna­deildar

Lög­reglu­mað­ur­inn sem kvartað hefur undan Sigríði Björk er ekki sá fyrsti sem sakar hana um ein­elti. Aldís Hilm­ars­dóttir, fyrr­ver­andi yfir­maður fíkni­efna­deildar, stefndi lög­reglu­stjór­anum fyrr í sumar, meðal ann­ars á þeim grund­velli að Sigríður hefði með ámæl­is­verðum og end­ur­teknum hætti valdið sér van­líðan og lagt sig í ein­elti.

Sá lög­reglu­maður sem kvartar nú undan Sigríði kom fyrir í ítar­legri frétta­skýr­ingu Stund­ar­innar í sumar undir yfir­skrift­inni „Hall­ar­bylt­ing og hreins­anir í fíkni­efna­deild“. Þar var greint frá því hvernig lög­reglu­menn sem höfðu lög­reglu­full­trúa x fyrir rangri sök voru hækk­aðir í tign, fengu óaug­lýsta stöðu og hlutu ann­ars konar fram­gang í starfi. Þeir sem stóðu með lög­reglu­full­trú­anum voru hins vegar settir til hliðar. Umræddur lög­reglu­maður er í síð­ar­nefndum hópi. 

Eftir að lög­reglu­full­trúi x var sviptur yfir­manns­stöðu upp­lýs­ingateymis fíkni­efna­deildar tók þessi lög­reglu­maður við þeirri stöðu. Í kjöl­farið hófst sú atburða­rás sem fjallað var laus­lega um í umfjöllun Stund­ar­innar á sínum tíma en er lýst með ítar­legum hætti í kvörtun­inni sem nú hefur verið lögð fram. Atburða­rásinni lyktaði með þeim hætti að lög­reglu­mað­ur­inn var fluttur á aðra starfs­stöð þar sem hann naut lak­ari kjara en áður. Í kjöl­farið ákvað hann að taka sér leyfi.

„Reiddist þá lög­reglu­stjóri enn frekar, öskr­aði og sagði skoðun umbjóð­anda míns engu skipta“

Kvörtunin er ítar­leg og efn­is­mikil. Í þess­ari frétt verður ein­ungis fjallað um hluta hennar, einkum fund sem Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir boð­aði lög­reglu­mann­inn á þann 31. ágúst 2015. Aldís Hilm­ars­dóttir, fyrr­ver­andi yfir­maður fíkni­efna­deildar, sat einnig fund­inn og varð vitni að því sem þar fór fram.

 

Lög­reglu­stöðin við Hverf­is­götu

Lögreglumaður vildi aftur fá inngöngu í upplýsingateymið

Eftir að lög­reglu­mað­ur­inn tók við stöðu yfir­manns upp­lýs­ingateym­is­ins kom lög­reglu­maður úr fíkni­efna­deild, sem áður starf­aði með teym­inu, að máli við hann og óskaði eftir að fá aftur inn­göngu í teymið. Þeim 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár