Í okkar litla en dásamlega landi er oft skondið að fylgjast með hagsmunabaráttunni. Hún er einna sýnilegust á landsfundum stjórnmálaflokkanna. Þá eru engin tjöld til að fela sig bak við og fólk getur fylgst með, og metið hvað sé á seyði. Það er hollt fyrir stjórnmálaflokkanna að gefa öllum sem vilja innsýn í grasrótarstarfið og sjá hvernig málefnabaráttan fer fram.
Á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins
sást hagsmunabaráttan vel, þegar umræður fóru fram um afnám tolla á landbúnaðarvörum og hvort samkeppnislög ættu að gilda um landbúnað eins og aðra atvinnuvegi. Tillaga efnahags- og viðskiptanefndar flokksins var á þá leið að fella ætti niður alla innflutningstolla á næstu fjórum árum, og endurskoða búvörulög frá grunni.
Sá sem setti sig einna harðast upp á móti róttækum breytingartillögum var landsfundarfulltrúinn Ari Edwald. Hann fann þessu allt til forráttu, og sagði að íslenskur landbúnaður gæti ekki staðist svo róttækar breytingar, eins og boðaðar væru í tillögunni. Svo fór að lokum að fallið var frá orðalaginu, um að fella ætti niður alla innflutningstolla á næstu fjórum árum.
Það er ekki oft sem maður sér jafn tæra hagsmunabaráttu hjá fyrirtækjum, inn í hinu pólitíska starfi miðju, eins og átti við í þessum rökræðum. Ari Edwald er forstjóri Mjólkursamsölunnar, MS, sem hræðist frjálsræði á markaði með landbúnaðarvörur óskaplega og hefur alltaf gert. En hann náði að hafa áhrif til góðs fyrir sitt fyrirtæki, og getur því andað léttar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir