Fyrir einu ári síðan: „Við eigum Ísland, það eina sem við eigum eftir að gera er að taka það“

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga stóran hluta af íslensku atvinnu­lífi. Hávær krafa hefur lengi verið um að þeir verði virk­ari eig­endur og nýti sér þau völd sem í því fel­ast til að beita sér fyrir lífs­gæðum sjóðs­fé­laga í nútíð ekki síður en í fram­tíð.

Stundum þegar ég vil fá jarð­teng­ingu við hvað ég er að gera þá fer ég í bækur sem hafa verið skrif­aðar, t.d. saga verka­lýðs­fé­lag­anna. Fyrsta verka­lýðs­fé­lagið fyrir austan er stofnað 1896. Þegar maður les fund­ar­gerðir frá fyrstu fund­unum ... þetta er fólk sem bjó í nán­ast mold­ar­kofum, áhyggju­efnin voru hvort að börnin fengu mat dag­inn eftir. Menn voru settir út á kaldan klaka og fengu ekki atvinnu ef þeir voru í for­ystu fyrir verka­lýðs­fé­lagið. Í dag, félögin sem þetta fólk stofn­aði, við eigum Ísland. Það eina sem við eigum eftir að gera er að taka það.“

Þetta sagði Sverrir Mar Alberts­son, fram­kvæmda­stjóri AFLs starfs­greina­sam­bands, og annar þeirra sem boðið hafði sig fram til for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) á fundi sem Efling stóð fyrir með for­seta­fram­bjóð­endum í sept­em­ber 2018. Mót­fram­bjóð­andi Sverris, Drífa Snædal, sagð­ist vera honum sam­mála. Drífa var á end­anum kjörin í emb­ættið.

Ummælin féllu í umræðum um hvort að líf­eyr­is­sjóðir ættu að taka að sér stærra sam­fé­lags­legt hlut­verk. Ástæðan fyrir umræð­unum er sú að stærstu eig­endur íslensks atvinnu­lífs eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Og eig­endur líf­eyr­is­sjóð­anna er almenn­ingur í land­inu.

Höft kenna nöktum sjóðum að spinna

Hlutur líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins í heild íslensku atvinnu­lífi hefur auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Fyrir því eru þrjár ástæður. Sú fyrsta er að þeir tóku virkan þátt í end­ur­reisn íslensks atvinnu­lífs eftir banka­hrunið, þegar lítið var um stóra sjóði til að taka að sér slíka end­ur­reisn. Til að setja það verk­efni í sam­hengi var það mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að um 70 pró­sent allra fyr­ir­tækja í land­inu hefði þurft á ein­hvers­konar fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu að halda eftir hrunið. Og á meðal þeirra voru mörg mik­il­væg­ustu þjón­ustu­fyr­ir­tæki lands­ins.

Önnur ástæðan er sú að líf­eyr­is­sjóð­irnir voru, eins og aðrir sem búa og starfa á Íslandi, fastir innan fjár­magns­hafta frá haustinu 2008 og fram á síð­ustu ár. Þeir máttu því ekki ráð­ast í nýfjár­fest­ingar utan lands­stein­anna.

Þriðja ástæðan er sú að inn­greiðslur í líf­eyr­is­sjóð­ina hafa auk­ist umtals­vert á und­an­förnum árum og eignir þeirra ávaxt­ast vel sam­hliða. Í lok árs 2010 átti kerfið allt 1.920 millj­arða króna. Í lok júlí síð­ast­lið­ins námu eignir líf­eyr­is­sjóða 4.093 millj­örðum króna. Þær hafa því rúm­lega tvö­fald­ast á átta og hálfu ári.

Sjónvörp og þvottavélar

Á umræðu­fundi um eign­ar­hald á at­vinnu­fyr­ir­tækj­um, hlut­verki líf­eyr­is­sjóða og áhrif á sam­keppni sem hald­inn var á Hilton Reykja­vik Nor­dica í maí 2016 á vegum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins náði Flóki Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri ­sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Stefnis, að kjarna þá stöðu sem var uppi ágæt­lega. Þar sagði hann að ef líf­eyr­is­sjóð­unum yrði ekki bráðum heim­ilað að fjár­festa utan Íslands væru þeir farnir að kaupa „sjón­vörp og þvotta­vél­ar“ eftir nokkur miss­eri. Allir aðrir fjár­fest­inga­kostir verð­i ­upp­urn­ir.

Nokkrum dögum síðar var líf­eyr­is­sjóð­unum veitt heim­ild til að versla utan hafta og í fyrra­vor var höftum að mestu lyft. Síðan þá hefur áhersla þeirra verið á að kaupa erlendar eignir.

Úr sex prósentum í 41 prósent

Tæpur ára­tugur innan hafta skil­aði hins vegar því að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins urðu allt um lykj­andi í íslensku atvinnu­lífi. Í skýrslu sem Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands vann um þá stöðu, og birt var í jan­úar síð­ast­liðnum, kom fram að á árinu 2006 hafi sjóð­irnir átt um sex pró­sent allra skráðra hluta­bréfa í íslensku kaup­höll­inni. Áratug síðar áttu þeir 41 pró­sent slíkra.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir voru líka búnir að kaupa upp nær öll skulda­bréf á mark­aði. Árið 2006 áttu þeir 41 pró­sent slíkra en 2016 var hlut­fall þeirra í mark­aðs­skulda­bréfum komið í 71 pró­sent.

Morg­un­ljóst var, eftir margra ára gjald­eyr­is­höft, að íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir voru búnir að kaupa nær allt sem þeir gátu keypt á Íslandi.

Í skýrsl­unni kom líka fram að ef líf­eyr­is­sjóð­irnir skili 3,5 pró­sent raun­á­vöxtun á ári mun hlutur þeirra í heild­ar­fjár­muna­eign á Íslandi fara í 35 pró­sent árið 2030. 30 árum síðar, árið 2060, er reiknað með að sjóð­irnir muni eiga 40 pró­sent af heild­ar­fjár­munum á Íslandi.

Þannig á þjóðin óbeint þessar eignir þótt hún hafi ekki beinan ráð­stöf­un­ar­rétt yfir því fjár­magni sem er inni í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu þar til að það er greitt út sem líf­eyrir.

Nútíð eða framtíð?

Mörg þeirra fyr­ir­tækja sem líf­eyr­is­sjóð­irnir eru stórir eig­endur selja vöru eða þjón­ustu sem flestir eig­endur líf­eyr­is­sjóð­anna þurfa að nýta sér nær dag­lega. Má þar nefna dag­vöru­versl­anir, elds­neyt­is­sala, trygg­inga­fé­lög og flutn­inga­fyr­ir­tæki, hvort sem er í lofti eða á láði. Því eru sjóð­irnir í þeirri vanda­sömu stöðu að þeir þurfa að velja á milli þess að hámarka arð­semi fjár­fest­inga sinna, sjóðs­fé­lögum til lang­tíma­heilla, eða beita sér fyrir því að sjá þeim fyrir sem lægstu verði á vörum og þjón­ustu, sem gagn­ast sömu sjóðs­fé­lögum sann­ar­lega betur til skamm­s­tíma. Hingað til hefur áherslan verið á hið fyrr­nefnda. En þrýst­ingur er á að líf­eyr­is­sjóð­irnir ein­beiti sér ekki síður að því að bæta lífs­gæði lands­manna í nútíð.

Launafólk og atvinnurekendur stýra saman

En hvernig teng­ist þetta allt saman ASÍ og fjölda­hreyf­ingum launa­fólks? Jú, vegna þess að stjórnir flestra líf­eyr­is­sjóða eru sam­an­settar af ann­ars vegar full­trúum atvinnu­rek­enda og hins vegar full­trúum launa­fólks. Þeir full­trúar skipt­ast svo á for­mennsku í stjórn­unum. Ástæðan er sú að til­vera þeirra grund­vall­ast af kjara­samn­ingi milli ASÍ og því sem nú heitir Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) árið 1969.

Á grund­velli þessa fyr­ir­komu­lags eru nú níu líf­eyr­is­sjóðir á samn­ings­sviði ASÍ og SA. Þar á meðal eru tveir af stærstu sjóðum lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi líf­eyr­is­sjóður, sem báðir eru á meðal stærstu eig­enda margra stórra fyr­ir­tækja á Íslandi.

Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur því umtals­verð áhrif innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. Hún hefur hins vegar legið undir gagn­rýni, meðal ann­ars frá nýjum og rót­tæk­ari for­ystu­mönnum stétt­ar­fé­laga á borð við Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR, og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar. Þau hafa til að mynda gagn­rýnt harð­lega launa­kjör stjórn­enda skráðra félaga sem líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga hlut í og hvatt til auk­innar aðkomu líf­eyr­is­sjóða að lausnum á hús­næð­is­mark­aði.

Allt á fleygiferð

Guðrún Haf­steins­dóttir, var stjórn­ar­for­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða og Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna fyrir einu ári síðan, og sagði í sam­tali við Kjarnann að hlut­hafa­stefnur líf­eyr­is­sjóð­anna væru síkvikar stefnur sem taki mið af sam­fé­lag­inu hverju sinni. Slíkt ferli sé á fleygi­ferð og nú séu nær allir sjóðir með end­ur­skoðun á þeirri stefnu í gangi þar sem verið sé að ramma inn þætti sem snúa að meiri sam­fé­lags­legri ábyrgð. „Hluti af því er til dæmis krafa um að til­nefn­ing­ar­nefndir séu starf­andi innan þeirra skráðu félaga sem sjóð­irnir eiga hluti í.“

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er næst stærsti sjóður lands­ins á eftir Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR). Guðrún benti á að sjóð­ur­inn væri aðili að reglum Sam­ein­uðu þjóð­anna um ábyrgar fjár­fest­ingar (Principles for Responsi­ble Invest­ment). Þær reglur voru samdar af leið­andi líf­eyr­is­sjóðum og eigna­vörslu­fyr­ir­tækjum víða um heim í sam­starfi við Sam­ein­uðu þjóð­irnar og hafa margir af stærstu líf­eyr­is­sjóðum Vest­ur­landa und­ir­geng­ist regl­urnar. Þær fela í sér að að þátt­tak­endur skuld­binda sig til að taka til­lit til umhverf­is­legra og félags­legra þátta við fjár­fest­ingar sínar, auk þess sem lögð er áhersla á góða stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja sem fjár­fest er í. „Þessar reglur leggja þá skyldu á líf­eyr­is­sjóð­ina sem und­ir­gang­ast þær að þeir séu virkir eig­endur með góða eig­enda­stefnu,“ sagði Guðrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár