Gamma með allt að 10 prósent leigumarkaðar á höfuðborgarsvæðinu

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur fulla ástæðu til að gefa auknum umsvifum fast­eigna­fé­laga sér­stakan gaum. Fast­eigna­fé­lög eiga allt að 40% íbúða í almennri útleigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og 70 til 80% á Suð­ur­nesjum.

Sérhæfð leigu­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Suð­ur­nesjum eiga allt að 40 pró­sent íbúð­ar­hús­næðis í almennri útleigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á milli 70 til 80 pró­sent á Suð­ur­nesjum. Ástæða er til þess að gefa þess­ari þróun sér­stakan gaum og vekja athygli á því hversu mikið vægi fast­eigna­fé­lög hafa á leigu­mark­aði.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, sem hafði til rann­sóknar yfir­töku Almenna leigu­fé­lags­ins, sem er í stýr­ingu Gamma, á BK eignum. Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur ekki for­sendur til íhlut­unar vegna máls­ins, fyrst og fremst vegna þess að BK eignir eiga helst íbúðir á öðru svæði en Almenna leigu­fé­lagið.

Rekstr­ar­að­ili hins sam­ein­aða félags er fjár­mála­fyr­ir­tækið Gamma, en félagið er stærsta fyr­ir­tæki sinnar teg­undar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með rösk­lega þús­und íbúðir í eigna­safni sínu. Félagið ræður yfir um 5 til 10 pró­sentum almenna leigu­mark­að­ar­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Á Suð­ur­nesjum er þessi tala 10 til 20 pró­sent, en þar eru Heima­vellir stærri aðili, með 20 til 30 pró­senta hlut­deild, og Ásbrú er á sama bili með 10 til 20 pró­sent mark­að­ar­ins.

Þrátt fyrir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið aðhaf­ist ekk­ert í yfir­töku Almenna leigu­fé­lags­ins á BK eignum telur það „rétt að vekja athygli á auknu vægi sér­hæfðra leigu­fé­laga á mark­aði fyrir útleigu á íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Suð­ur­nesjum.“ Það sé full ástæða til að gefa þess­ari þróun sér­stakan gaum. „Þótt lík­legt sé að lítið fram­boð á leigu­hús­næði og stór­aukin eft­ir­spurn ráði miklu um hækk­andi fast­eigna- og leigu­verð nú um stundir, getur aukin sam­þjöppun á mark­aðnum leitt til minnk­andi sam­keppni til lengri tíma, leigu­tökum til tjóns.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið tekur einnig fram að frek­ari sam­þjöppun í þess­ari atvinnu­starf­semi muni að lík­indum kalla á ítar­legar rann­sóknir af hálfu eft­ir­lits­ins. Þó er einnig sögð full ástæða fyrir önnur stjórn­völd sem að málum koma að meta stöð­una og huga að stjórn­tækjum á sínum vett­vangi, segir eft­ir­litið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár