Mynd: Samsett

Forstjórar hafa hækkað um 398 þúsund – Afgreiðslufólk á kassa um 86 þúsund

Launa­hæsti starfs­hóp­ur­inn á Íslandi eru for­stjórar. Heil­ar­laun þeirra eru 1.818 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Verð­bréfa­salar fylgja fast á hæla þeirra.

Heild­ar­laun for­stjóra og aðal­fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja og stofn­ana á Íslandi voru að með­al­tali 1.818 þús­und krónur á mán­uði í fyrra. Þau hafa hækkað um 398 þús­und krónur frá árinu 2014. Sú hækkun er sama krónu­tala og starfs­menn í umönnun og aðstoð við sér­fræð­inga í heil­brigð­is­greinum og félags­þjón­ustu fá í heild­ar­laun á mán­uði, og 14 þús­und krónum hærri en mán­að­ar­leg heild­ar­laun kvenna sem vinna í slíkum störfum. Þetta er meðal þess sem mál lesa út úr nýjum tölum sem Hag­stofan birti um laun lands­manna á fimmtu­dag.

heild­ar­laun eru öll laun ein­stak­lings­ins, þ.e. reglu­leg heild­ar­laun auk ýmissa óreglu­legra greiðslna s.s. orlofs- og des­em­ber­upp­bótar, ein­greiðslna, ákvæð­is­greiðslna og upp­gjörs vegna upp­mæl­inga. Heild­ar­laun allra full­vinn­andi launa­manna voru að með­al­tali 706 þús­und krónur á mán­uði í fyrra. Þau hafa hækkað um 25 pró­sent frá árinu 2014.

Forstjórar hækkuðu um 15 prósent á einu ári

Launa­hæsti starfs­hóp­ur­inn á Íslandi eru for­stjórar og stjórn­endur stærri fyr­ir­tækja og stofn­ana. Þeir voru með, líkt og áður sagði, 1.818 þús­und krónur á mán­uði í heild­ar­laun.

Laun þeirra hafa hækkað um 28 pró­sent frá árinu 2014. Í fyrra hækk­uðu þau um 15 pró­sent á einu ári. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um miklar launa­hækk­anir for­stjóra skráðra félaga og fyrir­tækja í opin­berri eigu fyrr á þessu ári.

Karlar sem gegna slíkum yfir­manns­stöðum eru mun hærra laun­aðir en konur. Heild­ar­laun þeirra á mán­uði í fyrra voru 1.994 þús­und krónur en kvenna 1.426 þús­und krónur á mán­uði. Laun karl­for­stjóra eru því 40 pró­sent hærri að með­al­tali en laun kvenna sem gegna slíkum störfum. Þar munar 568 þús­und krónum á mán­uði.

Gefur vel að miðla verðbréfum

Næst launa­hæsti starfs­hóp­ur­inn á Íslandi virð­ist vera sá sem sinnir störfum sem tengj­ast ráð­gjöf og sölu verð­bréfa. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar sinna konur ekki því starfi. Karl­arnir sem það gera voru þó að með­al­tali með 1.564 þús­und krónur í heild­ar­laun á mán­uði á árinu 2017. Laun þeirra hafa hækkað um 33 pró­sent frá árinu 2014.

Læknar og dóm­arar hafa það líka fínt, líkt og þeir sem sinna sér­fræði­störfum tengdum flug­um­sjón. Og laun þeirra hafa hækkað skarpt á und­an­förnum árum.

Fyrir dóm­ara­störf greidd­ust að með­al­tali 1.478 þús­und krónur á mán­uði árið 2017. Þau laun hafa hækkað um 31 pró­sent frá árinu 2014. Sér­fræði­læknar voru með 1.469 þús­und krónur á mán­uði í fyrra og höfðu hækkað um 30 pró­sent á þremur árum.

Sér­fræð­ingar við flug­um­sjón voru með 1.484 þús­und krónur á mán­uði í fyrra og höfðu hækkað um heil 46 pró­sent frá árinu 2014.

Æðstu emb­ætt­is­menn ríkis og sveita­stjórna lepja heldur ekki dauðan úr skel. Heild­ar­laun þeirra á mán­uði árið 2017 voru 1.358 þús­und krónur, eða 39 pró­sent hærri en þau voru árið 2014. Þar munar auð­vitað mestu um launa­hækk­anir t.d. stjórn­mála­manna sem ákveðnar voru af kjara­ráði og opin­ber­aðar á kjör­dag árið 2016.

Umönnun og afgreiðsla borgar illa

Sú starfs­stétt sem er með lægstu heild­ar­launin eru starfs­menn sem sinna barna­gæslu. Þeir voru með 359 þús­und krónur í heild­ar­laun í fyrra. Árið 2014 voru þau laun 285 þús­und krónur og hafa því hækkað um 26 pró­sent á tíma­bil­inu. Sú hækkun hefur skilað starfs­stétt­inni 74 þús­und nýjum krónum í budd­una. Til sam­an­burðar hafa laun for­stjóra hækkað um 398 þús­und krónum á tíma­bil­inu. Þeir voru með 1.135 þús­und krónum meira í laun á mán­uði en starfs­menn við barna­gæslu árið 2014 en í fyrra var mun­ur­inn orð­inn 1.459 þús­und krónur.

Starfs­fólk sem sinnir umönnun og aðstoð við sér­fræð­inga í heil­brigð­is­greinum og félags­þjón­ustu eru með litlu minni laun en barna­gæslu­stéttin, eða 398 þús­und krónur á mán­uði í fyrra. Þau laun hafa hækkað um 26 pró­sent á síð­ustu þremur árum, eða um 82 þús­und krónur.

Afgreiðslu­fólk í dag­vöru­versl­unum var með 409 þús­und krónur á mán­uði árið 2017, eða 27 pró­sent meira en það var með árið 2014. Það skilar fólk­inu á kass­anum 86 fleiri þús­und­köllum í heild­ar­laun á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár