Áfram mikil eftirspurn eftir minni íbúðum

Minni íbúðir eru lík­legri til þess að selj­ast yfir ásettu verði en stærri íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Minni íbúðir hafa ríf­lega tvö­fald­ast í verði á und­an­förnum ára­tug á meðan verð stærri eigna hefur hækkað um rúm 70 pró­sent.

Enn virðist mikil eftirspurn vera eftir minni íbúðum hér á landi. Það sem af er ári hafa 24 prósent viðskipta með eins eða tveggja herbergja íbúðir á höfuðborgarsvæðinu verið yfir ásettu verði. Aftur á móti voru 84 prósent allra íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í apríl síðastliðnum undir ásettu verði. Það er talsverð breyting frá því í apríl á síðasta ári þegar 69 prósent íbúða seldust undir ásettu verði. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Íbúðir hafa í auknum mæli selst undir ásettu verði á höfuðborgarsvæðinu

Aðeins 10 prósent íbúða seldust á hærra verði en ásettu á höfuðborgarsvæðinu í apríl síðastliðnum ef miðað er við verð í nýjustu fasteignaauglýsingu áður en kaupsamningur var undirritaður. Til samanburðar seldust 17 prósent íbúða yfir ásettu verði í apríl í fyrra. Þá seldust um 84 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu í aprílmánuði undir ásettu verði en í fyrra seldust 69 prósent íbúða undir ásettu verði í apríl.

Þá hafa minnstu íbúðirnar, eins til tveggja herbergja, það sem af er ári verið að seljast í auknum mæli yfir ásettu verði. Alls hafa 24 prósent þeirra íbúða selst yfir ásettu verði en 71 prósent undir. Stærri íbúðir hafa aftur á móti selst í auknum mæli undir ásettu verði en það sem af er ári hafa 7 prósent íbúða með fimm herbergi eða fleiri selst yfir ásettu verði en 85 prósent undir því.

Minni íbúðir hækkað meira í verði

Meðalsölutími minnstu íbúðanna á höfuðborgarsvæðinu hefur verið að styttast á höfuðborgarsvæðinu en lengjast ögn á öðrum íbúðum Á tímabilinu febrúar til apríl á þessu ári var hann 79 dagar samanborið við 92 daga í júlí til september í fyrra. Meðalsölutími annarra íbúða hefur aftur á móti farið örlítið hækkandi frá því í fyrrahaust. Á höfuðborgarsvæðinu var meðalsölutími íbúða 100 dagar í apríl samanborið við 85 daga í september í fyrra.

Þá hafa verð minnstu íbúð­anna, eins til tveggja her­bergja hækkað mest að með­al­tali und­an­farin ára­tug Ef horft er aftur til árs­ins 2012 hafa eins til tveggja her­bergja íbúðir ríf­lega tvö­fald­ast í verði á meðan verð stærri eigna (íbúða með fimm her­bergi eða fleiri) hefur að með­al­tali hækkað um 71 pró­sent.

Ef hins vegar er horft til síð­ast­lið­inna þriggja ára hafa stærri íbúðir hækkað ívið meira en þær minni eða um 38 pró­sent sam­an­borið við 32 pró­sent hækkun á þriggja til fjög­urra her­bergja íbúðum og 36 pró­sent hækkun á eins til tveggja her­bergja.

12 mánaða hækkunartaktur íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu farið aftur vaxandi

Árs­hækkun vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist í apr­íl­mán­uði 4,7 pró­sent, sam­an­borið við 4,3 pró­sent í mars og 3,7 pró­sent í febr­úar, og hefur því farið ögn hækk­andi síð­ustu mán­uði. Í skýrslu Íbúð­ar­lána­sjóðs kemur fram að ef horft er til ein­staka hækk­ana milli mán­aða má þó sjá að verð hefur hækkað að með­al­tali um 0,4 pró­sent á milli mán­aða á und­an­förnum 12 mán­uðum og er það nán­ast sami hækk­un­ar­taktur og síð­ustu 12 mán­uð­ina þar á undan.

Hins vegar mæld­ust mán­að­ar­legar hækk­anir að með­al­tali 1,7 pró­sent frá apríl 2016 til apríl 2017. Vísitala ásetts verðs, sem reiknuð er af hag­deild, hefur á und­an­förnum 12 mán­uðum einnig hækkað að með­al­tali um 0,4 pró­sent á milli mán­aða, sam­an­borið við 0,6 pró­sent með­al­hækkun síð­ustu 12 mán­uð­ina þar á undan og 1,6 pró­sent hækkun að með­al­tali frá apríl 2016 til apríl 2017. Árs­hækkun vísi­tölu ásetts verðs mæld­ist í maí­mán­uði um 5,4 pró­sent,

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár