Már: Losun hafta mun ekki veikja gengi krónunnar

Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, segir að losun hafta, það er fyrstu skrefin sem nú eru í und­ir­bún­ingi, muni ekki hafa áhrif á gengi krón­unnar til veik­ingar. „Ég hef ekki áhyggjur af því. Við munum ein­fald­lega tryggja að svo verði ekki,“ sagði Már í við­tali við Kjarnann í morgun, eftir fund í Seðla­banka Íslands þar sem nýjasta útgáfa Fjár­mála­stöð­ug­leika var kynnt.

Í for­mála sínum í Fjár­mála­stöð­ug­leika, segir Már að for­sendur fjár­mála­stöð­ug­leika í hag­kerf­inu hafi haldið áfram að batna sam­fara því að efn­hags­bati hafi almennt haldið áfram. Helsti áhættu­þáttur fjár­mála­stöð­ug­leika er losun hafta. Már ítrekar þó að hann hafi ekki áhyggjur af því, þar sem það verði tryggt að losun haft­anna, þar sem meðal ann­ars er tekið á greiðslu­jafn­að­ar­vanda vegna slita­búa föllnu bank­anna, muni ekki veikja gengi krón­unnar.

Aðspurður um hvort hann hafi áhyggjur af stöðu kjara­samn­inga, sagði hann of snemmt að segja til um það. „Þetta fer eftir nið­ur­stöð­unni. Ef við sjáum almennar hækk­anir á vinnu­mark­aði upp á tveggja stafa tölur, og ég tala nú ekki um háar tveggja stafa tölur, þá getum við ekk­ert annað gert en brugð­ist við því með okkar lög­bundna hlut­verki,“ sagði Már og vitn­aði til vaxta­hækk­ana. Sagði hann að það væru engin „geim­vís­indi“ að samn­ingar um miklar launa­hækk­anir gætu farið út í verð­lag, og það myndi kalla á aðgerðir að hálfu bank­ans.

Viðtal við Má, sem tekið var eftir fund­inn, má heyra á með­fylgj­andi slóð á Soundcloud svæði Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár