Utanríkisráðuneytið vill ekki auglýsa sendiherrastöður

Utan­rík­is­ráðu­neytið leggst gegn því að lögum um utan­rík­is­þjón­ustu verði breytt þannig að aug­lýsa þurfi stöður sendi­herra. Þetta kemur fram í svörun ráðu­neyt­is­ins til Rík­is­end­ur­skoð­unar, sem hvetur ráðu­neytið í nýrri skýrslu til að beita sér fyrir því að stöður sendi­herra verði aug­lýstar.

Í lögum um utan­rík­is­þjón­ust­una er veitt heim­ild til þess víkja frá meg­in­reglu um aug­lýs­inga­skyldu fyrir stöðu sendi­herra. „Rík­is­end­ur­skoðun hvetur utan­rík­is­ráðu­neyti til að beita sér fyrir því að heim­ild til að víkja frá meg­in­reglu um aug­lýs­inga­skyldu fyrir stöðu sendi­herra verði felld úr lögum um utan­rík­is­þjón­ustu Íslands og stuðla þannig að auknu gagn­sæi, jafn­ræði og vand­aðri stjórn­sýslu við skip­anir í stöðu sendi­herra,“ segir í skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun hefur birt, en hún fjallar um rekstur og starf­semi sendi­skrif­stofa Íslands. Rík­is­end­ur­skoðun setur þar fram fimm ábend­ingar til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, og und­an­þága vegna aug­lýs­inga er ein þeirra.

Flutningsskylda og framgangskerfi í gildi


Utan­rík­is­ráðu­neytið fékk að svara ábend­ing­unum og birt­ast svör þess í skýrsl­unni. Þar kemur fram að vegna flutn­ings­skyldu og fram­gangs­kerfis sem sé við lýði í utan­rík­is­þjón­ust­unni telji ráðu­neytið mik­il­vægt að und­an­þága frá aug­lýs­inga­skyldu vegna starfa sendi­herra verði áfram í gildi.

Starfs­menn í utan­rík­is­þjón­ustu eru flutn­ings­skyldir sam­kvæmt lögum „og innan hennar er fram­gangs­kerfi byggt á lög­unum. Flutn­ings­skyldan gerir það að verkum að fram­gangur starfs­manna hennar er ólíkur því sem ger­ist í öðrum opin­berum stofn­unum,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins. Þar kemur fram að fjölgun í utan­rík­is­þjón­ust­unni eigi sér stað með því að laus störf séu aug­lýst sam­kvæmt reglum, og starfs­menn séu ráðnir til starfa í sam­ræmi við nið­ur­stöðu ráðn­ing­ar­ferlis. Almennt sé fólk ráðið sem hafi nýlega hafið starfs­feril að loknu námi og þjálfun til fram­tíð­ar­starfa í utan­rík­is­þjón­ustu bygg­ist meðal ann­ars á þessum fyrstu árum, og fólk geti svo vænst fram­gangs í starfi.

[quote font="0" align="right"]Þá er rétt að taka fram að starfs­maður sem kemur til álita að hljóti fram­gang í emb­ætti sendi­herra hefur þegar sótt um laust aug­lýst starf, þ.e. við upp­haf starfs­fer­ils síns.[/quote]

„Fram­gangur til að gegna emb­ætti sendi­herra getur t.d. komið til þegar starfs­maður í sendi­herra­stöðu hefur töku eft­ir­launa og reyndur diplómat er skip­aður í sendi­herra­stöðu í stað­inn. Þegar sú staða er uppi, telst emb­ætti sendi­herra ekki laust í skiln­ingi laga og reglna þannig að skylda til aug­lýs­ingar vakni. Þá er rétt að taka fram að starfs­maður sem kemur til álita að hljóti fram­gang í emb­ætti sendi­herra hefur þegar sótt um laust aug­lýst starf, þ.e. við upp­haf starfs­fer­ils síns.“

Að jafnaði ekki sótt út fyrir utanríkisþjónustuna


Ráðu­neytið segir að að jafn­aði sé ekki sótt út fyrir utan­rík­is­þjón­ust­una þegar skipað er í sendi­herra­stöður og stærstur hluti sendi­herra séu með reynslu­meiri starfs­mönnum sem hafi byggt upp „stað­góða þekk­ingu á sviði alþjóða­sam­skipta og stjórn­mála, starfi alþjóða­stofn­ana og milli­ríkja­við­skipta á löngum tíma.“

Hins vegar sé hægt að öðl­ast sam­bæri­lega reynslu úr öðrum störfum og þá reynslu beri að meta eins og aðra. „Sendi­herra­efni utan raða utan­rík­is­þjón­ust­unnar, t.d. úr stjórn­málum, við­skipta- og menn­ing­ar­lífi, búa yfir mik­illi reynslu af sam­bæri­legum störfum, hafa ríka þekk­ingu á alþjóða­málum og eru góð við­bót við mannauð ráðu­neyt­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár